Fréttablaðið - 22.05.2009, Side 8
8 22. maí 2009 FÖSTUDAGUR
Norræna umhverfisfjármögnunarfélagið (NEFCO) og norræni verkefna-
útflutningssjóðurinn (NOPEF) efna til kynningar á starfsemi sjóðanna
miðvikudaginn 27. maí kl. 08.15–10.00 á Grand Hótel Reykjavík.
Norræna umhverfisfjármögnunarfélagið (NEFCO) er alþjóðleg fjármála-
stofnun í eigu ríkisstjórna Norðurlandanna. Meginmarkmið NEFCO er að
fjármagna hagkvæm verkefni á grannsvæðum Norðurlandanna í Austur-
Evrópu, Rússlandi og Úkraínu. Verkefnin skulu miða að því að minnka
umhverfisáhrif, t.d. við öflun og nýtingu orku, í iðnaði og við meðhöndlun
úrgangs.
Norræni verkefnaútflutningssjóðurinn (NOPEF) er sjóður sem starfar á
vegum Norrænu ráðherranefndarinnar. Meginmarkmiðið með starfsemi
NOPEF er að styrkja alþjóðlega samkeppnishæfni lítilla og meðalstórra
fyrirtækja á Norðurlöndum.
Dagskrá fundarins:
Setning:
Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri og formaður stjórnar NEFCO.
Kynning á starfsemi NEFCO:
Magnús Rystedt, framkvæmdastjóri NEFCO og Þórhallur Þorsteinsson,
fjárfestingaráðgjafi hjá NEFCO.
Lán til orkusparnaðar og samstarf við NEFCO:
Margeir Pétursson, stjórnarformaður MP banka.
Kynning á starfsemi NOPEF:
Brynhildur Bergþórsdóttir, formaður stjórnar NOPEF.
Að fundinum loknum verða fulltrúar frá sjóðunum með viðtalstíma á
Grand Hótel.
Vinsamlegast skráið þátttöku í fundinum í síðasta lagi mánudaginn 25. maí
á netfangið: postur@umh.stjr.is
Í
p
o
k
a
h
o
rn
in
u
NEFCO og NOPEF
– tækifæri fyrir
þitt fyrirtæki?
UMHVERFISMÁL „Yfirleitt er því
fleygt fram að náttúran á Íslandi
sé ómetanleg. Hún er ómetanleg
en við erum að meta þjónustuna
sem hún veitir okkur. Á þessu
er blæbrigðamunur. Streymi
þjónustunnar getum við mælt
en náttúran sjálf er augljóslega
ómetanleg,“ segir Brynhildur
Davíðsdóttir, dósent í umhverf-
is- og auðlindafræði við Háskóla
Íslands.
Meistara- og doktorsnemar við
Háskóla Íslands vinna nú að heild-
stæðu verðmætamati á þjónustu
náttúrunnar þar sem þeir meta
verðgildi þess sem náttúran veit-
ir. Hópurinn notar Heiðmörkina
sem rannsóknarvettvang. Þegar
lokaniðurstaðan liggur fyrir
verður ljóst hvert gildi Heiðmerk-
urinnar er í peningum. Þetta er
fyrsta rannsóknin af þessu tagi
á Íslandi.
Búið er að skilgreina alla þjón-
ustuþætti, til dæmis vötnin og
útivistargildið, og verður við-
urkenndum aðferðum beitt við
að meta verðgildi hvers þáttar.
Spurningakönnun fer fram þar
sem vegfarendur um Heiðmörk-
ina mega búast við að vera stopp-
aðir og spurðir hvaðan þeir komi,
hvað þeir séu að gera og hvað þeir
ætli að vera lengi. „Út frá þessum
upplýsingum metum við hversu
miklum peningum fólk er tilbúið
til að eyða í Heiðmerkurferð.“
Björgólfur Thorsteinsson, for-
maður Landverndar, segir að
miklu máli skipti að reikna út
verðmæti náttúrunnar. Rýrist
þessi eign þá minnki það höfuð-
stólinn. Taka beri tillit til þess.
„Hingað til hafa menn ekki tekið
þetta með í útreikninga en þeir
eiga að gera það þegar þeir meta
arðsemi framkvæmda. Sú staða
gæti komið upp við útreikninga
að framkvæmdin sé arðbær.
Umhverfiskostnaðinum er þá
sleppt. Ef umhverfiskostnaðinum
er sleppt getur það leitt til þess að
menn taki rangar ákvarðanir.“
Lokaniðurstaðan liggur fyrir
árið 2010. „Þá er kominn verðmiði
á Heiðmörkina,“ segir Brynhild-
ur. „En verðgildi er alltaf svolít-
ið afstætt. Markmiðið er að sýna
fram á hið margþætta gildi nátt-
úrunnar. Við á Íslandi höfum
gleymt því en það er það sem
skiptir máli. Við horfum á ár og
sjáum bara megavött. Þegar hægt
verður að líta heildrænt á það sem
náttúran gefur verður kannski
hægt að vega og meta með skyn-
samlegri hætti hvernig við nýtum
náttúruna,“ segir hún og vonast
til að rannsóknin leiði til fram-
fara í umhverfisumræðunni.
ghs@frettabladid.is
Reikna út verðmiða
fyrir Heiðmörkina
Háskólafólk reynir nú að meta hversu mikils virði Heiðmörkin er og á verðmið-
inn að liggja fyrir 2010. Ekki er tekið tillit til umhverfiskostnaðar við arðsemis-
útreikninga hér. Getur leitt til rangra ákvarðana, segir formaður Landverndar.
ÞJÓNUSTUNA ER HÆGT AÐ MÆLA Unnið er að rannsókn á verðgildi þjónustunnar
sem náttúran í Heiðmörk veitir og liggur niðurstaðan endanlega fyrir árið 2010. Oft
er sagt að náttúran sé ómetanleg. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
1 Hvaða íslenska sveitarfé-
lag er vinabær heimabæjar
Alexanders Rybak, Eurovision-
sigurvegara?
2 Hver sigraði American Idol?
3 Hvað heitir nýútkomin bók
Láru Ómarsdóttur fréttakonu?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 34
ÚTIVIST „Þetta er allt að fara af stað núna. Það er
mikið spurt um verð á tjöldum og tilheyrandi og
eitthvað keypt, og við sjáum fram á góða sölu í
sumar,“ segir Sigurður Guðmundsson, afgreiðslu-
maður í ferða- og útivistarversluninni Everest. Flest
bendir til að margir kjósi að ferðast innanlands í
sumar.
Sigurður segir mest spurst fyrir um fjölskyldu-
tjöld, sem rúma fimm til sex manns. „Ég hef ekki
samburð milli ára en ég gæti trúað að salan væri að
fara fyrr af stað nú en venjulega,“ segir Sigurður.
Tómas Zahniser, afgreiðslumaður í Veiðimannin-
um, sem einnig selur tjöld, segir að venjulega byrji
tjöld ekki að seljast af neinu viti fyrr en í júnímán-
uði. Þó sé nokkuð ljóst að stærstu tjöldin verði vin-
sæl í sumar. „Mér heyrist á viðskiptavinunum að
það sé algengt að fólk leggi ekki í að kaupa sér hjól-
hýsi eða fellihýsi og ætli því að fjárfesta í tjaldi í
staðinn.“
Arnar Barðdal, eigandi Víkurverka sem bjóða
meðal annars hjólhýsi og fellihýsi til sölu, segir söl-
una ganga ótrúlega vel miðað við aðstæður í þjóð-
félaginu. „Að sjálfsögðu finnum við mikinn mun
miðað við síðustu ár. Bæði notuð og ódýr felli-
hýsi eru reyndar að seljast fremur vel, en á kostn-
að þeirra dýrari. Við höfum ekkert keypt inn síðan
í fyrra og erum því að saxa á lagerinn. Með þessu
áframhaldi sé ég fram á að hann gæti klárast að
mestu leyti um mitt sumar,“ segir Arnar. - kg
Fjöldi fólks mun væntanlega ferðast innanlands í sumar:
Tjaldasala með fyrra móti
AKUREYRI Líkur eru á að mannmargt verði á tjaldstæðum
landsins í sumar.
BANDARÍKIN Fjórir menn voru hand-
teknir fyrir að reyna að koma fyrir
sprengjum í tveimur bænahúsum
gyðinga í Bronx í New York á mið-
vikudagskvöld. Jafnframt ætluðu
þeir að skjóta flugskeytum að her-
flugvélum.
Maðurinn sem útvegaði þeim
sprengiefni og flugskeytin var
hins vegar fulltrúi frá FBI, sem
villti á sér heimildir og útvegaði
þeim platsprengjur sem engin
hætta stafaði af.
„Þetta var mjög vel stjórn-
uð aðgerð en þessir aðilar koma
sprengjum fyrir – eða það sem þeir
héldu að væru sprengjur – fyrir
framan byggingar,“ sagði Raym-
ond Kelly, yfirlögregluþjónn hjá
New York-lögreglunni.
Michael Bloomberg, borgarstjóri
New York-borgar, sagði að tilraun-
in væri áminning til New York-búa
að vera ávallt á varðbergi.
„Við þurfum alltaf að vera með-
vituð og við verðum alltaf að vera
viss um að eiga bestu lögreglusveit
í heiminum. Að þeim sé vel stjórn-
að og þær vel þjálfaðar,“ sagði
Bloomberg.
Fjórmenningarnir eru allir
múslimar, þrír Bandaríkjamenn
og einn frá Haíti. Þeir verða allir
kærðir fyrir samsæri vegna nota
á gereyðingarvopnum í Bandaríkj-
unum og að reyna að nota ólögleg
flugskeyti. Líklegt er að dómur
yfir þeim, ef þeir verða fundnir
sekir, verði um 25 ár til lífstíðar.
- vsp
Fjórir menn handteknir á miðvikudagskvöld fyrir tilraun til sprengjuárásar:
Notuðu platsprengjur frá FBI
BRONX-HVERFIÐ Lögreglumenn kanna
aðstæður við Riverdale-bænahúsið í
Bronx í New York. NORDICPHOTOS/AFP
ÍRAN, AP Tilraun með hátækni-
skotflaugar í Íran í fyrradag
gekk vel að sögn Mahmoud
Ahmadinejad, forseta landsins.
Hafa þessar fréttir vakið mikinn
ótta í Ísrael þar sem flaugarn-
ar draga til Ísrael og Suðaustur-
Evrópu.
Flaugarnar eru af gerðinni Saj-
jil-2 og þykja háþróaðar. Þeim
var skotið frá borginni Semn-
an í norðurhluta landsins. Bar-
ack Obama, forseti Bandaríkj-
anna, hefur reynt að fá Írana til
að hætta tilraunum sínum á eld-
flaugum. Hins vegar halda Íran-
ar því fram að eldflaugarnar séu
eingöngu varnartæki. - hds
Hátæknivæddar skotflaugar:
Vekja mikinn
ótta í Ísrael
VEISTU SVARIÐ?