Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1963, Side 32

Náttúrufræðingurinn - 1963, Side 32
26 NÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN Blytt lýsir frá Noregi, enda segist hann sjálfur hafa fundið hana þar og einnig í Svíþjóð og eintök frá íslandi, sem áður var getið (Möller, 1958). Hefur þessi nafngift nú að mestu verið viðurkennd. Hins vegar hefur ekki enn fengizt úr því skorið, hvort þetta er sama og Alpategundin, var. alpestris, sem áður var nefnd, en altént eru þessar tegundir náskyldar. Danski grasafræðingurinn M. P. Christiansen (1941) getur um Russula alpina frá nokkrum stöðum á landinu. Hins vegar er teg- undarinnar ekki getið í allsherjarskrá Paul Larsens (1932) og má það þó undarlegt heita, ef honum hel'ur sézt yfir þennan algenga og áberandi svepp. Nú getur Larsen um svepp, sem hann nefnir Russula vinosa Quelet., en sú tegund er nú talin samnefnd við Russula obscura Rom., sem er eldra nafn og hefur því forgangsrétt. Telur Larsen svepp þennan algengan jafnt á hálendi sem láglendi. Þegar betur er að gáð, kemur í Ijós að flest ]jað, sem Larsen segir um Russula vinosa, gæti eins vel átt við Russula alpina. Ekki er enn vitað með vissu, hvort Russula obscura vex hér á landi, en nokkur eintök hef ég fundið bæði austanlands og norðan, sem gætu heyrt undir þá tegund. Eru þau öll tekin í fjalllendi eða ofan 300 m hæðar. Sé svo, að báðir tegundirnar vaxi hér á svipuðum vaxtarstöðum, var eðlilegt að Larsen ruglaði þeim saman, enda eru þær ekki ósvipaðar að lit og lögun. Það sem Larsen segir um útbreiðslu teg- undarinnar getur þó aðeins átt við Russula alpina, þar sem Russula obscura er alltént fremur sjaldgæf hér. Eins og sjá má af þessari upptalningu, hafa menn snemma veitt reyðikúlunni eftirtekt, enda er hún áberandi sakir litarins, en þar á ofan er hún einn algengasti sveppurinn hér, og sennilega jafn- algeng í öllum landshlutum. í eðli sínu er reyðikúlan fjallasveppur, eins og nafnið alpina segir til um. Kemur þetta greinilega fram í innsveitum á Norður- og Austurlandi. Aðalútbreiðslusvæði hennar þar eru heiðarnar, sem flestar liggja milli 300 og 600 m hæðar. Vex hún einkum í deigum valllendisdældum, sem vaxnar eru lágu grasi og mosa, kornsúru og maríustakk, en einnig á mosaþembum með grasvíði, milli þúfna. Ekki virðist reyðikúlan þó vaxa á háfjöllum og sennilega lítið ofan 700 m hæðar. í útsveitum vex hún mikið á láglendi, t. d. í

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.