Náttúrufræðingurinn - 1963, Page 17
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
11
Sumarið 1957 fann ég svipaða mola í grágrýti á Blikalónsey á
Sléttu, og síðastliðið sumar fann ég þá einnig við Raufarhöfn. Allt
eru þetta eins konar gabbrómolar og a. m. k. oftast nær ólivín-
gabbró. Nánar tiltekið eru þeir úr plagíóklasi, ólivíni og klínó-
pyroxeni, en á stundum eru þeir aðeins úr plagíóklasi og öðrum
hvorum hinna síðartöldu minerala.
í sambandi við rannsóknir í Krýsuvík hefur undanfarin ár fund-
izt allmikið af slíkum gabbrómolum á því svæði. Auk fundarstað-
arins við Grænavatn, sem áður var kunnur (Þórarinsson, Tryggva-
son, op, cit.), koma þess konar molar fyrir í móbergi á Hettu og
víðar á sunnanverðum Sveifluhálsi og eins suður af Geithöfða við
Kleifarvatn.
Austan í Sveifluhálsi, frá því suður á móts við Bæjarfell og
norður að Bleikhól, liggur röð af fornum gígum, þó að lítil gíg-
lögun sé á þeim flestum. Líklega hafa þeir gosið um líkt leyti og
Grænavatn. Gosin hafa verið stutt eins og þar, og hafa byrjað
með ösku og bombum, því næst koma þunnfljótandi hraunbunur
(eldgeysir — lavafountain) og loks aftur lítils háttar gjall og aska.
Leifar þessa þunnfljótandi hrauns má enn sjá liggja sem kápu
utan á móbergshnjúkum og tindum, jafnvel efst uppi á hálsinum.
í þessu hrauni er sums staðar mikið af gabbróhnyðlingum, en
flestir þeirra eru smáir, venjulega minni en 5 cm í þvermál.
Nyrzt á Sveifluhálsi, á háhryggnum skammt frá landmælinga-
vörðunni, sem þar er, er fremur þunnur basaltgangur, og í hon-
um nokkuð af gabbróhnyðlingum. Sumir þeirra eru allt að 5 cm
í þvermál.
Austan í Undirhlíðum, við Breiðdal og Leirdali, má víðs vegar
finna svona mola, sem veðrazt hafa út úr móberginu. Þar má og
sjá leifar af fornri gígaröð í móberginu, og má rekja hana um það
bil 1,5 km leið. Hún kemur nú fram ýmist sem óreglulegur gang-
ur eða æðar úr basalti, eða sem gjallrönd með hraunveggjum til
beggja hliða (2. mynd). í þessu má finna hnyðlinga, oftast smáa,
og eru þeir einkum í basaltinu, þar sem það er tiltölulega þétt.
(3. mynd).
Frá Búrfelli, austan við Hafnarfjörð, hefur runnið mikið hraun,
sem nefnt er ýmsum nöfnum, Hafnarfjarðarhraun, Garðahraun,
Gálgahraun, Smyrlabúðarhraun o. s. frv., en ég mun nefna einu
nafni Búrfellshraun. Það er ólivínbasalthraun, auðugt mjög að