Náttúrufræðingurinn - 1962, Side 4
50
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
réttuinanns á Ökrum í Skagal'irði. Hún var orðlögð yfirsetukona
og skörungur. Sveinn virðist liafa unnað móður sinni mjög mikið.
Foreldrar Sveins bjuggu við lítil efni. Þau áttu sex börn, er upp
komust, og var Sveinn yngstur. Hann einn var settur til mennta
og brautskráðist ur Hólaskóla tvítugur að aldri. Gat hann þá þegar
tekið prestvígslu, eins og gert liöfðu að minnsta kosti sex forfeður
lians í beinan karllegg. í stað þess gerðist Sveinn vertíðarmaður
næsta vetur suður í Njarðvík, og var honum þá efst í huga að
styðja foreldra sína í lífsbaráttunni. En sumarið eftir (1783) gerðist
það, að Jón Sveinsson landlæknir kemur öllum óvörum að Steins-
stöðum og falar Svein, frænda sinn, fyrir nemanda í læknisfræði.
Höfðu kennarar á Hólum bent honum á Svein „sem ekki ólíkleg-
an til hvers, er við hafa skyldi“. Varð það að ráði, að Sveinn færi
að Nesi við Seltjörn, enda voru foreldrar hans þess fýsandi. Hann
lagði af stað suður Stórasand undir veturnætur um haustið, hrepjiti
illviðri á fjöllum og komst loks eftir 27 daga ferðalag suður að
Nesi. Hér má skjóta Jrví inn í, að um þessar mundir átti land-
læknir að taka pilta til kennslu í læknislist. Þeir skyldu vera við
nám í 3—4 ár, og stjórnin veitti Jreim 20 rd. styrk á ári. Land-
læknir fæddi þá, enda mátti hann láta ]rá vinna, hvað sem fyrir
kom. Að námslokum skyldu Jreir ganga undir eins konar próf.
Vá
Þegar Sveinn hafði verið fjögur ár í Nesi, hvatti landlæknir
hann til framhaldsnáms við háskólann í Kaupmannahöfn, og varð
Jrað að ráði, þrátt fyrir féleysi Sveins. Hefur Jóns Sveinsson eflaust
ætlað honum að verða landlæknir eftir sinn dag.
í Kaupmannahöfn dvelst Sveinn hátt á fjórða ár. — Þar opnast
honum margir nýir heimar, og fróðleiksþorsti hans knýr hann til
|jess að leggja sig eftir efnafræði og náttúruvísindum samhliða
læknisfræðinni. Auk þess fær liann hér hugboð um ýmsar lysti-
semdir, svo sem hljóðfæralist, dans, lifandi tungumál og teiknunar-
list. En efnahagurinn leyfði fáar lystisemdir. — „Komedíuhúsið var
sá einasti lystisemdastaður í Höfn, sem Sveinn gat ekki móti sér
látið að sækja, þegar ekki þvertók skildingaleysi,“ — segir hann í
endurminningum sínum.
Nú gerist það 1789, þegar Sveinn hefur dvali/.t tvö ár í Höfn,
að prófessor Abildgaard jarðfræðingur stofnar Náttúrufræðafélag