Náttúrufræðingurinn - 1970, Side 47
NÁT TÚRUFRÆÐINGURINN
41
1 egg í 1 hreiðri (útungst. 0, ekki fullorpinn), 2 egg í 1 hreiðri (2),
3 egg í 9 hreiðrum (sennilega ekki fullorpið nema í tvö þeirra) og
4 egg í 29 hreiðrum.
Jaðrakan (Limosa limosa). Jaðrakan var algengur í Skógum,
sennilega annar algengasti vaðfuglinn. Alls fundust 8 hreiður, öll
með 4 eggjum (öll meira eða minna stropuð eða unguð). Einnig
fann ég 4 nýklakta unga, sem komnir voru úr hreiðrinu. Jaðrakan-
inn heldur sig mest á mýrunum og öll hreiðrin, sem fundust, að
einu undanteknu, voru í mýrum eða mýrarjöðrum. Sina (gul- og
mýrastör) og alls kyns lauf (t. d. hrís- og bláberjalyngslauf), svo og
mosi, voru algengustu hreiðurefnin. Töluvert af engjarós fannst í
einu hreiðri.
Jaðrakaninn er mjög áberandi, bæði að því er lit og rödd varðar.
Erfitt getur reynzt að finna hreiður lians vegna þess, hve var hann
er um sig. Oftast læðist álegufuglinn af um leið og óboðinn gestur
nálgast hreiðrið, og flýgur ekki upp fyrr en hann er kominn alllangt
frá því. FJesta hef ég séð 26 jaðrakana saman í lióp í Skógum. Voru
það allt fullorðnir fuglar og voru þeir í ætisleit á mýrarfláka úti
undir Borgarvík. Ekkert benti til þess, að þeir ættu hreiður, en ég
hafði orðið þeirra var á þessum sama stað daginn áður.
Stelkur (Tringa totanus). Stelkurinn var algengur í Skógum.
Varpstað velur hann sér lielzt í mýrum og mýrajöðrum. Af 19
stelkslirciðrum, sem fundust á svæðinu, voru 13 í votlendi. Hreið-
ur stelksins voru oftast liulin gróðri. Langalgengasta hreiðurefnið
var sina, en einnig fundust lireiður fóðruð með bláberjalyngslaufi,
mosa, hríslaufi og hrískvistum. Eggjafjöldi í fundnum stelkshreiðr-
um var sem hér segir: 1 egg í 1 hreiðri, 3 egg í 3 hreiðrum, 4 egg í
14 hreiðrum og 6 egg í 1 hreiðri.
Lóuþræll (Calidris alpina). Lóuþræll var varpfugl í Skógum.
Alls fundust 6 hreiður, öll í mýraflákum. Var hreiðrið oftast fóðr-
að með sinu, en einnig voru aðrar tegundir gróðurs í hreiðrun-
um, svo sem lauf af lyngi (t.d. bláberjalyngi), mosi og hríslauf.
Ekki er hægt að segja, að mikið hafi borið á lóuþrælum í Skóg-
um.
Óðinshani (Phalaropus lobatus). Óðinshani var ekki óalgeng-
ur í Skógum, þótt aðeins hafi fundizt 2 hreiður. Oft sáust óðins-
hanar á tjörnum inni á svæðinu og einnig við bakka Borgarvíkur.
Voru þeir gjarnan nokkrir saman. Bæði hreiðrin fundust 8. júní