Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1954, Síða 15

Náttúrufræðingurinn - 1954, Síða 15
SÉÐ FRÁ ÞJÓÐVEGI 9 stöðvar, en Jakob bóndi Líndal sýndi fram á það í grein, sem hann ritaði í þetta tímarit árið 1936, að þessi víðáttumikla hólaþyrping er bergskriða, hlaupin fram úr Vatnsdalsfjalli. Mun mörgum þykja það ótrúlegt, er þarna fara um, en eftir að hafa skoðað svæðið úr lofti, sannfærðist ég fyrir mitt leyti fyllilega um það, að skoðun Líndals er rétt. Sú bergskriða, sem næst verður á vegi, er næstum eins merkileg og Vatnsdalshólar, en það er skriða, sem hlaupið hefur fram úr Langa- daslfjalli sunnan Kollubergs niður á Langadal, milli bæjanna Fremsta- gils og Geitaskarðs. Er ekið út á skriðuna, þegar kemur um 1 km suður fyrir Fremstagil, og er hún þar um 2 km breið. Á um kíló- metra breiðu svæði hefur skriðan hlaupið þvert yfir dalinn. Sé horft úr bílnum til hægri, þegar elcið er suður yfir skriðuna, blasir við allhátt uppi í hlíðinni vestan Blöndu þyrping af hólum, mörgum strýtumynduðum, og ná þeir alveg upp undir Svínvetningabraut suð- ur af Köldukinn, en niður af nýbýlinu Grænuhlíð. Líkjast þessir hól- ar jökulgörðum, en ég hygg þá raunverulega vera framjaðar áður- 2. mynd. Séð af Svínvetningabraut til austurs yfir Köldukinnarhóla til Langadals- fjalls. — View ío the E from Svínvetningabraut over Köldukinnarhólar and towards Langadalsfjall. — Ljósm. S. Þórarinsson.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.