Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1962, Síða 21

Náttúrufræðingurinn - 1962, Síða 21
NÁTTÚRUF RÆ ÐINGURINN 67 Pessi gró ná — öll samtímis — þroska mismörgum dögum seinna, eftir því, hvaða tegund Plasmodium-dýrs á í hlut. Þá springa blóð- korn á nýjan leik, og hitinn stígur. Oft hverfur veikin eftir nokkur hitaköst, en stundum taka gródýrin sér bólfestu í líkamanum utan blóðsins — líklega í lifrinni — og geta borizt til blóðsins öðru hverju og valdið liitaköstum. Malaría er einn hinn versti sjúkdómur, sem lirjáir mannkynið. Talið hefur verið, að um helmingur þeirra manna, sem í heimin- um deyja, látist beinlínis eða óbeinlínis af völdum malaríu. í Ind- landi deyr yfir milljón manns árlega úr malaríu. IV. Skolpdýr (Ciliophora). Skolpdýr eru flóknari að líkamsbyggingu en nokkur önnur frum- dýr. Þau hafa mörg, lítil bifhár og eru ýmist þakin bifhárum um allan líkamann eða eingöngu með bifhár á ákveðnum hlutum yfir- borðsins. Stundum eru mörg bifhár gróin saman í himnur. Eftir niðurröðun bifháranna er skolpdýrunum skipt í nokkra ættbálka. Skolpdýrin skipta sér þversum, en svipudýr skipta sér nær öll að endilöngu. — Megineinkenni skolpdýranna er, að þau hafa tvenns konar kjarna — einn eða fleiri af ltvorri gerð: stórkjarna og smákjarna. Hreyfingar bifháranna eru samstilltar. Undir bifháraröðun- um liggja þræðir, sem tengd- ir eru saman sín á milli. (16. mynd.) Þetta Jrráðakerfi sam- svarar að störfum taugakerfi æðri dýra, það samstillir og lfi. mynd. Smáhluu af „húð“ ildýrs, Paramecium. Undir bifháraröðunum liggja n. k. taugaþræðir. temprar lireyfingu biflráranna. Ef skorið er á þráð eða þræði í skolpdýri, hreyfast bifhárin stjórnlaust aftan við skurðinn. Skolpdýr, sem lifa á fastri fæðu, hafa munn. Oft er munnurinn í skál eða fellingu inn í dýrið. Fæðan meltist í vökvabólum, sem ferðast eftir ákveðnum brautum um frymið, og ómeltur úrgangur fer alltaf út um ákveðið op, nokkurs konar endajrarmsop. í luið sumra skolpdýrategunda eru raðir af þráðhylkjum (tricho- cysts), sem senda frá sér fíngerða þræði út úr dýrunum, þegar þau

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.