Náttúrufræðingurinn - 1986, Blaðsíða 14
6. mynd. Þversnið af Almannagjá þar sem
mælilína Eysteins Tryggvasonar (1968)
liggur yfir hana. Lóðrétti ásinn er hæð í
metrum yfir sjávarmáli. Lóðrétti kvarðinn
er ýktur. — A cross-section of Almannagjá
where the profile of Eysteinn Tryggvason
(1968) crosses the fracture. The vertical axis
refers to the altitude in meters. Notice that
vertical scale is exaggerated (data from E.
Tryggvason, 1968).
meðalstefnu Almannagjár og eru oft
tengdir smásprungum. Fyrst hefur Al-
mannagjá komið fram á yfirborðinu
sem belti af hliðruðum sprungum, en
þær síðan sameinast við aukna gliðnun
á svæðinu.
í suðri gengur Almannagjá yfir í röð
af skástígum sprungum (8. mynd).
Sprungurnar sjálfar hafa áþekka
stefnu og meðalstefna Almannagjár,
en til samans mynda þær belti sem
víkur talsvert frá stefnu hennar. Þetta
bendir til þess að undir þessu belti af
skástígum sprungum sé eldra misgengi
sem ákvarði staðsetningu og stefnu
sprungubeltisins, en sprungurnar sjálf-
ar opnist í stefnu mestu togspennu.
Sums staðar er Almannagjá klofin
upp í nokkrar meira og minna samsíða
sprungur (4.mynd). í sumum tilfellum
hefur landspildan milli sprungnanna
sigið nokkra metra, en í öðrum tillfell-
um ekki. Flestar þær sprungur sem
mynda Almannagjá eru mjóar sig-
spildur, sem hafa orðið til við það að
Iandræman milli samsíða sprungna
hefur sigið. Þótt Almannagjá sé sig-
gengi er hún því einnig gapandi gjá.
Hrafnagjá
Innan Þingvallahrauns er Hrafnagjá
ekki nema um 4,4 km að lengd; en hún
nær suður fyrir kortið á 2. mynd og
sker móbergsfjallið Arnarfell. Ef þessi
suðurhluti er talinn með, svo og belti
af smásprungum norðan við gjána, er
hún yfir 11 km löng. Mesta vídd er 68
m, sem jafnframt er mesta vídd í ein-
um mælipunkti á svæðinu. Víddin er þó
mjög breytileg, eða allt niður undir 0
m, en sigið, miðað við brúnir sprungu-
veggjanna, er nokkuð jafnt langs eftir
gjánni; yfirleitt 5-10 m og mest um 20
m (9. mynd). Ef miðað er við lægstu
stöðu lands rétt vestan við Hrafnagjá
og austurbrún gjárinnar er sigið þó
meira, til dæmis um 30 m þar sem
mælilína Eysteins Tryggvasonar
(1968) liggur yfir gjána.
Hrafnagjá er samsett af mörgum
skástígum, ílöngum sigspildum sem
eru að hluta til samvaxnar (10. mynd).
í þversniði líkjast þessar sigspildur
helst U-laga dal, öfugt við Almanna-
gjá þar sem sigspildurnar hafa rétt-
hyrnt þversnið (6. mynd). Sigspildur
Hrafnagjár eru grunnar miðað við sig-
spildur Almannagjár.
í suðri liggur Hrafnagjá fyrst í gegn-
um Arnarfell, en endar síðan í Þing-
vallavatni. Nálægt suðureridanum
klofnar hún upp í margar samsíða
sprungur, ekki þó skástígar. í norðri
8