Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1948, Page 6

Náttúrufræðingurinn - 1948, Page 6
100 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN vandgreindar tegundir hafa hæglega getað leynzt augum mínurn óvönum, svo að. eitthvað af algengum eða sjaldgæfum tegundum eigi eftir að finnast á svæðinu síðar meir. í listanum eru latnesku nöfnin höfð fyrst, en þau íslenzku síðast, og er í því farið eftir ákveðnum óskunt í alþjóðareglum um nafn- giftir jurta. Tegundunum er auk þess raðað í sömu röð og í flór- um, en ekki í stafrófsröð, eins og stundum hefur illu heilli tíðka/.t í íslenzkum listum. Latnesku nöfnin, sem notuð eru, eru hin sömu og nú eru talin réttust samkvæmt alþjóðareglum, en samkvæmt þeim ber ætíð að nota elzta löglega birta nafnið á hverri jurt, en þó engin nöfn eldri en frá tímum Linnés. Flest þessara nafna eru notuð í „íslenzkum jurtum", en á örfáum stöðum eru þau þó önnur, og stafar það oftast af því, að síðari rannsóknir hafa leitt í Ijós, að nöfnin, sem jtar voru notuð, eru samheiti á jurtum, sem áður hafa verið skírðar annað. Islenzku nöfnin eru þó óbreytt, svo að með þeirra aðstoð geta menn auðveldlega séð, um livaða tegund í „ís- lenzkum jurtum“ er að ræða. Gróðurinn í nágrenni Hornbjargs ber það oftast greinilega með sér, að loftslag er þarna hráslagalegt og stormasamt. Skógar eru þar engir og hafa sennilega aldrei verið nema kjarr, og á fjöllum vex ekkert nema í skjólgóðum lautum. En Jiótt jurtirnar lifi við i 11 kjör víðast hvar á hinu rannsakaða svæði, eru þar nokkrar vinjar, sem ókunnugir myndu varla telja hugsanlegar norður undir lieim- skautsbaug. í skjóli bjarganna, þar sem sauðkindin kemst ekki að og vindarnir eru litlir, vex oft hávaxið stóð af grastegundum, hvönn- um, burknum, steinbrjótum, burnirót, fíflum og undafíflum og mörgum jurtum öðrum. Látravík og Hrolleifsvík eru hrjóstrugustu víkur strandlengjurinar, en í Barðsvík og innanverðri Hornvík er gróður bæði stórvaxinn og fjölbreyttur með afbrigðum. Blómstóð Barðsvíkur stendur gróðrinum á Jiekktustu stöðum norðanlands og sunnan sízt að baki, og sennilega eru Jrar saman komnar fleiri leg- undir á jafnstórum fleti en í hinu fornfræga Slúttnesi í Mývatni, Jiótt að sjálfsögðu vanti trén. Þar fann ég hófsóleyjar og blágresi með blöðum meira en 30 sentímetra að þvermáli, og sóleyjar og grasið náðu allvíða 15 ára hnokka í mitti.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.