Náttúrufræðingurinn - 1962, Qupperneq 32
78
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
víðar vera. Kollurinn á þessum ás, ef mold er rutt af, er í 47 m
liæð, og er hann því ofan við efstu sjávarmörk á Reykjavíkursvæð-
inu, ef rétt er ákvarðað að þau séu í 43 m hæð.
Á Álftanesi er lágur og flatur ás, um 800 m langur, sýndur á
jarðfræðikorti Tómasar Tryggvasonar og Jóns Jónssonar af ná-
grenni Reykjavíkur. Ás þessi er rétt sunnan vegarins til Bessastaða,
vestan undir Garðahrauninu, og hefur allmikið af mölinni þegar
verið numið burt. Þessi ás er aðeins fárra metra þykkur, en breið-
ur, að mestu þakinn ávölum hnullungum, brattari að sunnan en
norðan og virðist allur brimþveginn.
Lengsti og fallegasti malarás, sem mér er kunnugt um á láglendi
Islands, er nyrzt í Reykjadal og hefur orðið á margra vegi, því
nyrðri liluti hans er bókstaflega liluti af bílveginum milli Breiðu-
mýrar og Húsavíkur. Þeir, sem farið hafa þann veg, munu minnast
þess, að liann liggur í mörgum bugðum milli tjarna vestan Vest-
mannsvatns, og ef að er gætt, er þessi spotti vegarins, líklega um
kílómetri að lengd, malarás, sem sléttaður hefur verið að ofan, og
er nú raunar verið að rétta úr veginum til óþarfa lýta. Mér finnst
að þessi fallegi ás, sem hlykkjast þarna milli vingjarnlegra smá-
vatna með miklu fuglalífi, og er sem vasaútgáfa af hinum frægu
finnsku ásum og eini ásinn, sem þjóðvegur liggur um á íslandi,
megi fá að halda sér og sínum hlykkjum. Bílstjórar og farþegar
liala aðeins gott af því að hægt sé þarna örlítið á keyrslu. I heild
er lengd þess áss röskir 2 krn. Hæð hans yfir sjó er 40 m. Sýnist
mér líklegt, að liann hafi myndazt í lóni framan við jökulrönd,
en vel má og vera að liann hafi myndazt undir sjávarmáli.
Vilji menn sjá þverskurð gegnum malarás, svo dæmigerðan, að
ekki verður á betra kosið, er ráð að staldra við á öðrum þjóðvegi.
Þegar ekið er frá Reykjaldíð til Grímsstaða, vestan Mývatns, liggur
vegurinn fyrst vestur með eldhrauninu frá 1729. Skömmu áður en
vegurinn liggur út á hraunið, er á hægri hönd sá þverskorni malarás,
sem sýndur er á 6. mynd. Þetta er örstuttur ás, nokkrir tugir metra,
og hefur myndazt þegar ísaldarjökullinn hopaði í síðasta sinn suður
eftir Mývatnslægðinni, eftir að jaðar hans hafði um alllangt skeið
verið kyrrstæður rétt norðan núverandi Mývatns (Hólkotsstigið).
Við hopunina myndaðist djúpt lón milli jökuljaðars og þeirra
inela og jökulgarða, sem eru norðan Reykjahlíðar, og í því lóni hef-
ur ásstúfurinn myndazt. Á hann mun eitthvað ganga á hverju ári