Náttúrufræðingurinn - 1937, Blaðsíða 38
80 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
iiiiiimmmimiummiimmimmiiiiimiiiiiiiiimiimimiiiimimmmiiiiiiimmiiiiiimmiiiiiiimiiimiiiiiimimiimiiiiiiiiiiii
aftur í ána, þar sem hann hafði alizt upp, til þess að hrygna, eng-
inn endurheimtist aftur fullorðinn í neinni annari á. Þessi lax
hafði þó farið suður um allt Eystrasalt, alla leið suður að strönd-
um Póllands og Þýzlcalands, og sumir alla leið inn í Beltin dönsku
og lengst norður í Eyrasund, því að nokkuð af hinum merkta laxi
endurheimtist þar. G. Alm hafði merkt lax í tveimur ám, og ósar
þeirra voru svo að segja alveg saman. En þrátt fyrir það villtist
laxinn ekki, hann fann alltaf ána, þar sem hann hafði alizt upp.
Um norsku rannsóknirnar, sem gerðar voru 1935, er í stuttu
máli það að segja, að þær leiddu í ljós mjög merkilegar nýjung-
ar, og verður að þakka það því, hve merkin voru betri og greini-
legri en þau, sem áður höfðu verið notuð. I fyrsta lagi veiddist nú
miklu meira af merkta laxinum en nokkurn tíma hafði þekkzt
áður, nefnilega allt að því helmingur, eða 47 %. 1 öðru lagi reynd-
ist laxinn að ganga miklu hraðar í sjónum en menn höfðu haft
hugmynd um áður, það kom upp úr kafinu, að sumir höfðu farið
að minnsta kosti 100 kílómetra á dag. Og loks fór hann miklu
lengra en nokkurn hafði grunað, því að lax, sem merktur hafði
verið nálægt Bergen við vesturströnd Noregs, endurveiddist við
Suður-Svíþjóð, Norður-Rússland og Skotland, auk þess, sem
fékkst við Noreg. Og svo hraðar voru þessar göngur, að lax, sem
merktur hafði verið á takmörkuðu svæði við Noreg, var eftir að-
eins tvo mánuði dreifður yfir þriðjung af öllu útbreiðslusvæði
laxins í heiminum.
Þessum merkingum hefur verið haldið áfram í Noregi, og
síðastliðið sumar var merkt allmikið. Auk þess var þá farið að
merkja með samskonar merkjum í Skotlandi. Sá árangur, sem
þegar er fenginn áf þessum nýju tilraunum, hefur að öllu leyti
staðfest þær upplýsingar, sem merkingarnar 1935 lögðu á borð-
ið. Norski laxinn fer til annarra landa, og skozki laxinn líka —
meðal annars til Noregs. Á. F.
Heimildir :
Knut Dahl og Svend Sömme: Experiments in Salmon Marking in Norway,
1935. Skrifter utgitt af Det Norske Videnskapsakademi i Oslo. Oslo, 1936.
Knut Dahl: Resultatene av nyere laksemerkninger i Norge. Naturen, 61. árg.
1937, bls. 78—82.