Náttúrufræðingurinn - 1985, Qupperneq 9
2. mynd. Jarðhiti, 80°C í gljúfri Kaldaklifsár. Örin bendir á staðinn. - Tlie Kalda-
klifsá canyon. Thermal water 80°C issues at the river (arrow).
síst kemur í ljós að það af því, sent
örugglega eru forn hraun hefur öfuga
segulstefnu, en það þýðir að það er
eldra en 0,7 milljón ára. Hversu mikið
eldra það svo kann að vera er ekki
vitað.
Að dæma af þeim fáu athugunum,
sem enn liggja fyrir, er svo að sjá sem
gangar og innskot séu rétt segul-
mögnuð, en talsvert er um örugg inn-
skot í þessum fjöllum, bæði Rauðafelli
og Steinafjalli. Rauðafell tengist
meginfjallinu með mjóum hrygg og
norðantil á honum eru leifar hrauna í
um 900 m hæð og þar er segulstefna
enn öfug og þar rétt fyrir neðan ber
talsvert á sprungum fylltum af aragón-
íti (CaC03) og talsvert er þar af öðrum
holufyllingum. Mikið af berginu er
ekki ótvíræð hraunlög, en því meira
unt brotaberg, túff, innskot og ganga.
Sums staðar er ganganetið svo þétt að
áætlað er að um 70% af berginu sé
gangar.
VIÐ KALDAKLIFSÁ
Af háhryggnum hallar bratt austur,
niður í dalinn, sem Kaldaklifsá rennur
eftir. Langt inn eftir gljúfrinu, sem er
ærið hrikalegt rennur áin eftir aurum og
hefur náð að skera sig niður gegnum
100—120 m þykk berglög. Kaldaklifsá
rennur eftir svo nefndu Hólatungugili
og fellur í aðalgljúfrið austan frá í
snotrum fossi. Innan við þennan foss
virðist gljúfrið nafnlaust, er bara kall-
að Gilið. Það er þröngt, geysilega
hrikalegt og hverfur efst inn undir jök-
ultungu. Vafalaust er það að mestu
leyti grafið undir jökli, því undan hon-
um kom það fullmótað fyrir nokkrum
áratugum. Nokkrum sinnum hef ég
heyrt drunur miklar bergmála milli
þessara gljúfurveggja þegar ég hef ver-
ið þarna á ferð, en ekki get ég sagt
hvort það stafaði af berghruni eða ís-
hruni í jökultungunni, sem áin kemur
undan.
Örskammt sunnan við fossinn í
3