Fréttablaðið - 18.05.2009, Page 10
10 18. maí 2009 MÁNUDAGUR
Dr. Natasha Campbell skrifaði bókina “Meltingarvegurinn
og geðheilsa” eftir að hafa náð undraverðum árangri
með breyttu mataræði og notkun bætiefna fyrir son
hennar sem var greindur með alvarlega einhverfu. Reynsla
hennar hefur sýnt að mataræði er mjög mikilvægur
þáttur í að hjálpa börnum og fullorðnum með andlega
kvilla og hefur hún unnið mikið frumkvöðlastarf varðandi
notkun próbíótískra bætiefna við meðferð á andlegum
vandamálum. Fyrirlesturinn er almennur og ætti að
gagnast öllum sem áhuga hafa á að borða sér til bata.
Dr. Natasha Campbell-McBride
heldur 2 fyrirlestra í Bíósalnum
á Hótel Loftleiðum, þriðjudaginn
19. maí kl. 18.00 og kl. 20.00.
Aðgangseyrir kr.1000,- Skráning á netfanginu:
johannamjöll@simnet.is. Fyrirlesturinn fer fram á ensku
Dr. Campbell-McBride er læknismenntuð
með sérmenntun í næringarfræði og
taugasjúkdómafræði og sérhæfð í
næringarfræði fyrir fullorðna með
meltingar- og ónæmissjúkdóma.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
SJÁVARÚTVEGUR Hætt hefur verið
við áform um að setja upp vinnslu
hvalaafurða á Akranesi. Félag
hrefnuveiðimanna gat ekki fylgt
eftir hugmyndum sínum um fjár-
festingar vegna óvissu um framtíð
veiðanna.
„Það liggur fyrir að ekkert
verður af vinnslunni í ár,“ segir
Gunnar Bergmann Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Félags hrefnu-
veiðimanna. „Fyrrverandi sjávar-
útvegsráðherra tryggði okkur
veiðileyfi til fimm ára sem gerði
okkur kleift að huga að fjárfest-
ingum til að setja upp okkar bæki-
stöðvar á Akranesi. Yfirlýsingar
Steingríms J. Sigfússonar um
endurskoðun hvalveiða að lokinni
komandi vertíð urðu hins vegar
til þess að fjárfestar sem við höfð-
um náð samkomulagi við kipptu
að sér höndunum.“ Gunnar segir
að hrefnuveiðimenn hafi eftir sem
áður leyfi til hrefnuveiða í fimm ár
og fari svo að því verði breytt verði
því ekki tekið þegjandi og hljóða-
laust. Hrefnuveiðimenn hafa kom-
ist að samkomulagi við kjötvinnsl-
una Esju í Reykjavík um að verka
þær eitt hundrað hrefnur sem
leyfilegt er að veiða í sumar.
Samkvæmt upplýsingum frá
sjávarútvegsráðuneytinu hafa
tuttugu aðilar sótt um leyfi til
hrefnuveiða en fyrir höfðu verið
veitt leyfi til þriggja útgerða. Það
eru útgerðir Halldórs Sigurðs-
sonar og Drafnar í Reykjavík og
Njarðar í Kópavogi. Þessar útgerð-
ir hafa stundað hrefnuveiðarnar á
undanförnum árum og uppfylla öll
skilyrði sem sett eru fyrir þeim.
Innan Félags hrefnuveiðimanna
eru fjórar aðrar útgerðir, eða alls
sjö. Gunnar segir að félagið muni
ekki sækja um fleiri leyfi; það hafi
verið ákveðið að stunda veiðarn-
ar sameiginlega á þremur bátum.
Um það hefur verið stofnað félagið
Hrefnuveiðimenn ehf.
Gunnar á ekki von á að gefin
verði út fleiri leyfi. Sjávar-
útvegsráðuneytið getur ekki
svarað því hversu margir umsækj-
endur standast kröfur, eða hafa til-
tæka báta til veiðanna.
Leyfisveitingarnar hafa verið
gagnrýndar af Félagi hrefnuveiði-
manna. Gunnar minnir á að þeim
fáu sem stundað hafa veiðarnar
í gegnum árin hafi verið lofað að
þeir fengju til baka þann rétt sinn
til að veiða hrefnu þegar takmörk-
unum yrði aflétt. Réttur þeirra
hafi verið viðurkenndur af öllum
sjávarútvegsráðherrum sem setið
hafa síðan veiðibann var sett á á
níunda áratugnum. Því skjóti það
skökku við núna að stjórnvöld aug-
lýsi leyfi til veiðanna fyrir hvern
sem er. svavar@frettabladid.is
Tuttugu sóttu
um leyfi til
hrefnuveiða
Óvissa um framtíð hrefnuveiða varð til þess að
hrefnuveiðimenn hættu við fjárfestingar á Akra-
nesi. Þrjár útgerðir hafa fengið veiðileyfi en alls
hafa tuttugu aðilar sótt um. Vinnsla afurðanna
færist til kjötvinnslu í Reykjavík.
NJÖRÐUR Á VEIÐUM Hrefnuveiðimenn ætla að skipta bátnum Nirði út fyrir stærra
skip og veiða megnið af eitt hundrað dýra kvóta á hann. MYND/GUNNAR BERGMANN
MENNTUN Foreldrar virðast ekki
ætla að draga úr tónlistarmenntun
barna sinna í kreppunni. Sigurður
Sævarsson, formaður Félags tón-
listarskólastjóra, segist ekki hafa
orðið var við neina breytingu á
fjölda fyrirspurna eða umsókna
fyrir næsta ár, enn sem komið er.
„En ég reikna nú samt með því
að eldra fólk, sem hefur þetta að
tómstundagamni og hefur orðið
fyrir tekjuskerðingu, hugsi sig
tvisvar um,“ segir hann. Sérstak-
lega hafi komið á óvart mikil ásókn
í söngnám, sem kostar á bilinu 150
til 200 þúsund á ári. Fyrir algeng-
asta grunnnámið, svo sem píanó-
nám, þurfa foreldrar að borga
milli 90 og 110 þúsund á ári, fyrir
skólavist frá september og fram í
maí. Borgin bætir ofan á það um
320.000 krónum að meðaltali fyrir
hvern nemanda, en ríkið kemur
ekki að tónlistarnámi barna. Til
stóð að skera þetta framlag niður
um tólf prósent, en borgin er nú að
leita viðbótarfjárveitingar, enda
höfðu skólarnir ekki gert ráð fyrir
niðurskurðinum á þessu ári.
Sigurður segir skólana flesta
rekna á núlli, í besta falli. „Þetta er
ekki rekið með hagnað í huga, en
ekki heldur til að safna skuldum.
Ef fellur til peningur þá endur-
nýjum við hljóðfærakostinn,“ segir
hann. - kóþ
Kreppan virðist ekki draga úr ásókn í nám sem kostar á annað hundrað þúsund:
Enginn blús í tónskólunum
SIGURÐUR SÆVARSSON Formaður Félags
tónlistarskólastjóra segir hagnaðar-
sjónarmið ekki ráða rekstri skólanna.
UTANRÍKISMÁL Utanríkisráðuneytið
mun veita fimm milljónir króna
í neyðaraðstoð til flóttafólks á
Srí Lanka. Aðstoðin verður veitt
með milligöngu
Rauða kross
Íslands.
Þá skorar
Össur Skarp-
héðinsson utan-
ríkisráðherra á
stríðandi fylk-
ingar í landinu,
stjórnarherinn
og Tamíltígra,
að vernda
óbreytta borgara. Tugir þúsunda
óbreyttra borgara hafa flúið
átakasvæðin síðustu daga og Rauði
krossinn telur að um 50 þúsund
séu enn á yfirráðasvæði Tamíl-
tígra. Ráðherra minnir á að báðum
aðilum sé skylt að fara að alþjóð-
legum mannúðarlögum. - kóp
Íslendingar veita aðstoð:
Fimm milljónir
til Srí Lanka
ÖSSUR
SKARPHÉÐINSSON
VEIÐIBANN Á
TVEIMUR SVÆÐUM
Sjávarútvegsráðherra hefur gefið
út reglugerð um tvö afmörkuð
svæði til hvalaskoðunar þar sem
bannað verður með öllu að
veiða hvali á væntanlegri hvala-
vertíð. Svæði þessi eru afmörk-
uð í Faxaflóa annars vegar og
hins vegar milli Tröllaskaga og
Mánáreyja norður af Tjörnesi.
Félag hrefnuveiðimanna telur
að lokun svæðanna muni ekki
hafa áhrif á framgang veiðanna
að neinu ráði.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/VA
LLI