Fréttablaðið - 18.05.2009, Blaðsíða 16
16 18. maí 2009 MÁNUDAGUR
timamot@frettabladid.is
MERKISATBURÐIR
1498 Landkönnuðurinn Vasco
da Gama kemur til hafnar
í Kalkútta í Indlandi.
1565 Tyrkjaveldi hefur umsátur
um Möltu, sem er hrund-
ið þremur mánuðum
síðar.
1897 Stokkseyrarhreppi er skipt
í Stokkseyrarhrepp og
Eyrar bakkahrepp.
1920 Sambandslögin frá 1918
eru staðfest með breyt-
ingum á stjórnarskrá.
1978 Selfoss fær kaupstaðar-
réttindi.
1980 Eldfjallið Sankti Helena
gýs í Washington-ríki. 57
látast og tjónið er metið á
þrjá milljarða dollara.
1989 Verkfalli Bandalags há-
skólamanna lýkur. Hafði
það staðið í sex vikur og
valdið mikilli röskun á
skólastarfi og fleiru.
CHOW YUN FAT ER 54 ÁRA.
„Það að starfa fyrir fram-
an kvikmyndatökuvélar er
það sem heldur í mér lífinu.
Mér gæti ekki staðið meir á
sama um hjólhýsi og mat á
tökustað og þess háttar. Ég
vil bara leika.“
Leikarinn Chow Yun Fat er á
Vesturlöndum aðallega þekkt-
ur fyrir leik í hasarmyndum.
Hann hefur hins vegar farið
með fjölda hlutverka í gaman-
myndum, dramatískum og
rómantískum myndum.
Sambandslögin frá 1918 voru staðfest
með breytingum af konungi Kristjáni
X. í Sorgenfri-höllinni í Danmörku og
svo árituð af Jóni Magnússyni forsætis-
ráðherra 18. maí 1920 og urðu að
stjórnarskrá konungsríkisins Íslands.
Í stjórnarskránni eru ákvæði um
þingbundna konungsstjórn, um kon-
ung og konungserfðir, um æðsta vald
konungs í málefnum ríkisins með tak-
mörkunum sem stjórnarskráin fjallaði
um en ráðherra í ráðuneyti Íslands
hafði framkvæmd þess með höndum,
einnig stofnun íslensks ríkisráðs.
Lokið var hinni gömlu skiptingu í
sérmál og sameiginleg mál. Í kjölfarið
fylgdi stofnun Hæstaréttar og fullgild-
ur þjóðfáni.
ÞETTA GERÐIST: 18. MAÍ ÁRIÐ 1920
Stjórnarskrá konungsríkisins Íslands
„Þetta er í fyrsta skipti
sem boðið er upp á heild-
stætt nám í málefnum inn-
flytjenda af þessu tagi hér
á landi,“ segir Edda Ólafs-
dóttir, félagsráðgjafi á Þjón-
ustumiðstöð Miðborgar og
Hlíða. Edda hefur, ásamt
Hallfríði Þórarinsdóttur,
mannfræðingi og forstöðu-
manni Mirru, Miðstöðvar
innflytjendarannsókna í
ReykjavíkurAkademíunni,
og starfsfólki Endurmennt-
unar, komið að skipulagn-
ingu nýrrar námsbrautar í
málefnum innflytjenda sem
kennd er á meistarastigi við
Endurmenntun Háskóla Ís-
lands.
„Námið hefst í haust hjá
Endurmenntun Háskóla Ís-
lands og hefur umsóknar-
frestur verið framlengdur,“
nefnir Edda og bætir við að
hérlendis hafi skapast brýn
þörf á slíku námi fyrir sér-
fræðinga í þessum mála-
flokki. Hún segir að miklar
breytingar hafi orðið á ís-
lensku samfélagi undanfar-
in ár. „Við verðum að fara að
átta okkur á að við búum í
nýju umhverfi, þar sem við
höfum lengi vanist því að
búa í einsleitu samfélagi.“
Beðin um að lýsa nám-
inu, segir hún: „Námið er
fjölbreytt og áhersla lögð á
flesta þá þætti sem tengj-
ast málefnum innflytjenda.
Við vilja reyna að höfða til
mismunandi hópa í samfé-
laginu og sjáum fyrir okkur
að þeir sem fara í námið geti
orðið leiðandi á þessu sviði.
Við viljum sjá að þeir verði
í stakk búnir til að innleiða
hagnýta þekkingu á mál-
efnum innflytjenda hver á
sínum vettvangi.“
Edda segir málefni inn-
flytjenda snerta allar hlið-
ar mannlífsins og bætir við
að lögð verði rík áhersla á að
nemendur leggist í ákveðna
sjálfsskoðun, ekki síður en
samfélagsrýni. Eitt nám-
skeiðið byggist til dæmis á
dagbókarskrifum nemenda
og er tilgangurinn að fá þá
til að skoða eigin viðhorf
og fordóma. „Þessi aðferð,
það að leggjast í skipulagða
ENDURMENNTUN HÁSKÓLA ÍSLANDS: NÁM
Erum að svara b
Pálína Halla Ásmundsdóttir
frá Ásbúðum, Kópavogsbraut 57,
verður jarðsungin frá Kópavogskirkju miðvikudaginn
20. maí kl. 13.00. Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim
sem vildu minnast hennar er bent á Sunnuhlíð.
Vandamenn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og hjartkær vinkona,
Sigrún Oddgeirsdóttir
Hæðargarði 35, áður Skipasundi 11,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn
19. maí kl. 15.00.
Ingvar A. Guðnason Þórunn Guðmundsdóttir
Gunnar Guðnason Sigríður Davíðsdóttir
Haukur Geir Guðnason Anna Sigríður Guðmundsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn
Theódór Halldórsson
80 ára afmæli
Bjarni Kristjánsson
er áttræður í dag 18. maí.
Hann fæddist á N-Hvoli í Mýrdal, foreldrar
Kristján Bjarnason og Kristín Friðriks-
dóttir. Hann kvæntist Snjólaugu Bruun og
eru afkomendur þeirra orðnir 24. Bjarni
er menntaður vélaverkfræðingur og var
lengi rektor Tækniskóla Íslands. Hann
hefur verið mikilvirkur veiðimaður og sinnt
félagsmálum veiðimanna gegnum tíðina.
Bjarni verður að heiman á afmælisdaginn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Guðbjörg Sigríður
Þórólfsdóttir
dvalarheimilinu Höfða, áður til heimilis
að Háholti 31, Akranesi,
sem lést aðfaranótt 5. maí, verður jarðsungin frá
Akraneskirkju miðvikudaginn 20. maí kl. 14.00. Blóm
og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á dvalarheimilið Höfða á
Akranesi.
Þórólfur Ævar Sigurðsson Kristín Eyjólfsdóttir
Guðjón Heimir Sigurðsson Valgerður Bragadóttir
Halldór Bragi Sigurðsson Sigurlaug Brynjólfsdóttir
Guðrún Agnes Sigurðardóttir Tryggvi Ásgrímsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Einar Jónasson
Hlíðargerði 10, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi miðviku-
daginn 13. maí. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Árdís Guðmarsdóttir
Guðmar Einarsson Elín Úlfarsdóttir
Sigríður Einarsdóttir
Einar Örn Einarsson Tinna Brá Baldvinsdóttir
Eydís, Elísa, Birgitta Björg, Jónas, Árdís Freyja og Indriði
Hrafn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Una Guðjónsdóttir
frá Þórshöfn Langanesi, Heiðarbóli 6,
Keflavík,
verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju, miðvikudaginn
20. maí kl. 14.00.
Jón Friðjónsson Sigríður Erlendsdóttir
Haukur Friðjónsson Helga Guðjónsdóttir
Friðlaugur Friðjónsson Margrét Sveinbjörnsdóttir
Hafdís Friðjónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og kær vinkona,
Arnhildur Hólmfríður
Reynis
Skipholt 21, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Óháða söfnuðinum miðviku-
daginn 20. maí kl. 15.00.
Lísa Lotta Reynis Andersen Börkur Árnason
Michael Einar Reynis Geirþrúður Jónsdóttir
Elva Björk Barkardóttir
Hrannar Árni Barkarson
Arnar Daði Reynis
Eva Lind Reynis
Dúfa Sylvía Einarsdóttir Guðmundur Ragnarsson
Anna Sigríður Einarsdóttir Hrafn Andrés Harðarson
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafað-
ir, afi og langafi,
Þórhallur Guttormsson
íslenskufræðingur,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni föstudaginn 8.
maí, verður jarðsunginn frá Neskirkju, miðvikudaginn
20. maí kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans, er bent
á minningarsjóð Sóltúns, s. 590 6000.
Anna G. Þorsteinsdóttir
Þorsteinn G. Þórhallsson Ragna Steinarsdóttir
Páll Þórhallsson Þórdís Kjartansdóttir
barnabörn og barnabarnabarn.
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Stofnun Gunnars Gunnars-
sonar, Bókmenntafræði-
stofnun Háskóla Íslands og
Landsbókasafn Íslands – há-
skólabókasafn efna til mál-
þings í fyrirlestrasal Þjóðar-
bókhlöðu í dag. Tilefnið
er að í dag eru 120 ár liðin
síðan Gunnar Gunnarsson
skáld fæddist á Valþjófsstað
í Fljótsdal.
Sigurjón Björnsson próf-
essor emeritus mun fjalla um
Brimhendu, Jón Karl Helga-
son, dósent við HÍ, ræðir um
dómsdagsmynd Gunnars í
Vikivaka og Sveinn Yngvi
Egilsson, prófessor við HÍ,
mun fjalla um náttúruna
í Aðventu og fleiri sögum
Gunnars. Að erindum lokn-
um mun Jón Yngvi Jóhanns-
son bókmenntafræðingur,
sem nú vinnur að ritun ævi-
sögu skáldsins, stýra pall-
borði með fyrirlesurum.
Málþingið hefst klukkan
17. Aðgangur er ókeypis og
allir velkomnir meðan hús-
rúm leyfir.
Minning um skáld