Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1956, Page 6

Náttúrufræðingurinn - 1956, Page 6
116 NÁTTÚ RU FRÆÐlN G U R1N N Bæði blágrýtismyndunin og móbergsmyndunin eru að langmestu leyti upphlaðnar af eldgosum, og efnasamsetning bergtegundanna má heita söm í þeim báðum. Munurinn felst í gerð þeirra: Blágrýt- ismyndunin er mjög reglulega upp hlaðin úr láréttum eða lítt höll- um blágrýtislögum, sem hvert um sig er að uppruna eitt hraunflóð. Móbergsmyndunin er aftur á móti að miklu leyti úr sundurlausum gosefnum, sem hafa hrúgazt upp á eldstöðvunum, h'mzt saman og harðnað að bergi. í henni er einnig mikið af hraunlögum, en þau eru miklu margvíslegi'i að gerð og óreglulegar fyrir komið en í blá- grýtismynduninni. Þessi munur kemur greinilega fram í landslaginu. Það er með allt öðrum svip á svæðum blágrýtismyndunarinnar, en innan móbergsbeltisins, rétt eins og þar hefðu verið að verki tveir byggingarmeistarar, sem fylgdu hvor sinni stefnu í listinni. Hérna í höfuðborginni blasa við okkur ágæt dæmi um hvort tveggja: Akra- fja.ll, Skarðsheiði og Esja í norðri eru fulltrúar blágrýtismyndun- arinnar. Þessi fjöll eru með stórskornum en einföldum dráttum, útlínur þeirra eru beinar eða jafnsveigðar á löngum köflum, en skarpar brúnir á milli. En öll fjöllin, sem ber við himin í austri og suðri, frá Hengli til Fagradalsfjalls, eru móbergsfjöll. Þau eru tind- ótt og skörðótt, útlínurnar hlykkjast víða upp og niður án greini- legrar reglu. Blágrýtisfjöllin eru stílhreinni smíði, en móbergsfjöll- in hafa fjölbreytnina fram yfir. BLÁ GRÝ TISM YND UNIN. I öllum héruðum blágrýtismyndunarinnar, austan lands, vestan og norðan, eru hlíðar fjallanna þverröndóttar til að sjá. Þar liggur hvert hamrabeltið yfir öðru, en brattaminni hillur á milli. Hamra- beltin geta legið óslitin um margra kílómetra veg. Víðast hvar hall- ar þeim lítið eitt inn í landið, svo að sami hamar rís hærra í utan- verðum dal en innanverðum. Til eru þó margar staðbundnar und- antekningar frá þessu. Eins og ég gat áður, eru þessir hamrar úr blágrýti, og hver þeirra er að uppruna eitt hraunflóð, sem breiðzt hefur út og storknað á flatlendi. Hraun blágrýtismyndunarinnar voru upphaflega blöðrótt og sundursprungin eins og hraunum er títt, en fyrir elli sakir eru nú flestar loftbólur þeirra og aðrar glufur fylltar eða hálffylltar aðkomuefnum, sem flest eru hvít að lit eða tær. Þau hafa setzt til úr

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.