Fréttablaðið - 18.05.2009, Blaðsíða 4
4 18. maí 2009 MÁNUDAGUR
FÓLK Jóhanna Guðrún og fylgdar-
lið hennar stigu á svið í veður-
blíðunni á Austurvelli í gær og
sungu Is It True? sem hreppti
annað sætið í úrslitakeppninni í
Moskvu á laugardagskvöld. Páll
Óskar Hjálmtýsson hitaði upp
fyrir hana með Eurovision-syrpu
og stjórnaði jafnframt athöfninni,
sem var sýnd beint í Ríkissjón-
varpinu. Gífurlegur mannfjöldi
safnaðist saman í á Austurvelli til
að fagna þessum frábæra árangri
í Moskvu.
Jóhanna Guðrún var að vonum
í skýjunum þegar Fréttablaðið
hafði samband við hana skömmu
fyrir athöfnina. „Við erum öll í
hópnum að átta okkur á þessu.
Þetta er rosa skrítið og maður er
aðeins að venjast því að við höfum
náð þessum árangri,“ sagði hún.
Spurð hvernig tilfinning það sé
að hafa jafnað árangur Selmu
Björnsdóttur frá árinu 1999 er
hún söng All out of Luck, sagði
hún: „Við erum bara himinlifandi
með það. Í rauninni er þetta meiri
árangur því þegar hún keppti voru
helmingi færri lönd í keppninni,
án þess að gera lítið úr henni.“
Alls hlaut Jóhanna Guðrún 218
stig í úrslitunum en í undankeppn-
inni sem var haldin síðastliðinn
þriðjudag náði hún efsta sæt-
inu með 174 stig, tveimur stigum
meira en Tyrkland.
Erlend útgáfufyrirtæki hafa
sýnt Jóhönnu áhuga, þar á meðal
Sony í Svíþjóð og 19 Entertain-
ment sem er eigu Simons Fuller,
höfundar Idol-keppninnar. Eins
og gefur að skilja vonar hún það
besta en heldur sig þó á jörðinni.
„Auðvitað er maður voða spenntur
en oftast gerast svona hlutir hægt.
Maður verður bara að bíða og sjá
hvernig fer.“
María Björk Sverrisdóttir,
umboðsmaður Jóhönnu, segir
að þegar sé kominn á borðið
samningur um að Is It True?
verði á stórri sumarsafnplötu
sem verður gefin út í Svíþjóð.
Kemur það ekki á óvart enda
hefur Jóhanna notið mikilla vin-
sælda þar í landi. Spurð hvort
stór útgáfusamningur sé í burðar-
liðnum vildi hún lítið tjá sig. „Það
er einn samningur sem er kom-
inn lengra áleiðis en annað. Þetta
kemur í ljós en áhuginn er mjög
mikill fyrir henni.“ Bætir hún við
að stefnt sé á að fylgja árangrin-
um í Eurovision vel eftir og hamra
járnið á meðan það er heitt. „Það
var lagt upp úr því. Þess vegna
lagði ég gífurlega áherslu á
undirbúningsvinnuna áður en ég
fór út.“
freyr@frettabladid.is
SAMGÖNGUR Fyrsta grjótfarm-
inum var sturtað í Landeyja-
höfn á laugardaginn. Til stendur
að reisa höfn í Bakkafjöru fyrir
ferjusiglingar til Vestmannaeyja.
Gerðir verða tveir um það bil
700 metra langir garðar sem
liggja í boga og vernda höfnina og
ferjubryggjuna fyrir ágangi sjáv-
ar. Alls verður notað um 1,3 millj-
ónir tonna af grjóti í garðana, en
heildarmagnið sem fer í fram-
kvæmdina er um tvær milljónir
tonna. Gert er ráð fyrir að upp-
byggingu brimvarnargarðanna
ljúki í október, en verklok við
höfnina eru áætluð í júlí á næsta
ári. Alls munu um áttatíu manns
starfa við verkið í sumar. - kóp
Framkvæmdir í Bakkafjöru:
Fyrsta hlassið í
Landeyjahöfn
EFNAHAGSMÁL Hlutfall vanskila af
heildarútlánum Íbúðalánasjóðs
(ÍLS) fyrstu fjóra mánuði ársins
2009 er nærri þrefalt hærra en á
sama tíma í fyrra, að því er fram
kemur í tilkynningu frá sjóðnum.
Heildarvanskil við sjóðinn eru
nú rúmar 800 milljónir króna.
Hlutfall af þriggja mánaða van-
skilum af útlánum er nú um 0,14
prósent, og hefur aukist um 40
prósent frá því í janúar, þegar
það var 0,1 prósent. Í janúar 2008
var hlutfallið 0,05 prósent. - bj
Vanskil hjá ÍLS 800 milljónir:
Hlutfall van-
skila þrefaldast
Fagnað eins og þjóðhetju
Jóhönnu Guðrúnu var fagnað eins og þjóðhetju á Austurvelli í gær eftir glæsta frammistöðu í Eurovision-
keppninni í Moskvu. Fjöldi fólks hyllti söngkonuna er hún steig á svið og söng lagið Is It True?
Á AUSTURVELLI Jóhanna Guðrún uppi á sviði á Austurvelli að syngja Eurovision-lagið Is It True? sem náði öðru sætinu í Moskvu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Þetta fór fram úr mínum björtustu vonum. Ég
þóttist vera bjartsýnn að spá því í fimmta til sjöunda
sæti. Þegar annað sætið var staðreynd var maður
öskrandi og æpandi fyrir framan sjónvarpið. Þetta
var einn yndislegasti dýrðardagur á Íslandi í mínum
minnum,“ segir Páll Óskar Hjálmtýsson, Eurovision-
aðdáandi númer eitt. „Ég átti ekki von á þessum
árangri frá lagi sem er jafnlágstemmt. Þetta er ekki
beint rismikið lag en flutningurinn var óaðfinnan-
legur. Það gekk allt upp. Söngurinn hjá Jóhönnu,
bakraddirnar, útlitið á atriðinu og líka þessi kjóll sem
er búið að tuða svo mikið yfir. Þetta sýnir líka og sannar að við Íslendingar
höfum alveg jafnmikla möguleika á að vinna og allar hinar þjóðirnar. Goð-
sögnin um austur-evrópsku mafíuna fékk að fjúka út um gluggann.“
Páll Óskar um Eurovision:
Yndislegur dýrðardagur
HLASSINU STURTAÐ Sumir trukkanna
sem notaðir eru við framkvæmdina geta
tekið allt að 55 tonn af grjóti. MYND/JT
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
25°
17°
22°
21°
17°
19°
20°
18°
18°
18°
23°
17°
17°
27°
10°
18°
28°
12°
7
10
10
8
8
12
16
Á MORGUN
8-13 m/s NV- og austan
Vatnajökuls, annars hægari.
MIÐVIKUDAGUR
3-10 m/s, stífastur austan
til og með N-ströndinni.
10
16
12
18
8
10
4
5
8
10
4
6
4
8
811
7 7
8
1616
11 12
8
1212
GÓÐVIÐRI ÁFRAM
Enda þótt víðast
sé góðviðrasamt
á landinu verður
veðrið áberandi best
suðvestanlands.
Þar má búast við
bjartviðri fram eftir
vikunni auk þess að
þar verður einna
hlýjast. Á morgun má
búast við þokusúld
við austurströndina
og á miðvikudag má
búast við skúrum
þar, einkum austan
Vatnajökuls.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
Veður-
fræðingur
UTANRÍKISMÁL Bjarni Benediktsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins,
segir tillögu ríkisstjórnarinnar
um aðildarviðræður við Evrópu-
sambandið vera afar ósannfærandi
og bera það með sér að lítil sann-
færing liggi að baki henni. „Þetta
er afar rýrt í roðinu og hvergi í til-
lögunni, eða greinargerðinni sem
henni fylgir, er færður fyrir því
rökstuðningur, eða látið að því
liggja, að áhugi sé eða vilji fyrir
því að ganga í málið hjá ríkis-
stjórninni. Það er eins og þetta snú-
ist bara um að þjóðin fái færi á að
kjósa um málið.“
Bjarni segist ekki hafa rætt við
utanríkisráðherra um helgina, en
hann hafi tjáð honum fyrir helgi að
hann teldi að málið ætti að fá hefð-
bundna þinglega meðferð. Það færi
þá fyrir utanríkismálanefnd og
þar væri hægt að gera breytingar-
tillögur ef verkast vildi.
Hann segir ótímabært að segja
til um hvort og þá hvaða breytingar-
tillögur Sjálfstæðisflokkurinn
muni gera á tillögunni. Þá sé einnig
ótímabært að segja hvort flokkur-
inn sé reiðubúinn til að taka þátt í
viðræðum við sambandið, en ráð-
herrar hafa talað um að leita eftir
samstarfi þar um. Málið sé á for-
ræði ríkisstjórnarinnar.
„Það er einkennilegt að utanríkis-
ráðherra tefli fram þingsályktunar-
tillögu þar sem hann áskilur sér
rétt til að berjast gegn samningnum
sem hann síðan klárar. Slíka samn-
inga á ekki að gera.“ - kóp
Formaður Sjálfstæðisflokksins ósáttur við Evróputillögu ríkisstjórnar:
Þingið fjalli um tillöguna
ÓSÁTTUR Segir enga sannfæringu búa
að baki tillögu ríkisstjórnarinnar um
aðildarviðræður við Evrópusambandið.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
ÍTALÍA, AP Raffaele Amato, einn
helsti kókaínsmyglari Ítalíu, var
handtekinn á Spáni í sameigin-
legri aðgerð spænsku og ítölsku
lögreglunnar.
Amato, sem er frá Napólí, er
sakaður um nokkur morð sem ná
allt aftur til ársins 1991. Tengjast
þau deilunni á milli Di Lauro og
Ruocco-glæpagengjanna sem
kostuðu yfir tíu manns lífið.
Amato var á þessum tíma hátt-
settur morðingi fyrir stjórann
Paolo Di Lauro sem hafði það að
markmiði að auka völd sín í Nap-
ólí. Síðan þá hefur Amato orðið
þekktur innan glæpaheimsins
sem kókaínsmyglari. - fb
Lögregluaðgerð á Spáni:
Glæpaforingi
handtekinn
GENGIÐ 15.05.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
209,9316
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
126,25 126,85
191,51 192,45
171,18 172,14
22,984 23,118
19,39 19,504
16,048 16,142
1,3282 1,336
191,63 192,77
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR