Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1956, Blaðsíða 10

Náttúrufræðingurinn - 1956, Blaðsíða 10
120 NÁTTÚ RUFRÆÐIN GURIN N miljónir ára, þá styðst það eingöngu við aldursgreiningu á erlendu bergi mynduðu á sama jarðsöguskeiði, þ. e. eósen. Enn he£ ég aðeins rætt um aðaluppistöðu blágrýtismyndunarinn- ar þ. e. blágiýtishraun með meiri eða minni millilögum. Þetta eru ennfremur elztu berglög myndunarinnar. En eftir að þau höfðu hlaðið upp, lag fyrir lag, geysimikla landspildu, sem náði ofansjávar langt út fyrir núverandi strendur landsins og skipti kílómetrum að þykkt, þá tróðst víða inn í hana nýtt bráðið berg (bergkvika) neðan úr djúpum jarðskorpunnar og storknaði í ýmiss konar flikki, sem við köllum innskot. einu nafni. Innskotin eru margvísleg að stærð, lögun og bergtegundum og heita eftir því ýmsum nöfnum. Allra venjulegustu innskotin eru blágrýtisgangar. Þeir eru plöt- ur að lögun, eins og hraunlögin, en sá er munurinn, að gangarnir standa á rönd og skera um þvert hraunlög og millilög. Oft eru þeir harðari fyrir en þessi lög og skaga þá fram sem bríkur og snasir í hlíðum eða hleinar í fjörum. Á stórum svæðum liggja flestir gang- ar í sömu stefnu. Á Vestfjörðum mun aðalstefna þeiiTa vera frá norðaustri til suðvesturs, en á Austfjörðum frá norðri til suðurs. Vera má að sumir blágrýtisgangarnir séu gamlar gossprungur og eitthvað af blágrýtishraununum sé frá þeim runnið, en hvergi hafa þó hingað til fundizt óslitin tengsl milli gangs og hraunlags. Blágrýtisfjöll eru flest með dimmu yfirbragði og litlum litbrigð- um, en hér og þar á blágrýtissvæðunum getur að líta bjarta flekki í hlíðunum eða jafnvel heil fjöll, sem skera sig fagurlega úr að birtu og litskrúði. Þar kemur fram bergtegundin liparít eða aðrar henni skyldar. Við getum líka kallað þær einu nafni Ijósgrýti. Ég skal nefna til dæmis nokkur líparítfjöll eða fjöll með stórum líparítskellum, sem blasa við úr fjölmennum byggðum og eru öll innan blágrýtis- myndunarinnar: Móskarðshnúkar við austurenda Esjunnar, Baula í Borgarfirði, Súlur í Eyjafirði, Hvítserkur við Borgarfjörð eystra og Ketillaugarfjall í Hornafirði. Mestur hluti líparítsins hefur ef- laust myndazt sem innskot og storknað neðanjarðar. Stærstu lípar- ítbreiðurnar, einkum á Austfjörðum, eru margra kílómetra að þvermáli. En þar mun oftast um mörg innskot að ræða, sem liggja þétt saman. Mörg þeirra eru aðeins gangar og óreglulegar æðar, sem hríslast um blágrýtismyndunina. Allt þetta líparít eða ljós- grýti, sem storknaði neðanjarðar, hefur þá fyrst komið í Ijós á yfir- borði jarðar, er hin bergeyðandi öfl, þau sem felast í veðrum og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.