Náttúrufræðingurinn - 1963, Blaðsíða 23
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
17
eru ekki skörp. Efnið er þó hið sama. Það er plagíóklas, pyroxen
og ólivín í tiltölulega stórum kristöllum, þ. e. nánast ólivíngabbró.
Þess má þó geta, að þessir míneralar koma ekki æfinlega allir
fyrir í einum og sama mola. I áðurnefndu hrauni er mjög venju-
legt að sjá hnyðlinga, sem virðast því sem næst hafa sameinazt
hrauninu. Þeir eru aðeins lítið eitt ljósari en það og oft brúnleitir
að lit. Af ofangreindum ástæðum virtist hugsanlegt, að hér væri
um að ræða mola af öðrum uppruna en molarnir í hraunkúlunum
frá Krýsuvík og víðar. Þótti því rétt að athuga málið nánar.
Það leiddi til þess, að í leitirnar kom moli, sem þykir benda
til þess, að svo sé þó ekki. Moli þessi fannst í áðurnefndri hraun-
kvísl við Lækjarbotna, í gili íétt austan við skátaskálann. Hann
var um 12 X 6 cm stór. Við nánari athugun kom í ljós, að sá hluti
molans, sem verið hafði í beinni snertingu við hraunið, er blöðr-
óttur eins og það, en þegar innar kemur í hann, er hann algerlega
kristallaður, og engar gasbólur koma þar fyrir. Blöðrurnar ná svo
sem einn cm inn í molann, það er séð verður með berum augum,
en hverfa þar. Þær eru því án efa vegna áhrifa frá hraunkvikunni
á molann.
í smásjá má greinilega sjá, að plagíóklaskristallarnir, sem verið
hafa í beinni snertingu við hraunið, eru að leysast upp (4. mynd).
Engin slík merki sjást innar í molanum.
Af þessu virðist ljóst, að einnig þessir molar séu brot úr eldra
bergi, sem borizt hafa með hrauninu upp á yfirborð jarðar. Minnstu
molarnir hafa að nokkru eða öllu leyti leystst upp í hraunkvik-
unni.
Um uppruna gabbróhnyðlinganna, sem hér um ræðir, virðist
því vera það að segja, að þeir eru molar úr eldra, föstu bergi, xeno-
litar. Staðreyndir þær, sem þykja benda til þess, eru þessar:
1. Kristallar hnyðlinganna eru allir miklu stærri en kristall-
arnir í hrauninu, sem hnyðlingarnir eru í. Þeir eru ósjaldan
allt að einn cm í þvermál, en kristallar hraunsins sjaldan
meira en 2—3 mm og oftast nær innan við einn mm.
2. Þeir eru allir úr sams konar efni, enda þótt bergið, sem þeir
eru í, sé verulega ólíkt hvað öðru.
3. Margir hnyðlinganna eru með hvössum brúnum og bera
þannig einkenni steina, sem losnað hafa úr föstu bergi.