Náttúrufræðingurinn - 1963, Qupperneq 19
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
13
hef ég rekizt á þá í tertiera basaltinu á Suðausturlandi, og dr.
Walker, sem þekkir basaltmyndanir Austurlands betur en nokkur
annar, hefur tjáð mér, að hann hafi þar hvergi orðið þeirra var.
Nýlega fann ég lítinn hnyðling í kjarna frá borun, sem Hitaveita
Reykjavíkur lætur gera um þessar mundir skammt frá Ártúni við
Elliðaár. Sýnist líklegast, að bergið, sem hann er í, tilheyri eldra
grágrýtinu og þá væntanlega yngsta hluta þess.
Auk þeirra fundarstaða, sem nú hefur verið getið, er mér kunn-
ugt um, að Kristján Sæmundsson jarðfræðingur hefur fundið
hnyðlinga í móbergi og í hraunum á Hengilsvæðinu og Guð-
mundur E. Sigvaldason hefur einnig fundið þá á Snæfellsnesi.
Hvergi hef ég fundið eins mikið af hnyðlingum og í hraun-
straumi þeim, sem ég að svo stöddu nefni Hólmshraun II, en það
hraun er, eins og ég gat um áðan, næstelzt þeirra hrauna, sem
runnið hafa frá eldstöðvum einhvers staðar vestan eða suðvestan
við Bláfjöll norður eftir milli Selfjalls og Heiðmerkur og kemur
fram á nokkrum stöðum austanvert við Heiðmörk, vestan við
2. mynd. Hluti a£ £ornri gígaröð við Undirhlíðar. — Part of an old. eruption
fissure at Undirhlíðar near Hafnarfjörður.