Náttúrufræðingurinn - 1963, Page 13
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
7
Minjar eftir þetta kuldaskeið, sem líklega náði hámarki sínu
um 1890, má meðal annars finna í jöðrum Skriðufells við Hvítár-
vatn. Hafa jöklarnir gengið fram-sinn hvoru megin fjallsins og
skilið eftir sig gráþvegnar og gróðurlausar jökulurðir.
Sama máli gegnir um suðurbrún Hofsjökuls. Þar er í jökulrönd-
inni fjall nokkurt, sem heitir Hjartafell (Hjartat'fell á korti Her-
foringjaráðsins). Nafngift þessi er ekki til á korti Björns Gunnlaugs-
sonar 1844. Hefur fellið sennilega hlotið nafn sitt af hjartalögun
sinni síðast á 19. öldinni. Fellið hefur verið hjartalaga að sjá frá
suðri, þegar jökullinn náði sem lengst fram á síðustu öld, en hefur
jiann svip ekki lengur. Nú eru þarna gráar og ógrónar jökulurðir,
sem vitna um þennan framgang jökulsins.
Enn má marka þetta kuldaskeið af jökulsvörfum á hrauni nokkru,
sem á upptök sín í eldstöðvum undir Langjökli og hefur runnið
fram í Jökulkrók norðan Fögruhlíðar. Hraunjaðarinn er um 5
km neðan við núverandi jökulbrún. Er hraunið að rnestu sorfið
af framgangi jökulsins og gróðurlaust að kalla, en syðst er um 1
km löng álma, sem liggur í rásinni austan Fögruhlíðar. Er þessi
tota hulin jarðvegi og algróin jmrrlendisgróðri.
Á þessu kuldatímabili, frá aldamótum 1600 fram undir lok síð-
ustu aldar, er uppblástur mestur í byggð landsins eftir því, sem
marka má af skráðum heimildum (Sveinsson 1958). Heimildir um
uppblástur á afréttum eru hins vegar sárafáar. Þó verður að álíta,
að hið kólnandi veðurfar þessa tímahils hafi fyrst og fremst haft
áhrif á gróðurfar hálendisins. Uppblásturshættan hefur því orðið
mest við efstu mörk hins samfellda gróðurlendis grasa og skóga.
Þegar sá gróður þvarr vegna óhagstæðra vaxtaskilyrða, var opnuð
leið til sandfoks og jarðvegsspjalla. Hinn veiklaði svörður var rof-
inn, og gróðurinn hafði ekki þrótt til þess að græða þau sár, sem
sandbyljirnir ýfðu. Þannig hefur hinn lösskenndi jarðvegur Kjalar-
svæðisins nú blásið upp að mestu, en eftir standa grjóturðir og
örfoka melar, þar sem einstaka blómplöntu hefur tekizt að nema
land á ný.