Náttúrufræðingurinn - 1932, Qupperneq 2
Gjnldd. Náttilrafræftingsins er 1. apríl.
Þeim, sem eiga ógreitt andvirði tímaritsins fyrir þetta
ár, verða send næstu hefti gegn póstkröfu. Hr. Gísli Jón-
asson kennari, Grettisgötu 53 A, hefur á hendi innheimtu
og reikningshald Náttúrufræðingsins. Eru menn beðnir að
snúa sér til hans með innborganir til tímaritsins. Utaná-
skrift hans er:
Hr. kennari Gísli Jónasson
Grettisgötu 53 A P. O. Box 712 Rvík.
Simi 1810.
HeiðruSu feaupendur!
Nú um áramótin hefir ,,Náttúrufræðingurinn“ náð
Stveggja ára aldri, og fyllir þetta hefti arkatölu hans.
Hefir hann til tilbreytingar, og til þess að gleðja kaup-
enclur, aukið við sig einni myndatöflu með snotrum
myndum.
Enn hefir hann átt við ýmsa örðugleika að stríða,
og er ekki ennþá fyllilega sjálfbjarga. Hann hefir eign-
ast marga góða vini, en eigi nógu marga, til þess að
framtíð hans sé örugg. Væntum vér, að vinir hans vilji
styðja að því, að hann eignist sem flesta trausta kaup-
lendur. En svo er annað meira, sem vér vonum, að fljót-
lega verði úr bætt — allmargir af kaupendum hans
hafa enn ekki greitt andvirði síðasta árgangs og var þó
gjalddaginn 1. apríl s. 1. Væntum vér að þeir sýni tíma-
ritinu þá velvild, að greiða andvirðið til innheimtumanns
við allra fyrstu hentugleika. — óskum vér svo kaupend-
um hans góðs oggleðilegsnýárs og þökkum góðan stuðn-
ing á liðnu ári. Útgef.