Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1932, Page 21

Náttúrufræðingurinn - 1932, Page 21
NÁTTÖRUFR. 179 viðarplöntur lágvaxnar og lítilsigldar. Þeir hlutar gígbarms- ins, sem enn eru sýnilegir, líkjast mest leifum innsta gígsins að byggingu. Mun gígur þessi vera um km. að þvermáli, og mun hann hafa náð að einhverju leyti í sjó fram. Fullur er hann nú af allskonar grjótrusli, og sést glöggt, hvar aðalís- straumurinn hefir brotið barminn og steypt sér niður í gíginn. Eru þar, í hinum forna ísfarvegi, stóreflis björg, er borizt hafa eftir honum, ofan úr Illviðrishnjúkum; en þeir eru skammt í burtu. í sambandi við þetta mál má geta þess, að meðfram þess- um fjallgarði, eru laugar á 4 stöðum inn frá Hraunum. Þurra- hita hefi eg orðið var við á 2—3 stöðum — einmitt á innsta gígnum. Um stórgrýtisurðirnar, sem eg minntist á í upphafi, og sem jörðin mun draga nafn af, er það að segja, að þar mun syðri gígbarmurinn hafa staðið fyrir ísstraumnum innan úr Fljótum um og urðirnar, eða ruðningur sá, er ísinn bar með sér, mun hafa sest þarna að. Smámsaman hefir svo bráðnað undan stór- grýtinu, en það orðið eftir, svo sem merkin sýna enn í dag. Annars er algengt, að slíkar urðir sé nefndar hraun. Svo er t. d. um Hestahraun og Kúgilshraun í Þorvaldsdal í Eyjafjarðar- sýslu, sem bæði munu vera mynduð af framhruni úr fjallinu við austanverðan dalinn. Yæri mjög æskilegt, að jarðfræðingur rannsakaði þetta efni til hlítar, því að framanskráð lýsing mín er mjög ófullnægjandi. Væri þá og ef til vill, hægt að ákveða aldur gíganna, að einhverju leyti, og fleira þar að lútandi. Hraunum í Fljótum, 17. maí 1932. Guðm. Davíðsson. Hættír krumma. 1 1—2 örk Náttúrufræðingsins 1932 er krumma getið. Þar er sagt, að hann sé athugull, kaldrænn, kerskinn, kænn og kými- legur o. s. frv., en þess ekki beinlínis getið, að hann sé þjófótt- ur. Það hefði þó mátt fylgja með, því krummi er með afbrigðum þjófgefinn. Að því munu nú færð rök. 12

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.