Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1949, Side 31

Náttúrufræðingurinn - 1949, Side 31
GRENJALÍF Á MVVATNSFJÖLLUM 123 þarna liefði mér missýnzt, og vissi þó, að mæður hjá yrðlingum sín- um géta stundum verið þögular eins og gröfin, þó að þeim verði miklu oftar á að láta heyra til sín, eins og tröllin sögðu: „Manna- þefur í helli mínum!“ Þegar ég fór að atliuga betur munnana og umhverfi þeirra, fann ég í nokkrum stöðum lausan mosa og lyng, er benti til þess, að þai'na hefði eitthvað verið grafið og geymt. Og mér til mikillar undrunar rakst ég á hvorki meira né minna en fjóra hálfvaxna steinklöppu- unga, saman klessta og hálfþurra, í skorningi sunnan undir þúfu nálægt þeim munna, er mest hafði verið gengið um. Sennilega var það húsbóndinn, er þarna hafði dregið björg í búið, en frúin tekið við og gengið frá henni. Mjög skammt hlaut að vera um liðið, síðan þetta liafði verið gert, því að ungarnir voru rétt að byrja að maðka. En þetta kom mér í hreinustu vandræði, jvví að svona lostæta bita ltafði ég aldrei fyrr hitt úti á greni, þar sem yrðlingar voru farnir að stálpast. Ég sætti mig þó við þá skýringu, að þeir væru enn blindir, þótt sjaldgæft sé, níu vikur af sumri. Ég geng næst á grenið sunnan og vestan við klettana, og var þar mikill umgangur í öllum munnunum, en sýnilega eldri. Fann ég þar tvo þúfutittlingsunga, mikið vaxna. Þeir voru alveg huldir mosa og lyngi. Annars varð ég einskis var þar heldur. Ég ákvað nú að hafast þarna við um nóttina. Á Austari-Brekku, Jiar sem vegurinn liggur, beið Guðmundur son- ur minn enn hjá jeppanum okkar. Nú gaf ég honum merki um að koma á móti mér með nauðsynlegan útbúnað, sem áður var til tek- inn. Við atliuguðum báðir grenið mjög nákvæmlega, en þó með gætni, og fundum í viðbót marga unga, mest þúfutittlinga, flesta mikið vaxna og mjög nýlega. Einn næstum iieygan þrastarunga fundum við grafin á sama hátt, en hann var nokkurra daga gamall. Sem sagt var þarna heilt forðabúr af dýrindis krásum fyrir refabörn. Nlí er þar aftur komið sögunni, er ég sit einn eftir í skugganum í litla bollanum stmnan undir Greniskletti og sé jeppann okkar líða suðLir Austari-Brekku og hverfa í átt til Mývatnssveitar með okkar ágæta ieiðsögumann, Jón Pétur Þorsteinsson, bónda í Reykjahlíð. Ég heid vörð um grenismunnann austan við, þar sem mér hafði sýnzt tófan liverfa milli kindanna, og einnig gaf ég gætur að greninu sunnan og vestan við klettinn. Þangað var fulllangt byssufæri. Mest braut ég heilann um Jrað, hvernig gæti staðið á þessum óvenjulega

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.