Náttúrufræðingurinn - 1970, Side 43
NÁTT Ú R.U F RÆÐINGURINN
37
inu. Endur þessar voru mjög styggar og flugu þær stuttu síðar í
norðurátt yfir Borgarvík. Ekki hefur gargandar oftar orðið vart á
svæðinu. Tel ég ekki líklegt, að tegundin verpi þar.
Skeiðönd (Anas clypeata). Skeiðönd sást í fyrsta sinn í Skógum
5. júní 1966. Það var par, sem var í sífelldum eltingarleik og elti
blikinn kolluna. Nokkrum dögum síðar sáust 3 skeiðendur (2 blikar
og 1 kolla) á flugi í eltingarleik. Næst sást svo skeiðönd 2. júní 1967
og var það stakur bliki á flugi. Þá sáust 2 blikar 3. júni 1967, en
síðan skeiðandarpar þrem dögum síðar. Svo sást skeiðandarbliki 20.
júní 1968, en um kvöldið sama dag fann ég skeiðandarhreiður, það
eina sem ég hef fundið í Skógum. í hreiðrinu voru 10 egg (2).
Ondin var mjög vör um sig, þannig, að í hvert skipti, sem ég kom
að hreiðrinu eftir að ég kom fyrst að því, var kollan alltaf farin af
og hafði hún breitt yfir eggin. Það var ekki fyrr en ég kom að
hreiðrinu í snjókomu, að kollan lá á.
Duggönd (Aythya marila). Duggönd var algeng í Skógum. Er
fjöldi varppara áætlaður 30. Alls fundust 47 hreiður, flest árið
1969 eða 21 talsins. Venjulega hef ég verið svo snemma á ferðinni,
að kafendurnar hafa lítið verið byrjaðar að verpa. Allmörg hreiður
dugganda eða skúfanda fundust öll athuganaárin, sem ekki urðu
greind til tegundar, enda er ekki unnt að greina milli eggja þessara
tegunda nema kollan sjáist við hreiðrið. í þessum ógreindu hreiðr-
um voru alltaf fá egg (1—3), og voru þau undantekningarlaust köld.
En endur hafa þann hátt á að verpa nokkrum eggjum, áður en þær
taka að liggja á. Er því kollan ekki nema stutta stund á hverjum
sólarhring við hreiðrið, en endur verpa yfirleitt aðeins einu eggi
á sólarhring. Hjá 25 fullorpnum duggöndum var eggjafjöldinn þessi:
6 egg í 2 hreiðrum, 7 egg í 8 hreiðrum, 8 egg í 6 hreiðrum, 9 egg
í 4 hreiðrum, 10 egg í 2 hreiðrum, 11 egg í 2 hreiðrum og 12 egg
í 1 hreiðri. Meðaleggjafjöldi verður því 8,2 egg.
Skúfönd (Aythya fuligula). Skúfönd og duggönd, sem voru
algengustu kafendurnar í Skógum (æðarfugl ekki meðtalinn), voru
með algengustu varpöndunum, en varpparafjöldi skúfanda var 25 á
ári. Elest hreiður fundust árin 1968 og 1969, 14 lueiður hvort ár,
en fjöldi athugaði'a hreiðra var alls 41. Hjá 14 fullorpnum skúf-
öndum var eggjafjöldinn þessi: 7 egg í 2 hreiðrum, 8 egg í 3 lireiðr-
um, 9 egg í 7 hreiðrum og 11 egg í 2 hreiðrum. Meðaleggjafjöldi
verður því 8,8 egg.