Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1954, Blaðsíða 37

Náttúrufræðingurinn - 1954, Blaðsíða 37
NYJUNGAR OR GRÖÐURRlKI ISLANDS 29 undin lá ónafngreind í grasasafni mínu þangað til s.l. ár.) Jurt þessi óx að vísu þarna á einum stað, en það var mikið af henni, og var auðséð, að hún hafði vaxið þarna i nokkur ár, virtist hún vera vel á vegi með að nema hér land. Hvort hún vex þarna enn, er mér ekki kunnugt um, en ég tel það þó liklegra, hafi enginn raskað ró hennar. Sumarið 1946 fann Steindór Steindórs- son þessa sömu tegund i gróðrarstöðinni í Vaglaskógi, og telur hann, að hún muni sennilega vera að ilendast þar. (Sjá Náttúrufr. 1. h. 1952). Skógarflækjan er fjölært krossblóm, hefur skipt blöð og smáar, gular krón- ur. Hún getur orðið allstórvaxin og er slæmt illgresi sums staðar erlendis; er algeng i mörgum löndum Evrópu og nær útbreiðsla hennar alla leið til Norður-Afriku. Frá Evrópu hefur hún flutzt til Norður-Ameriku og er viða þar til óþurftar i ökrum og görðum. 33. Sagina subulata (Sw.) Presl. Broddkrækill. Heydalur NV. 3/8 1953. Öx víða fram með reiðgötunni norðanbæjar. Næsti fundarstaður er Eyri í Isafirði. 34. Saxifraga Hirculus L. var. alpina Engl. Gullbrá. Vik i Mýrdal SA. 14/7 1953. 35. Sedum annuum L. Skriðuhnoðri. Látraskógur við Mjóafjörð NV. 30/7 1953. Hefur áður fundizt að Eyri í Isafirði og við Skutulsfjönð. Aðrir fundarstaðir ekki kunnir i Isafjarðarsýslunum. 36. Sparganium angustifolium Michx. Trjónubrúsi. Hundadalssíki í Miðdölum 2/8 1949. Stöngullengd 35 cm. Mikið. Áður óþekkt frá Vesturlandi. 37. Trifolium dubium Sibth. Músasmári Laugarás í Reykjavik 10/8 1950. Einær slæðingur, sem líklega er ko»nnn hingað til landsins i hænsnakorni. Blóm þessarar jurtar eru í kollum, ljósgul að lit. Ekki endurfundin i sumar. Tegund þessi finnst víða, bæði sem villijurt og sem slæðingur, allt frá Suður-Skand- inavíu til Kákasus. Hefur borizt frá Evrópu til Norður Ameríku á siðari timum. 38. Valeriana sambucifolia Mikan fil. Hagabrúða. Grenhjalli i Laxárdal í Horna- firði, 90 m yfir sjó, 20/8 1936. Öblómguð. Eintök þau, er ég safnaði, voru á sínum tima ákvörðuð sem V. officinalis (garðabrúða), enda litu margir grasa- fræðingar þá á V. sambucifolia í hæsta lagi sem deilitegund (Subspecies) af V. officinalis. Nú lita flestir svo á, að hér sé um 2 aðgreindar tegundir að ræða, og er þá farið bæði eftir litþráðafjölda og ytri einkennum. Þó vilja fróð- ustu menn i þessum efnum halda þvi fram, að öll tegundareinkenni séu hald- laus nema litþráðafjöldinn. En það hygg ég ekki vera nema stundum. Oft eru ytri einkennin svo glögg, að ekki verður um villzt og eru Hornafjarðar- eintökin gott dæmi um það. Á þeim eru blnðpörin aðeins tvö, og smóblöðin með fáum grófum tönnum. Endasmáblaðið er breitt, greinilega stærra en hin smáblöðin. Aftur á móti er ég í vafa um Valeriana-eintök, er ég safnaði i birkikjarri í Svínahlið við Þingvallavatn sumarið 1951. Þau hafa 6—7 smá- blaðapör, sem ýmist eru heilrend eða með fáeinum grófum tönnum. Enda- smóblaðið eilítið lengra og breiðara en hin smáblöðin. Stöngulmyndun var ekki hafin. Tenning blaðanna, einkanlega endasmáblaðsins, minnti ó V. sambuci- folia, en blaðparafjöldinn ó V. officinalis. Um útbreiðslu hagabrúðunnar hér ó landi er enn allt á huldu. Garðahrúðan hefur á hinn bóginn verið talin vaxa hér og hvar um SA., S. og SV. hluta landsins. Á öllu þessu svæði þyrfti nókvæm söfnun eintaka að fara fram, svo að hægt verði sem fyrst að ganga úr skugga um, hvað er hvað í þessum efnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.