Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1948, Page 4

Náttúrufræðingurinn - 1948, Page 4
98 NÁTTÚRUFRÆfilNGURINN nýjar jurtir og lírna hinar þurru upp allt sumarið til hausts. Að sjálfsögðu safnaði ég jurtum aðallega á og í Hornbjargi austanverðu og í Látravík, en fór auk þess töluvert um svæðið vestan frá Hæla- vík austur að Barðsvík, bæði á hálendi og láglendi. Svæðið er merkt svart á kortinu, sem fylgir þessari grein. F.n þó að ætla megi, að ég hafi náð flestum þeim tegundum, sem vaxa í Látravík, er í liæsta Vestfirðir. Svœðið, sem hér er skrifað urn, er merkt svdrt. máta sennilegt, að sjáldgæfar jurtir leynist einhvers staðar á þessu stóra svæði. Jurtirnar, sem ég sá með með mínum óæfðu augum sumarið 1932, ákvarðaði ég oftast úti í náttúrunni. En töluvert af safninu var Jró ýmist ógreint eða rangt ákvarðað um haustið, sökum skorts á góðum myndum í ,,Flórunni“ og of strembinna skýringa hennar. Við fluttumst aftur til Isafjarðar um haustið, og síðan hef ég ekki komið til Hornstranda. Én nú fengum við í Gagnfræðaskólanum nýjan kennara, sem lyfti hulunni af ótal leyndardómum fyrir okkur, engu síður en Haraldur hafði gert árið áður. Þessi nýi kennari var Steinn Emilsson, námafræðingur, og til Iians fórum við, ef við vildum vita meira um sitt livað. Við nokkrar tegundir jurta, sem ég hafði ekki greint, fékk ég aðstoð hjá Steini, en slatti af safninu varð þó að liggja ógreindur og óupplímdur, þar til ég hafði aflað mér meiri þekkingar. Haustið 1933 fluttumst við aftur til Reykjavíkur. og skommu eftir komuna þangað sendi ég lista yfir Jrær jurtir, sem ég vissi um í

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.