Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1962, Page 44

Náttúrufræðingurinn - 1962, Page 44
88 NÁTTÚ RU FRÆÐINGURINN iinnist berar klappir með eiginlegum jökulrispum. Hvalbök og sljó gróp finnast þar að vísu, en — að því er ég bezt veit — einungis í harðara bergi en hér á landi er að finna. Að öllu þessu athuguðu tel ég einsætt, að þær jökulrákir liér á landi, sem nú liggja berar eða aðeins huldar nútímamyndunum og eru þó ferskar og skýrar — eins og þær, sem ég hef skoðað á Hálsun- um milli Berufjarðar og Hamarsfjarðar — séu ekki eldri en frá síð- asta jökulskeiði. — Og víkjum nú aftur að því, sem frá var horfið. Það skal viðurkennt, að hinar brimsorfnu klappir á því svæði, sem T. E. telur hafa verið jökullaust á síðasta jökulskeiði eru úfn- ar í meira lagi, eftir því sem gerist á undirlendi íslands. En það er þó aðeins stigmunur en ekki eðlismunur. Liggur beint við, að skýra þann mun með því að benda á, að svæðið liggur í meira lagi opið við úthafinu og einnig mun berggrunnur þess í meira lagi klofinn af göngum, sem veita sjávarrofinu misjafnt viðnám, ýrnist meira eða minna en bergið í kring. Eins og T. E. tekur fram, breytist mjög yfirbragð klappa og kletta á láglendinu, þegar kemur inn með fjörðunum. Hið hrjúfa form, einkenni brimrofsins, hverfur fyrir ávölurn, hvalbökuðum klappa- bungum, sem sumar hverjar bera skýrar jökulrákir. Þessi umskipti eru ekki snögg, en þau verða í Berufirði innanvert við Teigarhorn og í Hamarsfirði skammt fyrir utan Hamar. Um þessa staði dregur T. E. mörk mestu framsóknar jökla á síð- asta jökulskeiði og kennir þeirn jöklum umskiptin, sem þar verða á landslagi. Það er eflaust rétt, að mun skemmra er síðan jöklar uru land innan (vestan) þessara marka en utan (austan). En á hitt er ég tregur að fallast, að þar muni heilu jökulskeiði (hinu síðasta) að viðbættu undanfarandi hlýviðrisskeiði. Athuganir mínar á jökulminjum í grennd við Berufjörð eru allt of litlar til að þær einar fyrir sig leiði til ákveðinnar niðurstöðu um jöklafar á þeim hjara í ísaldarlokin, enda hef ég ekki hirt um að geta þeirra í því litla, sem ég hef birt um jökulminjarannsóknir mínar í ýmsum landshlutum. En þar sem nú, í grein T. E., er kom- in fram kenning, sem stangast allverulega við rnínar niðurstöður (einkum fengnar af rannsóknum á Suðurlandi), þá þykir mér hlýða að draga hér saman í stutt mál meginatriði í sögu ísaldarloka við Berufjörð og Hamarsfjörð samkvæmt minni skoðun:

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.