Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1956, Blaðsíða 52

Náttúrufræðingurinn - 1956, Blaðsíða 52
Ritíreán M. G. RUTTEN AND R. W. BEMMELEN: The Daula, a Rhyolitic Intrusion in Western Iceland. Geologie en Mijnbouw. 17e jaargang —Nr. 6. Juni 1955. Bls. 143—160, 8 textamyndir og 10 myndasíður. Den Haag 1955. Baula í Norðurárdal vakti snemma athygli jarðfræðinga, enda er fjallið áber- andi, þar eð það sker sig mjög úr umhverfi sínu bæði um lit og lögun. Baula er, sem kunnugt er, líparít(rhyolit)-fjall og er Si02-hlutfall bergsins um 74%. í jarðfræði Guðm. G. Bárðarsonar er okkur kennt, að Baula sé forn hraun- gúll, sem myndazt hafi í einu gosi, af líparíthraunleðju, er hafi verið svo seig- fljótandi, að hún hafi ekki náð að breiðast út frá uppgöngunum. Sumarið 1950 dvöldu tveir hollenzkir jarðfræðingar M. G. Rutten og R. W. Bemmelen, við jarðfræðirannsóknir á íslandi, aðallega á Mývatnsöræfum. En á leiðinni norður héldu þeir kyrru fyrir í Norðurárdal nokkra daga og rann- sökuðu Baulu, og Rutten bætti síðan nokkuð um þær rannsóknir, þegar hann dvaldi hér að nýju sumarið 1953. Nú hafa þeir í félagi sent frá sér ofangreinda ritgerð og er þar að finna ítarlega lýsingu á Baulu og Litlu Baulu og um- hverfi þeirra. Niðurstöður þeirra félaga eru í stuttu máli eftirfarandi: Baula og Litla Baula eru myndaðar úr sömu bergkviku og eru jarðfræðilega séð jafn gamlar. Svipaðs aldurs og úr sömu bergkviku eru líparítgangar þeir, sem finna má í blágrýtinu liið næsta þessum tveim fjöllum. Um aldur Baulu verður ekki annað sagt, en að hún er yngri en blágrýtið kringum hana, en eldri en síðasta jökulskeið kvarteru ísaldarinnar. Hugsan- legt er, að toppurinn á Baulu hafi staðið upp úr meginjökli síðasta jökulskeiðs, en hlíðar fjallsins eru jökulsorfnar og líklegast, að fjallið hafi verið alveg hulið jökli. Ekki verður skorið úr því með neinni vissu, hvort Baula er leifar af hraun- gúl eða bergeitli, þ. e. hvort líparítkvikan hefur komizt upp á yfirborð jarðar eður ei. Líklegt er, að Litla Baula sé leifar (undirlag) fornrar eldstöðvar. Rúmsins vegna birti ég þessar niðurstöður athugasemdalaust, enda vart á mínu færi að gagnrýna hina bergfræðilegu röksemdafærslu, sem virðist byggð á gaumgæfilegum athugunum. En ekki er ég sannfærður um réttmæti þeirrar skoðunar Hollendinganna, að rákir þær hinar breiðu, sem sjá má í suðaustur- hlíðum Baulu, séu einskonar jökulrákir. Halli þeirra (12°) virðist mér full mikill til að svo sé. Til að sjá minna þær meir á jaðarrásir, en meira get ég ekki um þær sagt. Þarna er auðsæilega nokkurt rannsóknarefni. Sigurður Þórarinsson. LEIÐRÉTTING. í síðasta hefti Náttúrufræðingsins stendur á bls. 108 fyrirsögnin: íslenzkir rannsóknarleiðangrar 1956, en þar á að standa: íslenzkir rannsóknarleiðangrar 1955. Ritstjórinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.