Náttúrufræðingurinn - 1970, Síða 44
38
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
Hávella (Clangula hyemalis). Hávella var með sjaldgæfari varp-
öndum á svæðinu. Áætlað er, að árlegur fjöldi varppara hafi verið
7. Aðeins 5 hreiður fundust, tvö með 8 eggjum (útungst. 1 og 3),
tvö með 7 eggjum (útungst. 3 í öðru þeirra, en ekki vitað í hinu)
og eitt með 4 eggjum og 1 unga. Þótt hér sé aðeins urn að ræða 5
hreiður, var reynsla mín sú, að kollurnar við þessi hreiður hafi
verið öllu varari um sig en aðrar andategundir. Voru þær oftast
farnar af hreiðrinu nokkru áður en komið var að því án þess að
sæist til þeirra, og höfðu breitt yfir eggin, sem voru ilvolg, eða þær
sátu sem fastast, svo að við sjálft lá, að hægt hafi verið að snerta
kollurnar á hreiðrinu. Hávellur sáust bæði á Miklavatni og á Borg-
arvík, en sjaldnar inni á sjálfu varpsvæðinu.
Hrafnsönd (Melanitta nigra). Á árunum 1964 til 1966 var
hrafnsönd álíka algeng og stokkönd, þ. e. á svæðinu hafa verið ca.
15 pör. Þegar ég svo kom í Skóga árið 1967 hafði átt sér stað
breyting, þar sem henni hafði fækkað verulega. Það ár sáust aðeins
2 pör 3. júní, 1 par 4. júní og 1—2 pör seinna, eða allmiklu færri
pör en árin áður. Allir þessir áðurnefndu fuglar sáust á sama
svæðinu, rétt ofan við hólmana á mótum Borgarvíkur og Héraðs-
vatna. Gæti það bent til þess, að alltaf hafi verið um sömu fuglana
að ræða. í samræmi við það hef ég áætlað, að ekki hafi fleiri en
4 pör orpið á svæðinu árið 1967. Árið 1968 virtist enn minna um
hrafnsönd en árið áður. Sá ég ekki eina einustu hrafnsönd á svæðinu,
en taldi mig hins vegar finna eitt hreiður með 2 köldum eggjum.
Engra fugla varð þó vart við þetta hreiður. Er ekki útilokað, að
strand olíuskipsins Torrey Canyon við Bretlandsstrendur í marz
1967 hafi átt einhvern þátt í þessari fækkun, en vetrarheimkynni
íslenzkra hrafnsanda munu vera á þeim slóðum. Eins var farið um
hrafnsöndina og aðrar kafendur (æður þó frátalin), að hún var lítið
byrjuð að verpa, þegar athuganir áttu sér stað. Alls fundust 6 örugg-
lega greind hrafnsandarhreiður, en við þau öll sást kollan. Eitt
hreiðrið fannst 12. júní 1964 með 5 eggjum (0). Næstu 3 hreiður
fundust 8. júní 1965, og var eitt þeirra með 2 eggjum og tvö með
7 eggjum hvort (öll útungst. 0). Svo fannst hreiður 10. júní 1966
með 2 eggjum (0) og 1 rauðhöfðaandareggi, en síðasta hreiðrið
fannst árið 1969 og voru 8 egg (1) í því. Einnig fundust nokkur
hreiður, sem að líkindum hafa verið hrafnsandarhreiður, en við
þau sáust engar kollur og eru þau því ekki talin með, enda