Fréttablaðið - 18.05.2009, Blaðsíða 6
6 18. maí 2009 MÁNUDAGUR
Sólarlottó
Þú kemst í sólina með Plúsferðum.
59.900kr.
Portúgal
Verð frá:
Verð á mann miðað við 2 fullorðna og 2 börn í 7 nætur.
Enginn barnaafsláttur. Aukavika kostar 10.900 kr. á mann.
(Aukavika aðeins bókanleg á skrifstofu)
6., 13. og 20. júní
72.900kr.
Tyrkland Marmaris
Verð frá:
Verð á mann miðað
við 4 í íbúð í 7 nætu
r.
Enginn barnaafslát
tur. Aukavika kosta
r 20.000 kr. á man
n
(Aukavika aðeins b
ókanleg á skrifstof
u).
5. , 12. og 19. júní
Spilaðu með og láttu
sólina leika við þig.
STJÓRNSÝSLA „Sveitarfélög verði
efld með flutningi verkefna frá
ríki til sveitarfélaga á sviði mál-
efna fatlaðra, aldraðra og heil-
brigðisþjónustu.“ Þannig segir
í stjórnarsáttmála nýrrar ríkis-
stjórnar. Viðræður á milli ríkis
og sveitarfélaga hafa lengi staðið
yfir og sveitarfélög hafa sent frá
sér samþykktir í þá veru að þetta
verði að veruleika. Úr því að málið
er komið í stjórnarsáttmálann er
því ekkert til fyrirstöðu að það
verði að veruleika.
Halldór Halldórsson, formaður
Sambands íslenskra sveitarfélaga,
segir mikinn áhuga hjá sveitar-
félögum fyrir þessu og landsþing
hafi ályktað í þá veru. Það sé þó
háð því að nægir fjármunir fylgi
verkefninu.
Halldór segir málið hafa verið
langt komið í ráðherratíð Páls
Péturssonar en þá hafi strand-
að á því að ríkisvaldið hafi ekki
viljað setja endurskoðunarákvæði
inn í samninginn hvað fjárhags-
liði varðar. Nú hafi menn komist
að samkomulagi um að fjárhags-
þáttur verkefnisins verði endur-
skoðaður.
Þrír ráðherrar undirrituðu í
mars, ásamt fulltrúum sveitar-
félaga, viljayfirlýsingu um flutning
málefna fatlaðra til sveitar félaga
árið 2011. Halldór segir að það eigi
að ganga eftir, enda sé vinna við
þann málaflokk lengra komin. Mál-
efni aldraðra gætu verið komin til
sveitarfélaganna árið 2013.
Í viljayfirlýsingunni kemur
fram að heildarkostnaður ríkis-
ins við málefni fatlaðra nemi um
tíu milljörðum á ári. Halldór segir
erfiðara að meta
kostnaðinn við
málefni aldr-
aðra, þau séu
að hluta til heil-
brigðismál og
mun flóknari
en málefni fatl-
aðra.
Ríkisstjórnin
hefur ákveðið
að setja á fót
tekjustofnanefnd sem fari yfir
tekjuskiptingu ríkis og sveitar-
félaga. Halldór fagnar því, enda sé
það í samræmi við kröfur sveitar-
félaganna. Hann væntir þess
að nefndin geti tekið til starfa á
næstu vikum. „Starf slíkrar
nefndar hangir saman við flutn-
ing verkefna,“ segir Halldór.
Þá segir einnig í stjórnarsátt-
mála að unnar verði tillögur að
eflingu lýðræðis á sveitarstjórnar-
stigi í samvinnu við sveitarfélög og
að höfðu samráði við íbúa um land
allt. Þá verði sett ákvæði um gerð
siðareglna á sveitarstjórnarstigi.
Einnig er gert ráð fyrir að hlut-
verk sveitarfélaga í velferðarþjón-
ustu við börn og fjölskyldur verði
aukið með flutningi verkefna frá
ríki til sveitarfélaga.
kolbeinn@frettabladid.is
Aldraðir og fatlaðir
til sveitarfélaganna
Málefni aldraðra og fatlaðra verða flutt til sveitarfélaganna ef marka má nýjan
stjórnarsáttmála. Unnið hefur verið lengi að málinu og sveitarfélögin vilja taka
málaflokkinn að sér. Tekjustofnanefnd mun fara yfir tekjuskiptingu.
VERKEFNI FLUTT Stjórnarflokkarnir sömdu sín á milli um flutning verkefna aldraðra
og fatlaðra til sveitarfélaga í stjórnarsáttmálanum. Það er í samræmi við vilja sveitar-
félaganna. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR
HALLDÓR
HALLDÓRSSON
Á forseti Íslands að hitta Dalai
Lama þegar hann kemur hing-
að til lands?
Já 75,1%
Nei 24,9%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Horfðir þú á Eurovision?
Segðu þína skoðun á visir.is
VIÐSKIPTI Full samstaða er um
það í borgarstjórn að breyta ekki
umdeildum arðgreiðslum Orku-
veitu Reykjavíkur til eigenda
sinna, segir Hanna Birna Kristj-
ánsdóttir borgarstjóri.
Hún segist sammála þeirri niður-
stöðu stjórnar Orkuveitunnar að
greiða eigendum sínum 800 millj-
óna króna arð vegna ársins 2008.
Það er helmingi lægri upphæð en
undanfarin ár, og 1,7 prósent af
eigin fé fyrirtækisins um áramót.
Reykjavíkurborg á stærstan hlut
í Orkuveitunni, en önnur sveitar-
félög eiga minni hlut.
Fulltrúar starfsmanna hafa
gagnrýnt að greiddur sé arður á
sama tíma og laun starfsmanna
hafi lækkað. Þess hefur verið kraf-
ist að launalækkunin verði dregin
til baka.
Hanna Birna segir málin ótengd.
Öll sveitarfélögin sem eigi Orku-
veituna séu í þeirri stöðu að þurfa
að draga úr launakostnaði, eins og
mörg fyrirtæki í einkageiranum. Að
sjálfsögðu geri sveitarfélögin sömu
kröfur til fyrirtækis í þeirra eigu.
Dagur B. Eggertsson, oddviti
Samfylkingarinnar í borgarstjórn,
hvatti í gær til viðræðna við stéttar-
félög starfsmanna Orkuveitunnar
vegna málsins. Hann gagnrýndi í
yfirlýsingu samskiptaleysi borgar-
yfirvalda vegna málsins. - bj
Borgarstjóri segir umdeildar arðgreiðslur fara í samfélagsleg verkefni borgarinnar:
Arðgreiðslum OR ekki haggað
GREIÐSLUR Arðgreiðslur frá Orkuveitu Reykjavíkur nýtast til rekstrar leikskóla, grunn-
skóla og annarra samfélagslegra verkefna segir borgarstjóri. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SRÍ LANKA, AP Uppreisnarher Tamíltígra
hefur gefist upp í 25 ára löngu stríði sínu við
stjórnvöld á Srí Lanka. Bauðst hann til að
leggja niður vopn sín í gær eftir að stjórnar-
herinn réðst af krafti inn í sterkasta vígi
þeirra í norðausturhluta landsins.
Þegar íbúar Srí Lanka fréttu af enda-
lokum stríðsins þyrptust þeir út á götur
og fögnuðu gríðarlega. „Þessi sigur trygg-
ir okkur betri framtíð fyrir komandi kyn-
slóðir,“ sagði Prasanna Jayawardena, sem
skaut upp flugeldum úti á götu. Mahinda
Rajapaksa, forseti Srí Lanka, ætlar að halda
blaðamannafund á þriðjudagsmorgun sem
verður sýndur beint úr þinghúsi landsins þar
sem hann lýsir því yfir að stríðinu sé lokið.
Selvarasa Pathmanathan, yfirmaður
hjá Tamíltígrunum sendi út yfirlýsingu í
gær þar sem hann lýsti yfir ósigri sinna
manna. „Fólkið okkar er að deyja af völd-
um sprengna, skotárása, veikinda og
hungursneyðar. Við verðum að koma í veg
fyrir meiri skaða. Eini kosturinn okkar er að
taka í burtu einu ástæðuna fyrir óvin okkar
til að drepa okkur. Við höfum ákveðið að
þagga niður í byssum okkar,“ sagði hann.
Alls hafa rúmlega sjötíu þúsund manns
látist í stríðinu á Srí Lanka en á undanförn-
um mánuðum hafa um 250 þúsund almenn-
ir borgarar yfirgefið helstu átakasvæðin í
landinu. Átökin hafa verið sérlega mikil á
þessu ári og að sögn Sameinuðu þjóðanna
voru sjö þúsund almennir borgarar drepnir
og 16.700 særðust frá 20. janúar síðastliðn-
um til 7. maí.
- fb
Loksins sér fyrir endann á 25 ára löngu stríði Tamíltígra og stjórnarhersins á Srí Lanka:
Uppreisnarher Tamíltígra leggur niður vopn
FÖGNUÐUR Fjöldi fólks fagnaði endalokum stríðsins
sem hefur kostað yfir sjötíu þúsund manns lífið síðast-
liðin 25 ár. MYND/AP
KJÖRKASSINN