Náttúrufræðingurinn - 1931, Blaðsíða 26
136
NÁTTÚRUFR
að hollenzkir flugmenn hafi bækistöð nálægt Reykjavík og
fljúgi hátt í loft upp til veðurrannsókna þegar veður leyfir. En
þær rannsóknir eru mjög háðar veðri og falla margir dagar úr
vegna dimmviðris og storma. Þá fylla háfjallastöðvarnar upp
í eyðurnar. — Ein slík stöð á Snæfellsjökull að verða. Er hann
ein af 10—12 háf jallastöðvum sem ráðgert hefir verið að koma
upp á norðurvegum. Hinar stöðvarnar eiga að vera:
2 á Vesturströnd Grænlands.
1 á Suður Grænlandi.
2 á Austur Grænlandi.
1 í Færeyjum.
2 í Noregi.
1 á Svalbarða.
1 í Nova Scotia.
Snæfellsjökull er rúmir 1440 m. að hæð og verður ein af
hæstu stöðvunum. Aðeins 2 stöðvar verða mun hærri eða um
2000 m.
Upphaflega var svo ráð fyrir gert í Kmh. 1929, að tvær
háfjallastöðvar yrðu stofnaðar hér á landi. önnur á Snæfells-
jökli, kostuð af Svisslendingum, en hin á Austurlandi, t. d.
Snæfelli, kostuð af Itölum. En svo kom heimskreppan, og er
því hætt við, að minna verði af framkvæmdum en ella mundi.
Það er vandséð, hvort Sviss treystir sér til að leggja nokkuð
tii stöðvarinnar á Snæfellsjökli, en ef það bregst, hefir for-
stjóri dönsku veðurfræðist., Dr. la Cour, boðist til að hlaupa
undir bagga, með því að leggja til efni í' hús á Snæfellsjökli,
og lána áhöld og einn starfsmann. Með framlagi því — 5 þús.
kr. — sem Alþingi hefir veitt, má því telja víst, að hægt verði
að stofna rannsóknastöðina og halda henni í eitt ár, frá 1. ág.
1932 til 31. ág. 1933.
Það er ekki hægt enn sem komið er, að gefa neina ákveðna
lýsingu á tilhögun stöðvarinnar. Lítill kofi mun verða reistur
á jöklinum til vetrarsetu fyrir 2—3 menn. Þar af þarf einn að
vera æfður veðurfræðingur, einn loftskeytamaður og einn til
aðstoðar um flutninga o. fl. Húsið verður lítið og vistir ekki
nema fyrir hrausta menn, sem eru reiðubúnir að leggja tals-
vert að sér, til þess að árangurinn verði sem beztur. Verkefni
þeirra verður, daglega að gera veðurathuganir á ákveðnum
tímum og sjá um sjálfvirk tæki til mælinga, svo sem hitamæla,
úrkomumæla, rakamæla, vindmæla og loftvogir. — Er það