Náttúrufræðingurinn - 1989, Page 6
hending, myndasýning, lýst var kjöri
heiðurs- og kjörfélaga og að lokum
var kaffidrykkja þar sem flutt voru
styttri ávörp.
Fundarstjóri á þessum afmælis- og
hátíðarfundi var Unnsteinn Stefáns-
son, haffræðingur. í ávarpi sínu sagði
hann meðal annars, að þegar hann var
að alast upp austur á fjörðum á öðrum
og þriðja áratugi aldarinnar, þá hafi
það ekki verið daglegt brauð að menn
skryppu til Reykjavíkur. En þá sjald-
an menn voru nýkomnir úr höfuð-
staðnum hafi þeir að vonum verið
spurðir frétta og meðal fyrstu spurn-
inga var gjarnan þessi: Komstu á
Náttúrugripasafnið? Þetta taldi Unn-
steinn að hafa mætti til marks um
þann mikla áhuga sem landsmenn
sýndu störfum félagsins og þess álits
sem menn höfðu á tilgangi náttúr-
ugripasafnsins á þessum tímum.
Aðalræður hátíðarfundarins héldu
Þóra Ellen Þórhallsdóttir, formaður
félagsins og Svavar Gestsson, mennta-
málaráðherra. Báðar þessar ræður eru
birtar hér í blaðinu og vísast beint til
þeirra þar um innhald. Sérstaklega vil
ég þó benda á orð menntamálaráð-
herra um framtíðarhorfurnar í mál-
efnum safnsins. Þar eru boðaðar
bjartari horfur en verið hafa um langt
árabil í þeim málum og tekið er á mál-
inu á nýjan hátt og í nýju samhengi.
Formaður félagsins skýrði frá sam-
keppninni sem efnt var til um merki
fyrir félagið, lýsti úrslitum hennar og
afhenti verðlaun.
Einnig lýsti formaður félagsins kjöri
heiðursfélaga og kjörfélaga á fundin-
um og afhenti þeim og viðstöddum
eldri heiðurs- og kjörfélögum barm-
merki með mynd af hinu nýja merki
félagsins. Nýir heiðursfélagar voru
kjörnir þeir Axel Kaaber, Einar B.
Pálsson og Ingólfur Einarsson. Eldri
heiðursfélagar eru Eyþór Erlendsson,
Ingólfur Davíðsson, Sigurður Péturs-
son og Steindór Steindórsson. Nýr
kjörfélagi var kjörinn Hjálmar R.
Bárðarson. Eldri kjörfélagar eru Ein-
ar H. Einarsson, Guðbrandur Magn-
ússon og bræðurnir Hálfdán og Sig-
urður Björnssynir.
Oddur Sigurðsson sýndi myndir úr
náttúru íslands - allt frá myndum
teknum úr gervitunglum svífandi úti í
geimnum til minnstu lífvera sem
skríða hér um og við tökum lítt eftir í
önn daganna.
Hannu Miettinen, forstöðumaður
nýtískulegs náttúru- og vísindasafns í
borginni Vanda skammt frá Helsinki í
Finnlandi, lýsti þessu safni og fjallaði
um söfn og sýningastofnanir í nútíma-
þjóðfélagi frá ýmsum sjónarhornum.
Undir kaffiborðum tók síðan nokk-
ur hópur manna til orða og flutti fé-
laginu árnaðaróskir. Þeirra á meðal
var Steindór Steindórsson fyrrum
skólameistari Menntaskólans á Akur-
eyri, sem mun vera allra karla elstur í
félagu, ef svo má segja. Hann gekk í
félagið árið 1922, þá 20 ára gamall, og
hefur verið félagi alla tíð síðan eða í
67 ár samtals.
LOKAORÐ
Nánar mun verða skýrt frá þessum
og öðrum atburðum afmælisársins í
skýrslu formanns félagsins fyrir árið
1989, þegar þar að kemur. Hér á eftir
birtast svo þrjár ræður sem haldnar
voru á afmælishátíðunum. Þeim fylgja
nokkrar ljósmyndir úr sögu safnsins
og frá hátíðunum í haust.