Fréttablaðið - 18.05.2009, Síða 46

Fréttablaðið - 18.05.2009, Síða 46
30 18. maí 2009 MÁNUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 HVAÐ SEGIR MAMMA? LÁRÉTT 2. sett, 6. skammstöfun, 8. hamfletta, 9. fuglahljóð, 11. bor, 12. rót, 14. fíflast, 16. rás, 17. blund, 18. óðagot, 20. ullarflóki, 21. auma. LÓÐRÉTT 1. klöpp, 3. frá, 4. sykurbráð, 5. blekk- ing, 7. mjór, 10. fálm, 13. poka, 15. dyggur, 16. iðka, 19. tvö þúsund. LAUSN LÁRÉTT: 2. lagt, 6. eh, 8. flá, 9. rop, 11. al, 12. grams, 14. atast, 16. æð, 17. lúr, 18. fum, 20. rú, 21. arma. LÓÐRÉTT: 1. berg, 3. af, 4. glassúr, 5. tál, 7. horaður, 10. pat, 13. mal, 15. trúr, 16. æfa, 19. mm. „Nafnið, já, það er kannski svolítið groddaralegt en þetta var bara það fyrsta sem kom upp í hugann á mér og mér fannst það fyndið,“ segir Sverrir Þór Sverrisson, grínisti með meiru. Sverrir hefur stofnað framleiðslufyrirtækið Sveppasýking í kringum barnamynd sem hann er að fara að gera um ævin- týri og svaðilfarir algjörs Sveppa og og vinar hans, Villa, sem naglbíturinn Vilhelm Anton Jónsson leikur. Ráð- gert er að tökur hefjist 25. maí. „Við spilum þetta svo- lítið eftir eyranu, ætli við förum ekki í innisenurnar fyrst og leyfum grasinu aðeins að grænka en förum síðan út í júní,“ útskýrir Sverrir en mynd- in segir frá því þegar Villi týnist og Sveppi fer að leita hans á ólík- legustu stöðum. Auk Sverris og Vilhelms koma þær Ilmur Kristjánsdóttir og Kastljósstjarnan Ragn- hildur Steinunn töluvert við sögu auk Auðuns Blöndal en hann hefur verið dálítið útundan þegar kemur að hvíta tjaldinu, ólíkt Sverri og Pétri Jóhanni Sigfússyni, hinum Strák- unum. „Auðunn leikur leiðinlega gæjann. Hann gerði það í þáttunum og tókst svona glimrandi vel upp með hlutverkið, hafði lítið fyrir því,“ segir Sverrir og hlær, hefur annars litlar skýringar á því af hverju Auðunn hefur ekki gert meira af því að leika í bíómynd- um. Sverrir er stórhuga þegar kemur að kvikmyndagerðinni og segist hugsa Sveppa-mynd- irnar í formi þríleiks. - fgg Sveppasýking komin á kreik „Ég er að flýja land, segi það bara án þess að blikna, og það eru ýmsar ástæður fyrir því,“ segir píanó- leikarinn og lagahöfundurinn Karl Olgeirsson. Hann flýr til Svíþjóð- ar ásamt konu og tveimur börnum, ætlar að koma sér fyrir í Lundi og einbeita sér að tónsmíðum. „Það eru nokkrar ástæður fyrir þessu, það er meiri vinna þarna úti og svo er stemningin hérna heima ekkert æðisleg,“ útskýrir Karl. Karl hefur lengi verið meðal fremstu tónlistarmanna þjóðarinnar en hann segist hafa verið kominn á ákveðna endastöð. „Mig hefur lengi langað til að komast inn á stærri tónlistarmarkað, í Svíþjóð búa tíu milljónir þannig að þetta er miklu meira um sig heldur en Ísland.“ Svíþjóð er stundum kölluð „popp- land“ af tónlistarsérfræðingum og Karl er vel meðvitaður um að mús- íkin er mikill iðnaður hjá Svíunum. „Þarna drýpur bara smjör af hverju strái,“ segir hann í léttum dúr. Hann rennir þó blint í sjóinn, kveðst þó kominn með slatta af tenglum frá vinum og kunningjum sem hafa verið að vinna úti í heimi. „Og svo er ég búinn að koma mér upp heimasíðu þar sem áhugasamir geta hlustað á lögin mín, ég er búinn að vera að vinna að þessu í dágóðan tíma.“ En kreppan ógurlega hafði úrslitaáhrif. „Já, ég held að hún hafi haft það, maður hefði eflaust ekki látið verða af þessu ef allt hefði verið í himnalagi hérna heima.“ - fgg Kalli Olgeirs flýr kreppuna til Svíþjóðar TIL SVÍÞJÓÐAR Karl Olgeirsson hefur ákveðið að flytja til Svíþjóðar ásamt fjölskyldu sinni enda sé stemningin hér á landi ekkert sérstök. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Í KVIKMYNDAGERÐ Sverrir Þór hefur stofnað framleiðslufyrirtækið Sveppasýkingu og vinnur að fjöl- skyldu- og barnamynd um Algjöran Sveppa. Ragnhildur Steinunn kemur við sögu í myndinni. „Ég er að sjálfsögðu mjög stolt af drengnum. Hann hefur alla tíð haft mjög mikinn áhuga á þessu.“ Gunnur Samúelsdóttir, móðir leikstjórans Samúels Bjarka Péturssonar sem er að taka upp 150 milljóna króna bjórauglýs- ingu í Prag. Gólfdúkur skynsamleg, -léttur í þrifum -auðveldur í lögn -glæsilegt úrval -fæst í 2, 3 og 4 m rúllum. FLOORING SYSTEMS Heimilisdúkur, sígild lausn: smekkleg og hagkvæm lausn þægilegt andrúmsloft Svefnherbergið hjarta heimilisins Eldhúsið einfaldara verður það ekki Forstofan SÍÐUMÚLA 14 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 510 5510 Sérverslun með gólfdúk og teppi „Við byrjum tökur í júlí og ef allt gengur samkvæmt áætlun er ráð- gert að þeim ljúki í ágúst,“ segir Grímur Hákonarson. Hann er að fara að leikstýra sinni fyrstu kvik- mynd í fullri lengd eftir mikla velgengni á stuttmyndasviðinu. Nægir þar að nefna Slavek the Shit og Bræðrabyltu sem báðar hafa hlotið fjölmörg verðlaun á alþjóðlegum hátíðum. Það er kvik- myndafyrirtæki Baltasars Kor- máks, Blue Eyes, sem framleiðir myndina en einvalalið tæknifólks kemur að gerð hennar: Ari Krist- insson verður á bak við tökuvélina og Linda Stefánsdóttir sér um leik- myndahönnunina. Sumarlandið er kolsvört kóm- edía með þeim Ólafíu Hrönn Jóns- dóttur og Kjartani Guðjónssyni í aðalhlutverkum; Ólafía leikur miðil af gamla skólanum en Kjart- an er eiginmaður hennar. „Persóna Ólafíu er byggð á þekktum miðl- um á borð við Erlu Stefánsdóttur og Þórunni Maggý. Hún er ekki með nein spil eða spákúlu heldur er bara í góðu sambandi við hina framliðnu, er hálfgerður sálu- sorgari fyrir syrgjendur,“ segir Grímur. Persóna Kjartans er hins vegar illa smituð af 2007-hugsun- arhættinum þar sem allt var til sölu, álfar, tröll og bara spíritism- inn eins og hann leggur sig. „Hann reynir að markaðssetja þetta allt af miklum móð.“ Upphaflega stóð til að myndin færi í tökur síðasta haust en ekki náðist að fjármagna myndina að fullu. Grímur kveðst hálffeginn yfir þeirri lendingu. „Ég nýtti veturinn til að fara aðeins betur yfir handritið og fékk Ólaf Egil Egilsson til að fara aðeins yfir það með mér.“ Leikstjórinn segist tilbúinn fyrir kvikmynd í fullri lengd, þetta sé eitthvað sem hann hafi alltaf stefnt að. „Annars finnst mér lítill munur á stuttmyndum og kvikmyndum í fullri lengd, þetta er bara aðeins meiri vinna, lengri tökutími en annars voðalega svipað,“ segir Grímur sem gerir sér þó fylli- lega grein fyrir því að svona kvik- myndagerð fylgir meiri pressa. „Sem betur fer er Sumarlandið til- tölulega einföld mynd, hún gerist mestmegnis á sama staðnum. Hún er enginn Myrkrahöfðingi, slík mynd kemur bara seinna.“ freyrgigja@frettabladid.is GRÍMUR HÁKONARSON: SUMARLANDIÐ Á LEIÐ Í TÖKUR Í JÚLÍ Ólafía Hrönn verður miðill SUMARLANDIÐ Grímur Hákonarson er að fara að leikstýra sinni fyrstu kvikmynd í fullri lengd. Hún heitir Sumarlandið og skartar Ólafíu Hrönn og Kjartani Guðjónssyni í aðalhlutverkum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Ótrúlegt gengi Jóhönnu Guðrún- ar Jónsdóttur í Eurovision var vitanlega mál málanna um helgina. Fregnir berast af vinsældum lagsins Is it True? víða um heim, svo sem í Svíþjóð þar sem lagið er í fyrsta sæti yfir seld lög hjá iTunes og í Finnlandi þar sem það er í öðru sæti. Fréttablaðið sagði í síðustu viku frá því að Sony í Svíþjóð og fyrirtæki Simons Fuller væru á höttunum eftir Jóhönnu Guðrúnu. Ekki hefur áhuginn minnkað eftir að hún náði öðru sætinu og reyndar berast óljósar fréttir innan Euro vision-hópsins um að samn- ingaviðræður við eitt fyrirtæki séu komnar á rekspöl. En það eru ekki bara þeir sem fóru til Moskvu sem græða á Euro- vision-æðinu. Páll Óskar Hjálmtýsson hélt sitt árlega partí á Nasa og þar ættu nokkr- ar krónur að hafa komið í kassann. Að minnsta kosti hafði tónlistar- maðurinn á orði að aldrei nokkurn tímann, í langri sögu hússins, hefði jafn mikið af fólki verið þar inni á sama tíma. Bókaforlagið Veröld greinir frá því á vef sínum að eftir að Fréttablaðið sagði frá því að bók Láru Ómars- dóttur með kreppuráðum væri væntanleg hafi rignt inn fyrirspurnum um hvenær hún kæmi og vildi fólk fá að vita nánar um bókina. Bókin mun vera væntan- leg í verslanir á morgun. - hdm, jbg FRÉTTIR AF FÓLKI

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.