Náttúrufræðingurinn - 1974, Blaðsíða 11
N ÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
5
en rauðátan litla þýðingu sem loðnufóður á vestursvæði, en þó skal
nefna Oithona með 3.3%.
Á norðursvæði er, auk rauðátu, vert að geta Acartia (21.0%),
ljósátu með 10.4% og Oithona með 3.9% af fæðutegundum loðnu-
seiðanna.
Samkeppni um fæðu á einstökum stöðum
í síðasta kafla voru talin upp helstu fæðudýr hverrar fisktegund-
ar á þrem svæðum. Af þessari upptalningu má vera ljóst, að fæðu-
val einstakra fisktegunda er með ólíkum hætti á sama svæði. í því
skyni að veita betri yfirsýn yfir breytileika fæðuvalsins milli fisk-
tegunda eru (3. mynd) tengsl milli fiskseiðis og mikilvægi'a fæðu-
dýra sýnd með myndrænum hætti, eftir svæðum.
Suðursvœði: Allar fisktegundirnar fjórar neyta á þessu svæði
sameiginlegrar fæðutegundar, sem er rauðáta. Rauðátan er 1. aðal-
fæða (mikilvægasta fæðutegund) kolmunna og karfa. Án efa er þessi
krabbafló langtum algengasta svifdýrið af þessari stærð og hefur
af þeim sökum rnikla þýðingu sem fæða fyrir fiskseiði. Líklegt má
telja að samkeppni um rauðátuna sem fæðu eigi sér stað, a. m. k.
tíma og staðbundin. Önnur krabbafló, Oithona, þjónar loðnu og
karfa sem 1. aðalfæða og 2. aðalfæða (þ. e. næstmikilvægasta fæðu-
tegund). Ennfremur er ljósáta 1. aðalfæða ýsuseiðanna og Temora
2. aðalfæða kolmunnaseiðanna. Um þessar þrjár síðastnefndu fæðu-
tegundir er vart urn samkeppni að ræða, að því er umrædd fisk-
seiði varðar.
Vestursvœði: Aðalfæða (1. eða 2.) allra fisktegundanna nema kol-
munna er á þessu svæði rauðáta. Slík ásókn í eina fæðutegund lilýt-
ur, fyrr eða síðar, að leiða til samkeppni um viðkomandi fæðu.
Ef fjöldi rauðátunnar væri ávallt yfirdrifinn, væri vart um knýj-
andi þörf að ræða hjá fiskseiðunum að éta aðrar fæðutegundir í
miklum mæli. Greinilegt er hins vegar að fiskseiðin hafa þörl: fyrir
önnur fæðudýr en rauðátu og kemur þar í ljós nokkur sérhæfing:
Flest fiskseiðin einoka svo að segja eina ákveðna fæðutegund (flokk),
þ. e. a. s. ýsa — Decapoda, þorskur — Acartia, kolmunni — Amphi-
poda og loðna — Oithona. Aðeins karfaseiðin deila ljósátunni sem
2. aðalfæðu með kolmunnaseiðunum. Þannig má segja, að auk hinn-
ar sameiginlegu aðalfæðu, rauðátu, hafi sérhver fisktegund yfir að