Fréttablaðið - 22.05.2009, Qupperneq 38
26 22. maí 2009 FÖSTUDAGUR
Hljómsveitirnar Amiina og Blood-
group ásamt tónlistarmönnunum
Jóni Ólafssyni og Ólöfu Arnalds
verða á meðal þeirra sem koma
fram á stofutónleikum Listahátíð-
ar Reykjavíkur frá föstudegi til
sunnudags.
Amiina spilar í húsi Hannesar
Hafstein að Grundarstíg 10 á laug-
ardagskvöld klukkan 21. Flutt verð-
ur nýtt efni þar sem húsið og hin
fjölmörgu rými þess verða notuð
sem innblástur í tóna sem hljóma
í flutningi hljómsveitarinnar. Ólöf
Arnalds tekur á móti gestum á
heimili sínu að Ingólfsstræti 10 á
föstudag klukkan 17. Þar ætlar hún
að leika og syngja eigin lög, gömul
og ný í bland, auk annarra laga og
lagstúfa úr ýmsum áttum. Dregur
hún fram úr pússi sínu margvís-
lega gítara og strengjahljóðfæri
gestum sínum til skemmtunar.
Jón Ólafsson ætlar sitja við
sinn flygil á heimili sínu að Haga-
mel 33 á laugardagskvöld klukkan
19 og flytja eigið efni frá ýmsum
tímum.
Diddú og Felix Bergsson auk
hljómsveitanna Reykjavík!, FM
Belfast og Retro Stefson halda
einnig stofutónleika ásamt fleiri
listamönnum. Hægt er að kynna
sér dagskrána nánar á síðunni
Listahatid.is. - fb
NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500
SÍMI 564 0000
L
L
14
14
14
L
NIGHT AT THE MUSEUM 2 kl. 6 - 8 - 10
ANGELS & DEMONS kl. 6 - 9
L
14
NIGHT AT THE MUSEUM 2 kl. 3.20 - 5.40 - 8 - 10.20
NIGHT AT THE MUSEUM 2 LÚXUS kl. 3.20 - 5.40
ANGELS & DEMONS kl. 3 - 5 - 6 - 8 - 9 - 10.50
ANGELS & DEMONS LÚXUS kl. 8 - 10.50
X-MEN WOLVERINE kl. 3.20 - 5.40 - 8 - 10.20
MÚMÍNÁLFARNIR kl. 3
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR
BÍÓMIÐANN MEÐ KREDITKORTI
5%
L
14
12
14
L
NIGHT AT THE MUSEUM 2 kl. 5.40 - 8 - 10.20
ANGELS & DEMONS kl. 6 - 9
THE BOAT THAT ROCKED kl. 6 - 9
X-MEN WOLVERINE kl. 10
DRAUMALANDIÐ kl. 6 - 8
SÍMI 530 1919
L
14
14
12
16
NIGHT AT THE MUSEUM 2 kl. 5.40 - 8 - 10.20
ANGELS & DEMONS kl. 5.30 - 8.30
X-MEN WOLVERINE kl. 5.40 - 8 - 10.20
BOAT THAT ROCKED kl. 5.20 - 8
CRANK 2: HIGH VOLTAGE kl. 10.40
SÍMI 551 9000
HEIMSFRUMSÝNING!
STÓRMYND SEM ENGINN MÁ MISSA AF Í BÍÓ!
Þegar ljósin slökkna byrjar
fjörið... aftur! ... og nú í
stærsta safni í heimi!
CHICAGO TRIBUNE PREMIERE NEW YORK POST
ath. STRANGLEGA BÖNNUÐ BÖRNUM.
Wes Craven er mættur aftur með einhvern
ROSALEGASTA THRILLER SÍÐARI ÁRA.
TAKMARKAÐUR SÝNINGARFJÖLDI!
THE LAST HOUSE ON THE LEFT kl. 6 - 8 - 10:20 16
THE LAST HOUSE ON THE LEFT kl. 4 - 8 - 10:20 VIP
HANNAH MONTANA kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:30 L
STAR TREK XI kl. 5:30 - 8 - 10:30 10
NEW IN TOWN kl. 8:20 L
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN m/ísl.tali kl. 4D - 6D L
OBSERVE AND REPORT kl. 8 - 10:20 16
17 AGAIN kl. 4 - 6 L
I LOVE YOU MAN kl. 10:20 12
MONSTERS VS ALIENS m/ísl.tali kl. 3:40D L
THE LAST HOUSE ON THE LEFT kl. 8 - 10:20 16
JONAS BROTHERS 3D kl. 6(3D) - 8(3D) L
STAR TREK XI kl. 10D 10
HANNAH MONTANA kl. 3:40 - 5:50 - 8 L
ALFREÐ ELÍASSON OG LOFTLEIÐAMYND kl. 5:30D L
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN m/ísl.tali kl. 4D L
MONSTERS VS ALIENS m/ísl.tali kl. 3:30 L
LET THE RIGHT ONE IN kl. 10:20 síð sýn 16
THE LAST HOUSE ON THE LEFT kl. 8 - 10 16
HANNA MONTANA kl. 6 - 8 L
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN m/ísl.tali kl. 6 L
STAR TREK XI kl. 10 7
X MEN - ORIGINS WOLVERING kl. 8 14
NEW IN TOWN kl. 8 L
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN m/ísl.tali kl. 6 L
DRAUMALANDIÐ kl. 6 L
THE UNBORN kl. 10:20 16
STAR TREK XI kl. 10:20 10
SparBíó 550kr
Á ALLAR SÝNINGAR MERKTAR MEÐ GRÆNU
SparBíó 850kr
NIGHT AT THE MUSEUM kl. 5:50 - 8 - 10:10 L
HANNAH MONTANA kl. 5:50 L
OBSERVE AND REPORT kl. 8 16
THE UNBORN kl. 10:10 16
- bara lúxus
Sími: 553 2075
NIGHT AT THE MUSEUM kl. 2, 4, 6, 8 og 10 L
ANGELS & DEMONS kl. 4, 7 og 10 14
STAR TREK kl. 10 10
MÚMÍNÁLFARNIR kl. 2 - Íslenskt tal L
17 AGAIN kl. 2, 4, 6 og 8 L
“Spennandi, fyndin
og hraðskreið út í
gegn! Miklu betri en
Da Vinci Code.”
T.V. - kvikmyndir.is
- M.M.J., kvikmyndir.com
550 kr. í b íó . G i l d i r á a l l ar sýn ingar merk tar með rauðu!
Tónlistarmaðurinn Ölvis
gefur síðar á þessu ári út
sína fjórðu plötu, California
Sun. Upptökur fóru fram í
Sundlaug Sigur Rósar og í
Los Angeles, þar sem hann
dvaldi í fjóra mánuði.
„Hún er rosalega kalifornísk,“
segir Örlygur Þór Örlygsson,
Ölvis, um væntanlega plötu sína.
„Hún fjallar um fólkið og lífið og
tilveruna þar. Hún er rosalega
óíslensk miðað við hinar þrjár
plöturnar sem ég hef gert. Það er
mjög erfitt að heyra að þetta sé frá
Ísland og ég er í rauninni búinn að
skipta um sánd.“
Hann segist lengi hafa haft
áhuga á bandarískri tónlist frá sjö-
unda áratugnum og ákvað loks að
fara þangað og klára plötu undir
áhrifum frá þeirri menningu. „Ég
kynntist mikið af áhugaverðu fólki,
allt frá rónum upp í hina ríku. Það
hafði mikil áhrif á textagerðina,“
segir hann. Meðal annars kynntist
hann náunga að nafni Mark sem
var góður vinur goðsagnarinnar
Jims Morrison. „Mike sýndi mér
hvar hann bjó og hvernig hann
var. Hann var víst mjög leiðinleg-
ur maður. Hann fór úr öllum fötun-
um og hljóp allsber um ströndina,“
segir Ölvis, sem heitir réttu nafni
Örlygur Þór Örlygsson.
Á meðal þeirra sem aðstoða
hann á plötunni eru Orri Páll
Dýrason og Georg Holm úr Sigur
Rós og María Markan Sigfúsdótt-
ir úr Amiinu. Einnig koma meðal
annars við sögu Bjarni Hall úr
Jeff Who?, Arnar Geir Ómarsson
úr Ham og Skúli Gestson úr Diktu.
„Þetta eru allt gamlir og góðir
vinir. Þetta er eins og saumaklúbb-
ur. Ég bara hringi í fólkið og mæti
með mína tölvu og við finnum svo
eitthvað stúdíó,“ segir hann. Heyra
má tónlist Ölvis á síðunni Myspace.
com/theworldofolvis.
freyr@frettabladid.is
Á slóð Morrisons í Kaliforníu
ÖLVIS Tók hluta af nýjustu plötu sinni, California Sun, upp í Kaliforníu.
MYND/BJARNI GRÍMSSON
Englendingurinn Smutty Smiff, fyrrverandi með-
limur rokkabillísveitarinnar The Rockats sem var
vinsæl á áttunda áratugnum, hefur gengið til liðs
við hljómsveitina Esju.
„Hann er lifandi goðsögn,“ segir Krummi úr
Esju. „Þetta er meiriháttar heiður. Ég vissi hver
hann var áður en ég kynntist honum. Hann á
íslenska konu og íslenskan strák og þetta voru
bara fáránleg örlög og tilviljun að kynnast
honum.“
Smutty er kontrabassaleikari og tók hann vel í
að ganga til liðs við Esju þegar haft var samband
við hann. „Hann fílaði hljómsveitina svo vel. Við
höfum aldrei verið með bassaleikara þannig að við
ákváðum að fá hann í sveitina.“
Næstu tónleikar Esju með Smutty innanborðs
verða á Sódómu Reykjavík á föstudagskvöld
klukkan 23. Miðaverð er 1.000 krónur og hljóm-
sveitin Tenderfoot hitar upp. „Við ætlum að spila
nýtt efni og ég vonast til að allir komi og skemmti
sér vel með okkur,“ segir Krummi. -fb
Nýr liðsmaður Esju
ESJA Englendingurinn Smutty Smiff hefur gengið til liðs við
Krumma og Daníel Ágúst í Esju. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
AMIINA Hljómsveitin Amiina heldur
stofutónleika á Listahátíð í Reykjavík.
Stofutónleikar í
stórborginni
Fyrstu tónleikarnir í tónleika-
röðinni Manstu ekki eftir mér
fara fram á Nasa 11. júní. Í tón-
leikaröðinni koma fram þekktar
íslenskar hljómsveitir og flytja
sígildar eigin hljómplötur í heild
sinni. Hljómsveitin Ensími ríður
á vaðið og leikur lög af plötunni
Kafbáta músík sem kom út hjá
útgáfufélaginu Dennis árið 1998.
Platan hlaut gríðarlega góðar við-
tökur þegar hún kom út og fékk
Ensími tvenn verðlaun á Íslensku
tónlistarverðlaununum. Miðasala
á tónleikana er hafin á Midi.is.
Ensími spilar
Kafbátamúsík
ENSÍMI Hljómsveitin Ensími spilar plötu
sína Kafbátamúsík á Nasa 11. júní.