Fréttablaðið - 22.05.2009, Síða 25
22. maí föstudagur 5
KJAVÍK
endahópur á Íslandi, þótt hann
fari ört stækkandi, að það er svo-
lítið eins og það væru bara til tvær
tónlistarstefnur á landinu. Maður
hefur alveg heyrt fólk segja; „Ég
hef farið á danssýningu og mér
finnst það ekki skemmtilegt,“ en
það er álíka og að segja; „Ég fór
einu sinni á tónleika og fannst
ekki gaman svo ég ætla ekki aftur
á tónleika.“ Ég vil bara að fólk
viti að það eru til fullt af stefnum
innan nútímadansins, ekki síður
en innan tónlistar. Ég er ótrúlega
ánægð að það hafi svona margir
komið á Húmanimal og jafn breið-
ur hópur kunnað að meta sýning-
una, án þess kannski að vita að
það var að horfa á danssýningu,“
segir hún, en síðasta sýning Húm-
animal er 24. maí næstkomandi í
Hafnafjarðarleikhúsinu.
VILL EKKI FLÝJA LAND
Spurð hvort hún sé í fullu starfi
sem danshöfundur segir Margrét
það ekki beint vera í boði, ekki
eins og er. Hún hefur tekið að sér
önnur verkefni meðfram því að
semja eigin verk, en dreymir um
og veit að dansinn muni vaxa
sem listgrein hér á landi í nán-
ustu framtíð. „Það er óhjákvæmi-
legt nú þegar Listaháskólinn er að
útskrifa fyrsta árganginn úr dans-
brautinni. Við eigum samt svolítið
langt í land því hér er ekkert dans-
hús, bara leikhúsin sem eru með
sína eigin dagskrá. Okkur vantar
tilfinnanlega danshús til að geta
sett upp okkar sýningar og æf-
ingaaðstöðu því maður er mikið
bara heima í stofu að skapa og á
góðri leið með að þróa svona 5 fer-
metra dansstíl. Í öllum meðalstór-
um borgum eru dansleikhús, það
mun verða á Íslandi líka og ég trúi
ekki öðru en að það gerist fljótt. Ef
danslistin á eitthvað að vaxa á Ís-
landi. Það þýðir ekki að vera hobbý-
danshöfundur, þú þarft að stunda
listina,“ útskýrir Margrét sem er í
sambandi við ástralskan leikhús-
leikstjóra sem hún kynntist þegar
hún var að vinna í Berlín. „Hann
vinnur bæði í Ástralíu og Berlín
svo við hittumst svona hér og þar,“
segir hún en kveðst ekki ætla að
flytja af landi brott í bráð. „Það felst
í starfi danshöfundarins að ferðast
með verkin sín, en ég óska þess að
geta verið með vinnuaðstöðu á Ís-
landi og ég leyfi mér bara að vera
bjartsýn um það, allavega langar
mig ekki að flýja land,“ segir Mar-
grét og kveður með brosi á vör.
Lúxusnámskeið NordicaSpa er hannað til
að koma þér af stað á mjög árangurs ríkan
og einfaldan hátt. Tilgangur námskeiðsins
er að koma þér á æðra stig hvað varðar
líkamlega og andlega heilsu.
Fimm tímar í viku – Brennsla og styrkur
3 öflugir brennslutímar
2 styrktartímar í sal undir handleiðslu þjálfara
Vikulegar mælingar
Ítarleg næringarráðgjöf
Fyrirlestur – Borðaðu til að léttast og auka orkuna
Slökun og herðanudd eftir hverja æfingu
Hollustudrykkur eftir hverja æfingu
Takmarkaður fjöldi
6:30, 7:30, 10:00, 16:30 og 18:30 fimm sinnum í viku
Þjálfari er Gunnar Már Sigfússon
1. vika – Orkuhleðsla
Í fyrstu vikunni byggir þú upp orku og kemur líkamanum í jafnvægi.
2. vika – Öflug melting – Aukin brennsla
Í viku tvö er verið að efla og bæta meltinguna til að þú fáir sem mest
út úr holla matnum sem þú ert að borða.
3. vika – Hormóna jafnvægi – Hreinsun
Þriðja vikan mun koma jafnvægi á hormónaflæði líkamanns sem mun
hafa áhrif á skap þitt, lífsorku og kraft.
4. vika – Ónæmiskerfi eflt – Jafnvægi
Í viku fjögur byggjum við upp ónæmiskerfið og hjálpum því að verja
líkamann á náttúrulegan hátt.
Ný námskeið hefjast 2. júní
Skráning er hafin í síma 444 5090 eða
nordicaspa@nordicaspa.is www.nordicaspa.is
Hilton Reykjavík Nordica Hotel
Suðurlandsbraut 2
Sími 444 5090
nordicaspa@nordicaspa.is
di i
fyrir konur og karla
Sjöfn Sigþórsdóttir hjúkrunarfræðingur
og María Kristjánsdóttir lögmaður
Námskeiðið er frábær
leið til að auka
styrk, úthald
og hreyfigetu. Við erum betur í stakk búnar
að takast á við krefjandi verkefni
Ég breytti um LÍFSSTÍL
og þú getur það líka.
Búinn að missa yfir 20 kíló
á tveimur og hálfum mánuði
og er enn að léttast
Gissur Ísleifsson tölvunarfræðingur