Fréttablaðið - 22.05.2009, Page 46

Fréttablaðið - 22.05.2009, Page 46
34 22. maí 2009 FÖSTUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 LÖGIN VIÐ VINNUNA LÁRÉTT 2. nautasteik, 6. guð, 8. fornafn, 9. bókstafur, 11. leita að, 12. þyrping, 14. hrópa, 16. tveir eins, 17. ennþá, 18. for, 20. tveir eins, 21. velta. LÓÐRÉTT 1. afl, 3. kringum, 4. græðgi, 5. af, 7. afbökun, 10. framkoma, 13. gerast, 15. sálar, 16. loft, 19. óreiða. LAUSN LÁRÉTT: 2. buff, 6. ra, 8. mér, 9. eff, 11. gá, 12. klasi, 14. öskra, 16. gg, 17. enn, 18. aur, 20. dd, 21. snúa. LÓÐRÉTT: 1. þrek, 3. um, 4. fégirnd, 5. frá, 7. aflögun, 10. fas, 13. ske, 15. anda, 16. gas, 19. rú. „Ég myndi aldrei setja þau í námu- gröft. Eða láta þau í að draga kerr- ur í álveri. En ef þeim býðst auð- veld vinna við leik – þá telst það ekki barnaþrælkun,“ segir Gunn- ar L. Hjálmarsson tónlistarmaður – betur þekktur sem neytendafröm- uðurinn Dr. Gunni. Nú er í birtingu glæsileg auglýs- ing frá Kjörís þar sem má sjá rauð- hærðan drenghnokka í rólu með íspinna. Þessi drengur er Dag- bjartur Óli Gunnarsson, sonur Dr. Gunna. „Já, sonur minn er þarna í aðalhlutverki og dóttir mín í litlu aukahlutverki í löngu útgáfunni. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem sonur minn er í auglýsingu,“ segir Dr. Gunni og bendir á að Dagbjart- ur hafi einnig birst í auglýsingu þar sem vakin er athygli á Glitn- isbankadagatali. Dr. Gunni hefur verið atkvæðamikill í umfjöllun sinni um neytendamál, skrifað í Fréttablaðið og vel þekkta blogg- síðu sína en hann hlaut einmitt hin íslensku neytendaverðlaun og tók við þeim úr hendi þáverandi við- skiptaráðherra, Björgvin G. Sig- urðssyni, í maí árið 2008. Það er því ekki úr vegi að spyrja Dr. Gunna, sem þann neytendafrömuð sem hann er, hvort þarna sé komið grá- upplagt kreppuráð: Að selja börn sín í auglýsingar? Dr. Gunni telur það ekki galið. „Þau bara vinna fyrir sér. Þetta fer allt í örugga sjóði, Sjóð 9 og svona. Ég meina, það er alltaf verið að safna í bauka og inn á bók. Ef þau geta fengið gott innlegg fyrir að vera brot úr degi í auglýsinga- gerð er það hið besta mál. En ég er ekki eins og pabbi Home Alone gæjans [Macauley Culkin] – ég ætla ekki að troða þeim þangað. Ég fór til dæmis ekki með soninn í prufu þegar auglýst var eftir rauðhærð- um krökkum í Georgs Bjarnfreð- armyndina. Enda er sonur minn allt of sætur til að geta hafa verið Georg ungur,“ segir Dr. Gunni. Og bætir því við að líklega sé það nú svo að frami sonar hans í auglýs- ingum standi í beinu samhengi við þá staðreynd að vinur hans, Jón Þór, starfar við gerð auglýsinga hjá Filmus. Það var kvikmyndafyrirtækið Filmus sem stóð að gerð auglýs- ingarinnar sem er sérstök afmæl- isútgáfa en auglýsingastofan Vat- ikanið framleiddi. Arnar Knútsson hjá Filmus segir Kjörís-menn til algerrar fyrirmyndar – þeir hafi haft vaðið fyrir neðan sig og pant- að auglýsinguna með góðum fyrir- vara. Hún var sem sagt gerð í fyrra en oft sé það svo að menn vilji koma í birtingu sumarauglýsingu þegar þeir sjá fyrstu sólarglennuna. En þá eigi eftir að gera auglýsinguna. jakob@frettabladid.is DR. GUNNI: UM AÐ GERA AÐ BÖRN VINNI FYRIR SÉR Selur börnin í auglýsingar KJÖRÍSDRENGURINN DAGBJARTUR Dr. Gunni segir að tekjurnar sem Dagbjartur vinni sér inn sem auglýsingaleikari fari í örugga sjóði. NEYTENDAFRÖMUÐURINN OG VIÐSKIPTARÁÐHERRA Dr. Gunni er líklega þekktasti neytendafrömuður landsins og leggur nú til frumlegasta kreppuráðið sem heyrst hefur lengi – að fólk selji börn sín í auglýsingar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM „Safnplata með karlakórnum Fóstbræðrum er það sem ég hlusta mest á og svo er það rímnaplata Iðunnar. Þegar þessar tvær eru ekki í eyrunum er það bara Neil Young.“ Ólafur Sigurðsson meindýraeyðir. „Mér finnst þetta ferlega spenn- andi,“ segir píanóleikarinn Sunna Gunnlaugsdóttir sem spilar með djasskvartett sínum á þaki sænska sendiráðsins í Washing- ton DC á þjóhátíðardaginn 17. júní. Tónleikarnir eru hluti af norrænni djasshátíð sem verð- ur haldin í Washington og munu fleiri hljómsveitir spila uppi á þakinu. „Þetta er svolítið óvenju- legt,“ viðurkennir Sunna, sem ætlar að spila í klukkutíma með hljómsveit sinni. Bítlarnir héldu sögufræga loka- tónleika sína uppi á þaki Apple- byggingarinnar í London 1969 og U2 gerði slíkt hið sama fyrr á þessu ári á þaki höfuðstöðva BBC í London. Sunna slæst því í hóp mikilla tónlistargoðsagna með tónleikum sínum í Washington og á vafalítið eftir að vekja mikla lukku. Tónleikarnir smellpassa við dagskrá Sunnu því hún hefur þegar bókað tónleika í New York og Virginíu um svipað leyti. Að auki ætlar hún að taka upp nýja plötu í Brooklyn í New York en áður hefur hún tekið þar upp plöt- urnar Mindful og Songs From Iceland. Hún segir það æðislegt að taka þar upp plötu. „Við erum með alveg súperfínan flygil og maður vill helst ekki fara heim aftur. Þetta er risastórt pláss og viðarinnréttað. Það er bara algjör lúxus að vera þarna.“ Til að hita upp fyrir ferða- lag sitt til Bandaríkjanna spilar Sunna í Vonarsal SÁÁ í Reykja- vík 28. maí ásamt Þorgrími Jóns- syni kontrabassaleikara og Scott McLemore trommara. Tónleik- arnir hefjast klukkan 12 og standa yfir í hálftíma. - fb Spilar á þaki í Washington SUNNA GUNNLAUGSDÓTTIR Sunna spilar uppi á þaki sænska sendiráðsins í Washington DC á þjóðhátíðardaginn 17. júní. „Þetta er lítill, hálfgerður sólskinsgjörningur,“ segir athafnamaðurinn Steinar Jónsson sem hefur tökur á nýrri stuttmynd, Imagination, um hvítasunnuhelgina. Um dans- og söngva- mynd er að ræða sem er undir áhrifum frá hinum vinsælu myndum High School Musical. „Hún er um dökkklæddan rokkara sem verður hálfgerður Zac Efron,“ segir Steinar og á þar við aðalleikara High School Musical. Myndin, sem verður 8-9 mínútna löng, verð- ur öll tekin upp á ensku. „Við ætlum að fara með hana á kvikmyndahátíðir og kynna fyrir sjónvarpsstöðvum á Norðurlöndunum,“ segir Steinar og greinilegt að hann ætlar sér stóra hluti með verkefnið. Myndin er unnin í sam- vinnu við Kvikmyndamiðstöð Íslands og Rík- issjónvarpið auk þess sem World Class hefur veitt aðstoð. Örlygur Smári, sem tók upp Allt fyrir ástina með Páli Óskari, semur tónlistina í myndinni og Haffi Haff sér um förðun. Fyrir utan þá verður ungt fólk mest áberandi við gerð mynd- arinnar, flest á framhaldsskólaaldri. Tökur fara fram í Hagaskóla og ætlar Steinar sjálfur að leikstýra og framleiða í gegnum fyrirtæki sitt Mediastream. Honum til halds og traust er Elín Magnea Magnadóttir. „Maður er með pínu fiðring í maganum,“ segir hún, enda stutt í að tökur hefjist eftir eitt og hálft ár í undir- búningi. Auk þess að leikstýra er Steinar handrits- höfundur myndarinnar og eins og gefur að skilja er handritið í styttri kantinum. „Þetta er ábyggilega stysta handrit sögunnar, bara ein blaðsíða,“ segir hann og hlær. - fb Gerir stuttmynd í anda High School Musical UNG OG UPPRENNANDI Steinar Jónsson og Elín Magnea Magnadóttir undirbúa gerð stuttmyndarinnar Imagination. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Auglýsingasími Eins og sagt var frá á þessum stað í vikunni þykir góðborgurum landsins fátt betra en að njóta veðurblíðunnar á Austurvelli. Og hafa menn séð ólíklegustu menn spjalla saman í mesta bróðerni. Einhverjir ráku upp stór augu þegar sjálfur Fáfnismaðurinn Jón Trausti Lúthersson birtist, ber að ofan í Fáfnis-vesti og lék við hvurn sinn fingur. Ekki minnkaði áhugi fólks á Austurvelli þegar Jón Trausti rakst á Einar Ágúst Víðisson, Skíta mór- alsmanninn fyrrverandi, og þeir féllust í faðma eins og aldagamlir vinir. Sveitarstjóranum Ísólfi Gylfa Pálmasyni er margt til lista lagt. Hann stýrir Hrunamannahreppi af mikilli festu, er með íbúð fyrir ofan væntanlega vínbúð og er hvers manns hugljúfi. Það kom því fáum á óvart að Ísólfur Gylfi skyldi hafa verið fenginn til að stjórna mikilli grillveislu í tilefni af miklum hreins- unardegi á miðvikudag þar sem þingmaðurinn fyrrverandi eldaði glóðasteiktar pylsur ofan í hvern þann sem vildi. - fgg FRÉTTIR AF FÓLKI VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á bls. 8 1. Seltjarnarnes 2. Kris Allen 3. Hagsýni og hamingja

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.