Fréttablaðið - 22.05.2009, Blaðsíða 20
„Við erum algerlega árstíðabund-
inn leikhópur og störfum bara
á sumrin,“ segir Anna Bergljót
Thorarensen sem er í forsvari
fyrir leikhópinn Lottu sem frum-
sýnir á laugardaginn nýtt barna-
leikrit í Elliðaárdalnum.
Þetta er þriðja sumarið sem
hópurinn setur upp útileikrit en
fyrsta sumarið setti hann upp
Dýrin í Hálsaskógi en í fyrra var
það Galdrakarlinn í Oz í nýrri
leikgerð Ármanns Guðmunds-
sonar.
„Í ár flytjum við nýtt barna-
leikrit byggt á þremur þekktum
barnaleikritum. Þetta eru Rauð-
hetta og úlfurinn, Grísirnir þrír
og Hans og Gréta,“ útskýrir Anna
Bergljót en sögurnar fléttaði Snæ-
björn Ragnarsson saman á nýstár-
legan og skemmtilegan hátt svo úr
varð stærðarinnar ævintýr. Þá
hefur hann einnig samið lög fyrir
verkið ásamt bróður sínum Baldri
og Gunnari Ben.
Um valið á leikritinu segir
Anna: „Við reynum að velja leik-
rit sem henta sviðinu og þar sem
ævintýrið um Rauðhettu fer að
mestu fram utan dyra passaði það
vel.“ Þar sem sýningin er utan-
dyra mælir Anna Bergljót með
því að fólk klæði sig eftir veðri og
taki með sér teppi að sitja á.
„Sýningin hentar öllum enda er
þetta fjölskylduleikrit fyrir bæði
fullorðna og börn,“ segir Anna
Bergljót og bætir við að eftir sýn-
inguna, sem stendur í um klukku-
tíma, bjóði þau krökkunum að
koma upp á svið til að spjalla við
leikarana og knúsa sína uppá-
haldskaraktera.
Frumsýningin á morgun fer
fram í svokölluðu Indíánagili í Ell-
iðaárdalnum og hefst klukkan 14.
„Svo verðum við þar alla miðviku-
daga í sumar klukkan 18,“ segir
Anna Bergljót sem lýsir Indíána-
gili sem algerri töfraveröld þar
sem borgarysinn hverfi eins og
dögg fyrir sólu.
Fleiri en borgarbúar fá að njóta
Rauðhettu í sumar enda stefnir
leikhópurinn Lotta á að sýna
leikritið á yfir 50 stöðum um allt
land.
Miðaverð er óbreytt frá fyrri
árum og kostar 1.500 krónur
fyrir fullorðna en 1.000 krónur
fyrir börn.
Nánari upplýsingar um sýning-
arnar má finna á heimasíðu hóps-
ins www.leikhopurinnlotta.is.
solveig@frettabladid.is
Rauðhetta og grísirnir þrír
Leikhópurinn Lotta frumsýnir laugardaginn 23. maí nýtt íslenskt barnaleikrit í Elliðaárdalnum. Þar koma
við sögu þekktar persónur á borð við Rauðhettu, grísina þrjá og Hans og Grétu.
Úlfurinn hefur náð taki á Rauðhettu sem gólar af skelfingu. Leikhópurinn Lotta verð-
ur með sýningar í Elliðaárdalnum alla miðvikudaga í sumar klukkan 18, en frumsýnir
leikritið á laugardaginn klukkan 14. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Grísir fylgjast með Rauðhettu og úlfinum.
STOFUTÓNLEIKAR verða haldnir á 25 heimilum Listahá-
tíðarhelgina 22. til 24. maí. Tónlistarmenn og hópar flytja sígilda
tónlist, popp, rokk, raftónlist og margt fleira í einstakri nálægt við
áheyrendur. www.listahatid.is
Nýkomnar margar gerðir af
opnum dömuskóm.
Stærðir 36 - 42
Verð: 10.900.-
Blaðberinn
bíður
þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...