Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1970, Síða 65

Náttúrufræðingurinn - 1970, Síða 65
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 59 hafna á opinberum grasasöfnum, skrifa flórulista einstakra staða og landsvæða, og þannig safnast smátt og smátt heimildir, sem nota má til að gera eftir útbreiðslukort einstakra tegunda. Heimildirnar eru í fyrstu dreifðar í plöntusöfnum og ótal rit- gerðum, stórum og smáum, sem birtast í tímaritum og bókum. Gildi þeirra kemur ekki að fullu frarn, fyrr en þeim hefur verið safnað saman og unnin úr þeim útbreiðslukort. Þar sem hinar skráðu heim- ildir eru venjulega listar allra plöntutegunda ákveðins staðar eða landsvæðis, þarf að stokka þær upp og draga út alla fundarstaði sönru tegundar á einn stað. Þetta er þrautavinna fyrir mannshug- ann, en tilvalið verkefni fyrir gataspjaldatækni, ef heimildasöfnun er skipulögð eftir vissum reglum. Enda þótt mikið hafi verið unnið að því af íslenzkum grasafræðingum síðan fyrir aldamót að safna heimildum um útbreiðslu plantna, er þó enn svo mikið ógert, að full þörf er á tilraunum til að endurskipideggja heimildasöfnun. Það getur bæði orðið til að nýta betur þá heimildasöfnun, sem framkvæmd er, og einnig auðveldað tæknilega úrvinnslu heimild- anna í framtíðinni. Bretar hafa verið brautryðjendur með nýjungar á þessu sviði síðasta áratuginn. Fyrir fáum árum kom út bók þar með nákvæm- um útbreiðslukortum flestallra tegunda háplantna, byggðum á fOx 10 km reitkerfi. Þetta rit verður án efa ómetanlegt grundvallarrit fyrir margs konar rannsóknir þar í landi um langa framtíð. Raunar mátti heita, að hjá þeim væru síðustu forvöð að skjalfesta náttúrlega útbreiðslu margra tegunda í landi sínu, þar sem þéttbýlið og iðnaðurinn gjörbreytir skilyrðunum fyrir gróðurinn; margar teg- undir hverfa óðum af stórum svæðum og aðrar leggja undir sig landið. Grundvöllur fyrir verki sem þessu er, að til sé heppilegt reitkerfi af landinu, sem fella megi með nægilegri nákvæmni inn á landabréf í stórurn mælikvarða. Reitkerfið þarf að vera afmarkað af beinum línum og jafnstórum, rétthyrndum reitum. Af þeim sökum er ekki heppilegt að nota lengdar- og breiddarbauga, sem mynda bognar línur á þeim kortum, sem til eru af landinu í nægilega stórum kvarða. Slíkt mundi einnig hafa í för með sér talsverðan stærðarmismun á reitum sunnan lands og norðan. Notk- un reitkerfis sem þessa er til hagræðis við heimildasöfnun og opn- ar möguleika á tæknilegri úrvinnslu heimildanna og prentun kort- anna.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.