Náttúrufræðingurinn - 1937, Page 28
70 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
HiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiii
Jand á svæðinu frá Atlastöðum til Breiðuvíkur á Tjörnesi. Töl-
urnar í svigum segja til þess, hvenær flöskurnar fundust. Tvær
fundust síðari hluta desembermánaðar 1935, 4 í janúar 1936,
3 í febrúar, ein í marz, 3 í apríl og loks ein snemma í júní. Auk
þessa er mér kunnugt um tvö flöskuskeyti, sem hingað bárust
norðan úr íshafi. Annað fannst á Lónsfjöru í Kelduhverfi í jan-
úar 1936, og hafði því verið varpað í sjóinn 17. október 1934
norðaustan við Franz Jósefsland. Hitt fann Sigfús Árnason á
Stöpum á Vatnsnesi 17. febrúar 1936, en því hafði verið kastað
í sjóinn þann 15. júlí 1934 á 75° n. br. við austurströnd Grænlands.
Af ferli rekflasknanna má nokkurn veginn sjá, hvernig haf-
straumarnir við yfirborð sjávarins hafa verið á þessum árum á
því svæði, sem flöskurnar bárust yfir. í fshafinu norður af Síb-
eríu, á svo sem 75°—80° norður breiddar, hefir verið sterkur
austan straumur á yfirborði hafsins, og hefir hann árið 1934—
1935 numið að jafnaði um 414 km. á sólarhring, sem svarar til
rúmum 5 cm á sekúndu hverri. En hinn norðaustlægi og norð-
lægi yfirborðshafstraumur frá Svalbarða til íslands hefir verið
um það bil helmingi hraðari síðari hluta ársins 1935, meðal-
hraðinn verið 8 —10 km á sólarhring, eða 10—20 cm á sek.
Það kæmi vel heim við reka flasknanna, að rekaviðurinn,
sem hingað kom veturinn 1935—1936, hafi borizt til hafs eftir
stóránum í Síberíu, Ob, Jenissej og Lena, snemma sumars 1933,
og hafi því verið að velkjast í sjónum í hálft þriðja ár. Reka-
viður þessi mun því hafa fengið óvenjulega fljóta ferð hingað
eftir því sem um er að gera fyrir þess háttar ferðalanga. Að
minnsta kosti gerir Þorvaldur Thoroddsen ráð fyrir því, að
rekaviðurinn frá Síberíu sé mörg ár að flækjast innan um ís í
norðurhöfum. Þykir mér sennilegt, að í þetta sinn hafi þessir
hafstraumar verið venjufremur hraðskreiðir, að minnsta kosti
hinn austlægari hluti þeirra á milli íslands og Svalbarða, og á
það bendir einnig það, að tiltölulega margar af þessum rúss-
nesku rekflöskum hafa borizt til Noregs, en þess getur próf.
Wiese. Flöskuskeytið frá austurströnd Grænlands hefir og ver-
ið ári lengur á leiðinni hingað en rússnesku rekflöskurnar frá
Svalbarða, og gæti þetta bent á það, að vesturhluti hafstraums-
ins fyrir norðan Island hafi verið miklu seinni í förum en aust-
urhluti hans. Þó getur verið, að flaska þessi hafi Jagt lykkju á
leið sína, og það hafi tafið hana um ár.
Orsakirnar til hins mikla viðarreka geta verið tvær. Ann-