Náttúrufræðingurinn - 1985, Side 24
hallamælunum sýndi mikið frávik frá
venjulegri hegðun og óvenjulegir raf-
straumar í jörðu voru mældir á
nokkrum stöðum. Margvíslegar breyt-
ingar urðu á jarðvatni, einkum 3. og 4.
febrúar. Vatn tók skyndilega að
streyma úr jörðu á tveimur stöðum,
annars staðar varð vatn gruggugt, og
enn annars staðar þornuðu brunnar.
Fregnir um óeðlilega hegðun dýra
voru tíðar, og voru margar tegundir
dýra nefndar í því sambandi. Hænsni
fengust ekki til að fara inn í
hænsnakofa, hundar ýlfruðu og þef-
uðu niður í jörðina eins og þeir fyndu
óvenjulega lykt, rottur höguðu sér
sem drukknar væru og kýr stukku yfir
girðingar. í nokkrum þorpunt voru
gerðar ráðstafanir til að setja upp
bráðabirgðaskýli og flytja fólk úr hús-
um 3. febrúar, þegar forskjálftar juk-
ust. En almennri aðvörun var ekki
dreift til bæjar- og sveitarstjórna fyrr
en snemma morguns hinn 4. febrúar,
og var þá spáð, að sterkur jarðskjálfti
yrði nálægt Haicheng þann dag.
Klukkan 14 var síðan dreift fyrirmæl-
um um ráðstafanir til varnar almenn-
ingi. Fólk flutti úr húsum sínum, og
sett voru upp tjöld og bráðabirgða-
skýli. Hjálparsveitir voru kallaðar út
og sjúkraskýli sett upp utan dyra.
Einnig voru skipulagðar kvikmynda-
sýningar undir beru lofti til þess að
létta fólki biðina úti í vetrarfrostinu.
Jarðskjálftinn reið yfir kl. 19:36, eins
og áður sagði, og olli gífurlegu eigna-
tjóni, en litlu sem engu manntjóni.
En hver er lykillinn að því hversu
vel tókst til í Haicheng? Frennt virðist
skipta meginmáli í þessu sambandi. I
fyrsta lagi er Kína þéttbýlt land með
langa menningarsögu. Saga jarð-
skjálfta er því þekkt langt aftur í tím-
ann, og fyrir hendi er mikil reynsla af
jarðskjálftum og aðdraganda þeirra. I
öðru lagi er mikil áhersla lögð á jarð-
skjálftarannsóknir í Kína. Líklega
vinna í engu öðru landi jafnmargir við
jarðskjálftarannsóknir, jafnvel þó
miöað sé við höfðatölu. Þessi mikla
áhersla á rætur að rekja til ársins 1966,
en þá varð mikið tjón í jarðskjálfta við
borgina Hsingtai, sem er um 370 km
suðvestan við Peking. Þá voru jarð-
skjálftarannsóknir, og þó sérstaklega
rannsóknir sem gætu leitt til árangurs í
jarðskjálftaspám, gerðar að forgangs-
verkefni í kínverskum vísindum.
Priðja meginatriðið er hin mikla þátt-
taka áhugafólks og sjálfboðaliða í
jarðskjálftarannsóknum í Kína. Mikill
fjöldi fólks hefur með höndum ein-
hvers konar mælingar eða athuganir
sem ekki krefjast vísindalegrar þjálf-
unar, svo sem að mæla vatnshæð í
borholu, fylgjast með hegðun dýra eða
sinna síritandi mælitæki. Þetta starf er
skipulagt í samvinnu við vísindamenn,
og gegnir tvíþættu hlutverki. I fyrsta
lagi fást með þessu margvíslegar upp-
lýsingar sem ógerningur væri að afla á
annan hátt, og í öðru lagi myndast
tengiliður milli vísindamanna og fólks-
ins sem býr á jarðskjálftasvæðunum.
Slíkir tengiliðir gegna mikilvægu hlut-
verki þegar koma þarf upplýsingum til
fólksins. Hvers konar fræðsla og til-
kynningar eiga þannig greiðari leið til
almennings. En látum nú útrætt um
Kína og lítum okkur nær.
JARÐSKJÁLFTAR Á
SUÐURLANDI
Eins og áður sagði liggja flekamót í
gegnum ísland og eru jarðskjálftar og
eldvirkni landsins tengd þeim á einn
eða annan hátt (4. mynd). Vesturhluti
landsins er á Norður-Ameríkuflekan-
um og hreyfist hann til vesturs miðað
við Austurland, sem er á Evrasíuflek-
anum. Þannig er landið í heild að
gliðna í sundur. En ekki eru allir
hlutar flekamótanna jafnvirkir. Sums
18