Náttúrufræðingurinn - 1974, Blaðsíða 110
104
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
vekja athygli þína á, er það, að hann er hin síðustu ár að breyta
lífsvenjum sínum.
Fyrir rúmum tuttugu árum kom ég að haustlagi út í Lundey.
Þá veitti ég því athygli, að á eyjarbrúnunum var mikið af sauða-
leggjum og kindakjúkum. Svartbaksfjaðrirnar á víð og dreif hjá
þessu beinarusli sýndu, hver hafði verið þar að snæðingi. Kinda-
fæturna mun svartbakurinn hafa tekið í nágrenni Húsavíkur, en
á þeim árum var kindalöppum, görnum og gori ekið og dreift á
mela norðan við kaupstaðinn.
Nokkrum árum síðar varð ég þess fyrst var, að svartbakurinn
fór að leggjast á kindahræ, bæði niður við sjó og alla leið austur
á há Tjörnesfjallgarð. Og nú er svo komið, að svartbakurinn er
hættulegri afvelta kindum en hrafninn. Komið hefur verið að
svartbak, sem tekinn var að draga garnir úr lifandi, afvelta kind,
en enginn hrafn sjáanlegur.
Tvisvar hef ég horft á viðureign svartbaka og hrafna við kinda-
hræ. í bæði skiptin vörðu svartbakarnir hröfnum að setjast að
veisluborðinu, og sótti þó að heill skari af hröfnum. í öðru tilfell-
inu var leikurinn svo ójafn, að einungis einn svartbakur varði
krásina.
Haustið 1972 rak hér á fjöru hrefnuhræ. Á þá hvalfjöru safnaðist
geysilegur fjöldi svartbaka og vann að sínum hvalskurði myrkr-
anna á milli og í vaktaskiptum, því ekki kornust allir að í einu.
Þegar frá leið, sá ég hér í lyngmóunum stórar breiður af svart-
bökum, og var mér í fyrstu algjörlega hulið, hvað þeir væru að
starfa þar, þar til ég skaut nokkra svartbaka við hvalhræið. Þá
fékkst lausnin á þessari gátu. Svartbakarnir voru úttroðnir af
krækiberjum. Þeir Jiöfðu verið á berjamó.
Þekkir þú dæmi þess, úr þinu nágrenni, að svartbakar leggist á
kindur og éti ber, eins og hrafnar, og hvenær varstu þess þá fyrst
var?
En eins og þú þekkir, eru syndir þrjótsins fleiri. Æðarfuglinum
hér við Skjálfanda er hann hreinlega að útrýma með stórfelldu unga-
drápi. Á síðasta vori sást varla æðarfugl við Tjörnes vestanvert.
Þar sem þú hefur alltaf búið alllangt frá sjó, ætla ég að segja
þér ofurlítið nánar af háttum svartbaksins, sem þú hefur ólíklega
kynnst af eigin reynslu.
Einhver samvinna virðist með svartbökum og landselnum. Svart-