Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1957, Page 11

Náttúrufræðingurinn - 1957, Page 11
PÁLMI HANNESSON 167 gild í stað stórritgerðar. Hún var vélrituð og hefur ekki birzt á prenti, en ýmsir fuglafræðingar hafa stuðzt við hana síðar (Fischer, Timmermann). Praktiska verkefnið, sem Pálmi fékk á meistara- prófi, var að kryfja afturfót kanínunnar (lepus cuniculus L) og lýsa vöðvum hans, æðum, taugum og beinum. Lausn þessa verkefnis, bæði ritgerðin og teikningarnar, sem henni fylgdu, þótti svo snjöll og nákvæm, að þeir vandlátustu (C. M. Steenberg), sem um hana dæmdu, notuðu hana til fyrirmyndar, þegar um þetta efni var fjallað næstu ár. Meistaraprófinu lauk Pálmi með lofi í janúar 1926 og fluttist að því loknu jafnskjótt heim, gerðist kennari í náttúru- fræði við Gagnfræðaskólann á Akureyri. Gegndi hann því embætti til ársins 1929, er hann var settur rektor Menntaskólans í Reykja- vik af þáverandi menntamálaráðherra Jónasi Jónssyni. Var hann skipaður í embættið 4. september 1930 og gegndi hann þeirri stöðu til æviloka, eða lengur en nokkur annar hafði gert. Þegar Pálmi tók við rektorsembættinu var hann 31 árs, og mun hann hafa verið yngstur þeirra manna, sem skipað hafa það virðu- lega embætti. Við skólann kenndu þá ýmsir frábærir kennarar, eldri en Pálmi og reyndir í embættum. Sóttu þeir flestir um stöðuna á móti Páhna, og svo fannst ýmsum, að einhverjum þeirra hefði borið staðan fremur en honum, ungum og óreyndum. Nokkur málastyr varð um veitinguna og má geta nærri, að auðveld hefur viðtaka embættisins ekki verið hinum unga rektor. Skulu þau mál ekki rakin hér til hlítar. En skapfesta Pálma, karlmennska hans, skiln- ingur og lipurð stóðst þá prófraun. Ekki er örgrannt um að nokk- urrar beiskju gæti til sumra kennara skólans í fyrstu skólaskýrsl- unni, sem frá Pálma hendi kom, en sú beiskja hvarf fljótt og ágæt samvinna tókst yfirleitt með honum og kennurum skólans, sem treystist því meir, sem árin liðu. Að sjálfsögðu kenndi Pálrni náttúrufræði, og þeir, sem kennslu hans nutu, minnast hans sem afburða kennara. Rödd hans var hreimmikil og hlý og framsetning öll skýr og skemmtileg. Hann hafði þann liátt á kennslu sinni, að hann lét nemendur rifja upp námsefnið við og við með fáum skriflegum spurningum í lok kennslustundar. Hann gat krafizt mikils af nemendum sínum og hann var vandlátur um háttvísi skólanemenda og ástundun, hann krafðist stundvísi af þeirn og gekk ríkt eftir að þeir færðu gildar ástæður fyrir fjarvistum sínum. En hann var líka manna skilnings- beztur á örðugleika þeirra og greiddi jafnan úr vandamálum þeirra,

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.