Fréttablaðið - 22.05.2009, Blaðsíða 4
4 22. maí 2009 FÖSTUDAGUR
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
0
9
-0
3
6
3
... alla daga
HEILBRIGÐISMÁL Íslendingar neyta
allra Norðurlandaþjóða mest af
sykri á ári. Drykkja á sykruðum
gosdrykkjum vegur þyngst, tæp
fjörutíu prósent af allri sykur-
neyslunni. Íslendingar innbyrða
að meðaltali 48,3 kíló af sykri á
mann, en Svíar 41,8 kíló, Danir
37,6 kíló, Finnar 33,3 og Norð-
menn 32,9 kíló. Þessar tölur eru
miðaðar við árið 2007 nema hjá
Svíum, sú tala er frá 2006.
Viðbættur sykur er í mörgum
matvörum, til dæmis mjólkurvör-
um, jógúrt, sælgæti, gosdrykkj-
um, kökum, kexi og morgunkorni.
Myndin hér til hliðar sýnir að 25
sykurmolar eru í hálfs lítra kók,
11,5 molar í Tomma og Jenna
drykk, tólf í skyrdrykk og sex
sykurmolar eru í skál af Cocoa
Puffs. Enginn viðbættur sykur
er til dæmis í hreinni léttmjólk,
Trópí eða Flórídana.
Sykurskattur hefur verið um
langt skeið hér á landi. Virðis-
aukaskattur var þó lækkaður úr
24,5 prósentum í sjö prósent á
sælgæti, súkkulaði, gosi, kolsýrðu
vatni, ávaxtasöfum og kexi fyrsta
mars 2007 og vörugjöld felld niður
á þessum vörum, þó að sykur og
sætindi héldu áfram að bera sjö
prósenta vörugjöld.
Tinna Laufey Ásgeirsdótt-
ir hagfræðingur segir að verð-
næmi sykurs sé töluverð fyrir
ákveðna hópa. Sykurskattur hafi
mest áhrif á þá sem ríkið vilji oft
reyna að ná til en áhrifin komi
ekki mikið fram í meðaltali yfir
alla landsmenn.
„Áhrifin eru mest á stórneyt-
endur og langmest á unglinga og
ungt fólk. Suma hópa er töluvert
auðvelt að nálgast með fræðslu en
aðrir hópar verða alltaf útundan.
Fræðsla nær til dæmis síður til
unglinga og fólks með lága félags-
lega og efnahagslega stöðu. Þetta
fólk er með minni peninga milli
handanna og borðar ekki jafn
hollan mat.“
Tinna Laufey bendir á að 24,5
prósenta skattur sé í landinu
almennt en gosdrykkir séu und-
anþegnir töluvert miklum skatti
því að á þeim sé aðeins sjö pró-
senta vörugjald. „Ég sé enga kosti
við það að niðurgreiða skatt á gos-
drykkjum umfram aðra vöru í
landinu,“ segir hún.
Í Noregi er tæplega þriggja
norskra króna skattur á hvern
lítra af alkóhóllausum gosdrykkj-
um. Í Danmörku er 0,91 danskur
eyrir í skatt á lítra af gosi. Stein-
grímur J. Sigfússon fjármála-
ráðherra segir að ekkert hafi
verið ákveðið um hvort sérstakur
sykur- eða gosskattur verði lagð-
ur á. ghs@frettabladid.is
Íslendingar eiga Norður-
landamet í sykurneyslu
Af Norðurlandaþjóðunum neyta Íslendingar mests sykurs, tæp 50 kíló á mann á ári, mest úr gosdrykkjum.
24,5 prósenta skattur var færður í 7,0 prósent 2007 og vörugjöld felld niður, nema á sykri og sætindum.
Coca Cola Tommi
og Jenni
Jógúrt Cocoa
Puffs*
Skyrdrykkur Kappi Trópí Flórídana Létt
súrmjólk
Léttmjólk Kókómjólk
með sykri
H
ei
m
ild
: L
ýð
he
ils
us
tö
ð
25
6
12
6
0 0 00
11,5
7
5,5
Dæmi um viðbættan sykur í nokkrum tegundum matvæla
Tölurnar sýna fjölda sykurmola. Hver moli er 2,0 grömm af hvítum sykri.
*í 30 gr. skammti af Cocoa Puffs
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
26°
17°
22°
21°
17°
19°
22°
20°
14°
17°
23°
18°
30°
28°
11°
21°
32°
16°
10
12
12
10
12
7
8
8
13
13
6
4
4
6
5
3
5
13
8
5 6
2
12
Á MORGUN
5-10 m/s
SUNNUDAGUR
8-13 m/s
10 12
7
810
13
10
9
12
HELGARHORFUR Nú
er veðrið að taka á sig
breytta mynd. Rign-
ingin er að sækja á og
strax í nótt má búast
við að fyrstu droparnir
byrji að falla sunnan
til en á morgun verð-
ur víða rigning eða
skúrir. Á Austurlandi
fer að rigna síðdegis
en úrkomulítið verður
á Norðurlandi fram til
kvölds. Svipað veður
verður á sunnudag
en þá verður reyndar
heldur stífari vindur.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
SAMGÖNGUR „Við erum að reyna að
finna leiðir til að endurfjármagna
starfsemina,“ segir Jórunn Frí-
mannsdóttir, stjórnarformaður
Strætós bs.
Hallarekstur var mikill á
rekstri Strætós í fyrra og nema
skuldirnar um 1.750 milljónir.
Jórunn segir nokkrar leiðir færar
til að brúa bilið. „Það er hægt að
gera það með auknum framlög-
um sveitarfélaganna eða aflétta
skuldum af fyrirtækinu,“ segir
Jórunn.
Vaxtagreiðslur af lánum voru
miklar á árinu sem leið. Gjöld
til ríkisins voru samtals um 300
milljónir og segir Jórunn að það
séu greiðslur
sem ríkið gæti
komið til móts
við Strætó.
Spu rð u m
hvort enn verði
frítt í strætó
fyrir nemend-
ur segir Jór-
unn nemenda-
verkefnið vera
j á k væt t o g
það hafi verið
gaman að sjá hvernig það þró-
ast.
„Ég held hins vegar að það sé
mikilvægt að neminn komi að
einhverju leyti að kostnaðinum
en við þurfum að sjá hvað sveit-
arfélögin geta,“ segir Jórunn.
Strætó bs. er sameiginlega
rekið af sex sveitarfélögum á höf-
uðborgarsvæðinu. Jórunn segir
mismunandi skoðanir vera á því
hvaða leiðir á að fara innan sveit-
arfélaganna, hvort skerða eigi
þjónustu eða hækka fargjöld.
„Fyrst og síðast þarf fólk ekki
að hafa áhyggjur af því að það
sé verið að fara í frekari þjón-
ustuskerðingu,“ segir Jórunn en
Strætó hefur farið í mikinn nið-
urskurð, meðal annars með lækk-
un launa stjórnarmanna og þeirra
hæstlaunuðu.
- vsp
Skuldir Strætós bs. voru um 1.750 milljónir króna á síðasta ári:
Ríkið komi til móts við Strætó
JÓRUNN ÓSK
FRÍMANNSDÓTTIR
SJÁVARÚTVEGUR Veiðar á norsk-
íslensku síldinni eru hafnar. Tvö
skip útgerðarinnar Skinneyj-
ar Þinganess, Jóna Eðvalds og
Ásgrímur Halldórsson, eru vænt-
anleg til hafnar í dag með 2.200
tonn af síld.
„Það segir svo sem ekki mikið
um framhaldið þótt þetta byrji
svona vel. En við erum bjart-
sýnir á góða veiði í sumar. Hún
hefur verið það undanfarin ár,“
segir Ásgeir Gunnarsson, útgerð-
arstjóri á Hornafirði. Alls fara
1.200 tonn af aflanum í bræðslu,
en 1.000 tonn í vinnslu. Skipin
hafa verið við veiðar um 170 sjó-
mílur norður af Langanesi. - kg
Norsk-íslenski síldarstofninn:
Góð byrjun á
síldveiðinni
FERÐAMÁL Fyrsta skemmtiferða-
skip sumarsins lagðist að bryggju
á þriðjudagskvöld. Skipið heit-
ir Seven Seas Voyager, er um 46
þúsund tonn og rúmar um sjö
hundruð gesti. Á skipinu er hægt
að taka tölvunámskeið, dansnám-
skeið og taka þátt í listmunaupp-
boðum.
Ekki var gert ráð fyrir löngu
stoppi því skipið átti, samkvæmt
áætlun, að leggja af stað frá
Íslandi í gærkvöldi. Gert er ráð
fyrir að hátt í 80 skemmtiferða-
skip komi til Íslands í sumar. - vsp
Fyrsta skemmtiferðaskipið:
Hátt í 80 skip
koma í sumar
SUNDAHÖFN Seven Seas Voyager átti að
leggja úr höfn í gærkvöldi.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
EGYPTALANDI Egypski milljarða-
mæringurinn og þingmaður-
inn Hisham Talaat Moustafa var
dæmdur til dauða fyrir morðið á
líbönsku poppstjörnunni Suzanne
Tamim í gær.
Hisham hafði borgað fyrrum
lögreglumanni um 250 milljón-
ir íslenskra króna fyrir að myrða
söngkonuna. Morðinginn sjálfur
var einnig dæmdur til dauða.
Ástæða morðsins er talin vera
að Suzanne hafði nýverið hætt
leynilegu ástarsambandi við His-
ham og byrjað að hitta íraska
sparkhnefaleikastjörnu.
Suzanne, sem var þrítug og
fræg söngkona í heimalandi sínu,
fannst látin í íbúð sinni í Dubai í
júlí síðastliðnum. - vsp
Dæmdur til dauða:
Borgaði millj-
ónir fyrir morð
GENGIÐ 20.05.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
213,6937
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
127,47 128,07
197,47 198,43
174,00 174,98
23,369 23,505
19,761 19,877
16,565 16,663
1,3297 1,3375
194,12 195,28
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR