Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1937, Qupperneq 24

Náttúrufræðingurinn - 1937, Qupperneq 24
66 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuir sem allar tilheyra sömu ættinni (sjá 3. mynd). Þessir 3 sundþör- ungar sýna einkar glöggt muninn á útbreiðslu tegunda þessara. þriggja flokka hér við land. 4., 5. og 6. mynd sýna útbreiðslu þeirra eins og hún var í september 1933. Svörtu hringfletirnir tákna svifsýnishornastöðvar, þar sem tegundin hefur fundizt. Mismunandi stærð þeirra gefur nokkra hugmynd um magn teg- undarinnar á hverjum stað. Óútfylltu hringfletirnir tákna svif- sýnishornastöðvar, þar sem tegundin hefur ekki fundizt. Eyðan við Suðvesturland stafar af því, að sýnishorn vantar frá þessum hluta landsins. 6. mynd. Ceratium arcticum. Útbreiðsla fyrra hluta september 1933. Til þess að skilja útbreiðslu þessara þriggja tegunda til hlít- ar, þurfum við að rifja upp fyrir okkur í aðalatriðum, hvernig straumum er háttað hér við land. Eins og kunnugt er, kemur hlýr Golfstraumurinn (eða öllu heldur ein grein hans) upp að suður- ströndinni og sveigist um leið til vesturs, beygir fyrir Reykjanes og heldur svo áfram norður með vesturströndinni, unz hann beyg- ir fyrir Horn og sveigist austur með norðurströndinni, en bland- ast þar meir og meir, eftir því sem austar dregur, köldum Austur- Islandsstraumnum, sem er grein af Pólstraumnum og kemur upp

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.