Fréttablaðið - 18.05.2009, Blaðsíða 42
26 18. maí 2009 MÁNUDAGUR
KR-völlur, áhorf.: 1.826
KR Þróttur
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 11–2 (6–0)
Varin skot Stefán 0 – Sindri 5
Horn 12–4
Aukaspyrnur fengnar 13–6
Rangstöður 2–0
ÞRÓTTUR 4–5–1
*Sindri Jensson 8
Kristján Björnsson 5
Runólfur Sigmunds. 7
Dennis Danry 8
Birkir Pálsson 6
Andrés Vilhjálmsson 5
(81., Skúli Jónsson -)
Haukur Sigurðsson 6
(87., Ingvi Sveins -)
Hallur Hallsson 6
Rafn Andri Haralds. 6
Morten Smidt 5
(63., Davíð Rúnars. 7)
Hjörtur Hjartarson 6
*Maður leiksins
KR 4–4–2
Stefán Magnússon 5
Skúli Friðgeirsson 4
Grétar Sigurðarson 6
Bjarni Guðjónsson 6
Jordao Diogo 5
Óskar Örn Hauksson 3
Jónas Guðni Sævars. 6
Baldur Sigurðsson 3
(70., Guðm. Péturs. 5)
Atli Jóhannsson 6
(75., Gunnar Jóns. -)
Björgólfur Takefusa 5
Prince Rajcomar 4
(60., Guðm. Ben. 5)
0-0
Erlendur Eiríksson (6)
Stjörnuvöllur, áhorf.: 1.011
Stjarnan ÍBV
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 10–8 (5–3)
Varin skot Bjarni 3 – Albert 2
Horn 10–3
Aukaspyrnur fengnar 16–19
Rangstöður 2–2
ÍBV 4–5–1
Albert Sævarsson 6
Arnór Eyvar Ólafs. 5
Yngvi Borgþórsson 6
Matt Garner 3
Þórarinn Valdimars. 5
Augustine Nsumba 5
(88., Gauti Þorvarða. -)
Tony Mawejje 6
Bjarni R. Einarsson 4
(55., Leitch-Smith 5)
Pétur Runólfsson 4
Chris Clements 5
Viðar Ö. Kjartansson 4
(75., Elías Árnason -)
*Maður leiksins
STJARN. 4–4–2
Bjarni Þ. Halldórsson 7
Guðni R. Helgason 8
Tryggvi Bjarnason 7
(46., Arnar Björgvi. 8)
Daníel Laxdal 7
Hafsteinn Helgason 6
Jóhann Laxdal 6
Birgir H. Birgisson 6
Björn Pálsson 6
Halldór Björnsson 7
*Steinþór Þorstei. 8
(89, Andri Sigurjón. -)
Þorvaldur Árnason 6
(72., Magnús Björgv. -)
1-0 Tryggvi Bjarnason (35.)
2-0 Arnar Már Björgvinsson (62.)
3-0 Arnar Már Björgvinsson (86.)
3-0
Magnús Þórisson (6)
Pepsi-deild karla:
STAÐAN:
Stjarnan 3 3 0 0 12-1 9
KR 3 2 1 0 6-1 7
Fylkir 2 2 0 0 3-0 6
Breiðablik 2 2 0 0 3-1 6
Fram 2 1 0 1 3-2 3
Valur 2 1 0 1 3-2 3
FH 2 1 0 1 2-2 3
Keflavík 2 1 0 1 1-2 3
Þróttur 3 0 1 2 1-8 1
Fjölnir 2 0 0 1 2-5 0
Grindavík 2 0 0 2 1-7 0
ÍBV 3 0 0 3 0-6 0
FÓTBOLTI Barcelona og Inter urðu
um helgina meistarar í löndum
sínum. Bæði lið áttu það sam-
eiginlegt að verða meistarar án
þess að spila á laugardeginum.
AC Milan tapaði fyrr um dag-
inn og svo tapaði Real Madrid á
dramatískan hátt fyrir Villarreal
og úr varð heljarinnar teiti bæði í
Katalóníu sem og í Mílanó.
Barcelona tefldi fram hálf-
gerðu varaliði í gær og tapaði 2-1
fyrir Real Mallorca.
Eiður Smári var í byrjunarliði
Barcelona en var tekinn af velli á
74. mínútu. - hbg
Spænski og ítalski boltinn:
Barcelona og
Inter meistarar
EIÐUR SMÁRI Sést hér í leiknum á Mall-
orca í gær. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Þróttarar náðu í sitt fyrsta
stig í deildinni, á sama tíma og KR
tapaði dýrmætum stigum, þegar
liðin gerðu markalaust jafntefli í
bragðdaufum leik í Vesturbænum
í gærkvöldi.
Þó svo að KR-ingar hafi verið
mun sterkari aðilinn í gær gekk
þeim illa að skapa sér hættuleg
færi og vonbrigðin því mikil í
þeirra herbúðum.
„Þetta var ekki nógu gott. Við
áttum auðvitað að vinna þennan
leik okkur tókst það ekki. Við
lékum ekki nógu beittan sókn-
arleik og boltinn gekk of hægt á
milli manna. Ásetningur þeirra
var greinilega að ná í eitt stig og
þeim tókst það, við erum ósáttir,“
sagði Logi Ólafsson, þjálfari KR,
í leikslok.
Fyrri hálfleikur var með ein-
dæmum rólegur í gærkvöldi.
Þróttarar voru greinilega mætt-
ir í Vesturbæinn til þess að halda
hreinu og lögðu alla áherslu á
varnarleikinn, eðlilega þó miðað
við útkomu síðasta leiks þar sem
þeir töpuðu 6-0 á heimavelli gegn
nýliðum Stjörnunnar.
Sindri Snær Jensson stóð í marki
gestanna, í stað Danans Henriks
Boedker sem var kominn á bekk-
inn. Hann greip nokkrum sinnum
vel inn í þegar KR-ingar gerðu sig
líklega til að ógna marki Þróttar,
sem gerðist þó ekki ýkja oft í fyrri
hálfleik. Hættulegasta færi hálf-
leiksins fékk Prince Rajcomar
þegar hann slapp í gegnun vörn
Þróttara eftir frábæra sendingu
Atla Jóhanns sonar. Prince fór hins
vegar illa með gott færi og Sindri
bjargaði vel.
Síðari hálfleikur þróaðist á svip-
aðan hátt og sá fyrri. KR var meira
með boltann en gekk bölvanlega að
skapa sér hættuleg marktækifæri.
Baldur Sigurðsson og fleiri lykil-
menn liðsins voru engan veginn í
takt við leikinn á meðan Þróttar-
ar börðust af krafti um hvern ein-
asta bolta. Mesta hættan í seinni
hálfleik skapaðist þegar Grétar
Sigfinnur Sigurðsson átti hættu-
legan skalla sem Sindri varði vel
en að öðru leyti náðu varnarmenn
Þróttar, með Dennis Danry sem
besta mann, að loka á spil KR-
inga og niðurstaðan markalaust
jafntefli.
Logi Ólafsson sagði leik Þróttara
ekki hafa komið KR-ingum á
óvart. „Við bjuggum okkur undir
svona leik en það er erfitt að skora
þegar það er nánast eins og útihá-
tíð í vítateignum. Við fengum þó
mjög gott marktækifæri í fyrri
hálfleik þegar Prince lét verja frá
sér og það er ljóst að í svona leik
verðum við að nýta þau færi sem
við fáum, en það gerðum við ekki,“
bætti Logi við.
Hallur Hallsson, fyrirliði
Þróttar, var öllu hressari að leik
loknum.
„Það reiknuðu kannski ekki
margir með að við myndum ná
stigi hér í dag en það var alltaf
markmiðið okkar. Síðasti leikur
var einn sá skelfilegasti fótbolta-
leikur sem ég hef spilað og bæting-
in því gríðarleg hjá okkur.
Við lögðum áherslu á vörnina
eftir að hafa fengið á okkur átta
mörk í tveimur leikjum og við
náðum að halda hreinu, sem við
erum mjög ánægðir með,“ sagði
Hallur að lokum. - sjj
Mikil vonbrigði hjá KR-ingum
Þróttur gerði sér lítið fyrir og nældi í jafntefli gegn KR í Frostaskjóli í gær. Talsverð bæting frá því að hafa
tapað síðasta leik sínum, 6-0. Jafnteflið mikil vonbrigði fyrir KR-inga sem höfðu unnið tvo fyrstu leiki sína
í deildinni og voru á flugi. Sóknarleikurinn varð þeim þó að falli í gær enda skapaði liðið ákaflega lítið.
KLÚÐUR Prince Rajcomar fær hér eitt besta færi leiksins en honum voru mislagðir fætur fyrir framan markið eins og oft áður í
sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
BARÁTTA Þróttarar börðust geysilega hart í gær eins og Jónas Guðni Sævarsson fær
að finna fyrir hér. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Stjarnan er enn á mik-
illi siglingu í Pepsi-deild karla en
í gær vann liðið 3-0 sigur á ÍBV í
nýliðaslag deildarinnar. Tryggvi
Bjarnason kom Stjörnunni yfir í
fyrri hálfleik en varamaður hans,
Arnar Már Björgvinsson, skor-
aði síðari tvö mörk heimamanna í
þeim síðari.
Þar með er Stjarnan enn með
fullt hús stiga á toppi deildarinn-
ar. ÍBV er hins vegar á botninum
– stigalaust og á enn eftir að skora
mark.
Eyjamenn stilltu upp nokkuð
varnarsinnuðu liði. Stjörnumenn
lágu nokkuð þétt á gestunum.
Stjörnumenn sóttu mikið. Þeir
fengu mikið af hornspyrnum og
stórhættulegum innköstum þökk
sé langri kastgetu Steinþórs Freys
Þorsteinssonar. Hann tók einnig
hornin og alls átta slík í fyrri hálf-
leik. Eftir eitt slíkt lá knötturinn
loksins í netinu. Varnarmaðurinn
Tryggvi Bjarnason náði fínum
skalla sem hafnaði í netinu.
Forysta Stjörnumanna var
verðskulduð. Heimamenn héldu
uppteknum hætti í síðari hálf-
leik og voru mun sterkari aðilinn.
Tryggvi Bjarnason þurfti reyndar
að fara af velli í hálfleik, væntan-
lega vegna meiðsla, en inn í hans
stað kom Arnar Már sem átti eftir
að láta vel af sér kveða.
Það var svo á 62. mínútu að
Arnar Már skoraði sitt fyrra mark
í leiknum. Það kom eftir fallega
sókn Stjörnumanna þar sem hinn
sprettharði Halldór Orri Björns-
son kom upp vinstri kantinn og
lagði boltann fyrir markið. Þar
hafði Arnar betur í baráttunni við
Albert markvörð og náði að koma
knettinum í netið.
Arnar Már stráði síðan salti í
sár Eyjamanna er hann skoraði
þriðja mark Stjörnunnar undir
lok leiksins. Albert Sævarsson,
sem hafði annars átt fínan leik,
gerði sig sekan um slæm mistök í
marki ÍBV. Hann lét Arnar stela
frá sér boltanum og þurfti Arnar
lítið annað að gera en renna honum
yfir línuna.
„Það er mjög slæmt að vera með
ekkert stig eftir þrjá leiki enda
ekki það sem við ætluðum okkur
fyrir mót. Sérstaklega slæmt er að
við höfum ekki enn náð að skora
mark,“ sagði Heimir Hallgrímsson,
vonsvikinn þjálfari ÍBV, eftir leik.
Bjarni Jóhannsson, þjálfari
Stjörnunnar, var vitanlega afar
sáttur við sína menn í kvöld en
hans menn hafa nú unnið Grinda-
vík, Þrótt og ÍBV.
„Öllum þessum liðum var spáð í
neðri hluta deildarinnar en ég átti
samt ekki von á að vera með níu
stig eftir fyrstu þrjá leikina. Það
er framar mínum vonum.”
Bjarni var sérstaklega sáttur við
hversu duglegir hans strákar hafa
verið við markaskorun en Arnar
Már hefur verið öflugur og skorað
fjögur mörk í tveimur leikjum – í
báðum sem varamaður.
„Það er gríðarlega gott að hafa
mann eins og hann á bekknum.
Það er oft sagt um slíka ofurvara-
menn að það þýðir ekkert að hafa
þá í byrjunarliðinu – þá skora þeir
ekkert,” sagði Bjarni í léttum dúr.
– esá, - göj
Stjarnan heldur áfram að gera það gott í Pepsi-deild karla og er enn með fullt hús stiga:
Stjörnustrákarnir halda áfram að slá í gegn
MARKI FAGNAÐ Tryggvi Bjarnason fagnar hér marki sínu en Eyjamenn eru niðurlútir.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI