Náttúrufræðingurinn - 1937, Page 29
NÁTTÚRUFRÆÐINGUKINN 71
iiiiiiiiiiiiiiiiiimiiimiimimimiimiimimiiiiiiiiiiiiimiimiimiiiiiiiiiiiiimiimmmmiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiimimiiiiuiiii
aðhvort hefir sumarið 1933 týnzt í ánum í Síberíu óvenjulega
mikið af viði, sem flytja átti niður þær, og er mér enn ókunnugt
um, hvort svo hefir verið, eða þá að hafstraumarnir í íshafinu
hafa á þessum árum verið óvenjulegir að styrkleika og stefnu,
og virðist mér ferill rekflasknanna benda til þess, að svo hafi
verið, og hinn mikli viðarreki hér á land hafi að einhverju leyti,
og sennilega að mestu leyti, orsakazt af því. Búast mætti að vísu
<við því, að með hinum hröðu norðlægu hafstraumum hefði bor-
izt hingað töluvert af hafís, en svo var ekki, og eftir mælingum
á athugunarstöðvum Veðurstofunnar var yfirborðshiti sjávarins
hér við land veturinn 1935—’36 ekki heldur minni en venjulega.
En þess hefir verið getið um sumt af rekavið þeim, sem
hingað rak, að hann væri eigi ísnúinn, og bendir það á, að lítill
ís hafi verið á þeirri leið, sem viður þessi fór, enda er kunnugt,
að íslítið hefir verið venju fremur hér í norðurhöfum á undan-
förnum árum. Hafstraumar þessir munu því hafa orðið mestir
í auða sjónum utan við ísbreiðuna og þess vegna ekki borið haf-
ís að ströndum landsins, og af þeim sökum eigi heldur lækkað
yfirborðshita sjávarins hér við land svo að nokkru næmi.
Árnar í Síberíu munu eigi, svo að nokkru nemi, bera við
til sjávar nema að sumarlagi, og því er eigi að búast við því, að
mikill viðarreki standi mjög lengi yfir í einu hér á landi, jafn-
vel þótt hafstraumarnir hafi um alllangt skeið verið hagstæðir
fyrir viðarrekann. Getur því verið að svipaðir hafstraumar hafi
verið hér fyrr á árinu 1935, þótt eigi væri þeim samfara mikill við-
arreki fyrr en undir árslok. Árni Friðriksson fiskifræðingur hefir
í Ægi 1935 látið þá skoðun uppi, að sumarsíldin við Norður-
land kæmi þangað norðan úr höfum úr hringferð til Noregs og
fylgdi mjög hafstraumunum. Sumarið 1935 var síldargangan
við Norðurland óvenjuleg að því leyti, að síldin kom snemma
og fór fyrr, en hún á venju til. Gæti þetta bent á það, að haf-
straumarnir norðan við Island hafi verið óvenjulega hraðfara
sumarið 1935, og síldin, sem með þeim hefir borizt, þess vegna
orðið á undan áætlun.
Þorkell Þorkelsson.