Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1948, Qupperneq 46

Náttúrufræðingurinn - 1948, Qupperneq 46
140 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN var hann allur korninn í ka£ ásamt öllum stóru uppsprettunum, sem mynduðu hann. Aðeins lilla lindin upjpi á gilbarminum sást enn. Nýi hraunfossinn i Stóraskógsbotnum 9. nóv% 19-17. Horft austur. Iifstu botnarnir voru litlu ofar en f>ar, sem syðsla hraunkvislin hverfur á kafla i gilinu. Botnafjall fjœrst til hcegri. Um leið og hrauntungan snerti fossinn, Iieyrðist hvinur af ákafri suðu, og livít gufa gaus upp, en lækurinn þornaði fyrir neðan, eins og snöggstíflaður. Gufustrókurinn var horfinn eftir 10—20 sekúnd- ur. Hann kom aðeins upp þar, sem vatnið fossaði út á rauðglóandi hrauntunguna. Aftur á móti rauk aðeins upp óveruleg gufa þar, sem liraunbrúnin fikraði sig áfram yfir polla í farveginum fyrir neðan. Og úr fossinum liætti óðar að rjúka, er fremsta liraunbrúnin var komin fram hjá. Eftir það var því líkast sem vatnið fossaði niður í venjulega urð og sigi í hana. Kl. 8 hafði hrauntungan lengzt fulla 100 m eftir lækjarfarveginum niður lrá fossinum, og var þá greinilega að draga úr hraða hennar, enda má heita, að þarna sé komið niður úr brekkunni. Auk stærstu upptakakvíslar lækjarins, sem nú var öll horfin undir hraun, runnu nú tveir litlir þverlækir úr fjallinu að hrauninu. Þeir stífluðust ekk- ert upp, lieldur runnu viðstöðulaust inn undir hraunbrúnina. — Ekkert af vatnsmagni allra þessara lækja — urn 30 1 /sek. — kom aftur út undan hrauninu, meðan ég stóð þarna við. En laust eftir kl. 8 lagði ég af stað út að Næfurholti til gistingar.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.