Náttúrufræðingurinn - 1957, Qupperneq 42
198
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
til hinna neðstu nemur því li. u. b. 1 sm á ári. Mór þessi virðist í
engu frábrugðinn mó annarra mómýra á landinu. Á tímabili er
Seltjarnarmýrin meira að segja svo þurr, að birki gat þrifizt í lienni
svo sem birkilurkar og næfrar í mónum sanna. Mór var enn að
myndast í Seltjörn, er svarta öskulagið k féll, en það er að öllum
líkindum komið frá Kötlu og fallið fyrir 4—5000 árum. Ofan þessa
öskulags tekur að bera á frjóum plantna af maraættinni, en frævun
þeirra fer nær eingöngu fram í vatni, svo að líklegt er, að sjávar-
yfirborð sé þá þegar tekið að hækka að nýju, en Jrað myndi aftur
leiða til hækkaðs jarðvatnsyfirborðs, svo að í stað mýrarinnar í Sel-
tjörn hefði myndazt tjörn. Ekki vottar fyrir öskulaginu ljósa, sem
líklega er sama öskulagið og nefnt er „efra ljósa lagið“ eða H:1 í rit-
gerðunt Sigurðar Þórarinssonar, og er samkvæmt C14-ákvörðun um
2700 ára gamalt og komið frá Heklu. Ástæðurnar til þessa geta
verið tvær:
1. Sjór hefur þegar verið kominn inn yfir Selijörn, ]rá er öskulag
ið H3 féll.
2. Mórinn með öskulaginu H3 hefur orðið briminu að bráð síðar,
er sjórinn gekk inn í Seltjörn.
Um livora ástæðuna sé að ræða skal eigi sagt að sinni, en frjó-
línuritið úr fjörumónum gefur til kynna, að fyrir hér um bil 3000
árum hafi enn verið að myndast mór í Seltjörn.
SUMMARY
I’ollenanalysis of the Submerged Peat in Seltjiirn
by Thorleifur Einarsson.
The writer presents two pollen diagrams, one from tlie Selljörn peat the
other from a peat bog, Sogamýri, 8 km E of Seltjörn and 30 m above sea level.
The connection of the two diagrams is made i. a. with the help of tephra layers
found in both sections. Layer G is probably the same as Thorarinsson’s layer
Vllb, the age of which is about 1200 years, the second light layer found in tlic
Sogamýri section is probably the same as Thorarinsson’s layer H3, age about 2700
years. 'I'lie age of the basaltic layer k is approximately 4000—5000 years. From
the diagrams and some other not yet publishecl the writer concludes that the
highest shore line in the Reykjavík area is at least 12000—14000 years old. Hc
also states that the Seltjörn peat is a normal bog peat and birch wood has
grown there. The absence af layer H3 (2700 years old) in the Seltjörn peat is
either due to the peat having been submerged before that layer fell or due to
a later abrasion of the peat by the sea.