Fréttablaðið - 29.05.2009, Blaðsíða 2
2 29. maí 2009 FÖSTUDAGUR
www.ob.is26 stöðvar um land allt.
-5kr.
VIÐ FYRST
U NOTKUN
Á ÓB-LYKL
INUM
OG SÍÐAN
ALLTAF -2K
R.
TB
W
A
\R
EY
K
JA
VÍ
K
\
SÍ
A
Sæktu um ÓB-lykilinn á www.ob.is eða í síma 515 1141.
ÓB-lykilhafar geta safnað Vildarpunktum Icelandair.
Þóra, væri ekki betra að kasta
sér á ljósabekk?
„Jú, það er vel hægt að vinna í
brúnkunni á Bifröst.“
Þóra Tómasdóttir, sem er einn umsjón-
armanna Kastljóss, sagði frá því í
Fréttablaðinu í gær að hún hygðist setjast
á skólabekk.
UMHVERFISMÁL Náttúruverndar-
samtökin Sea Shepherd mótmæla
því að íslensk stjórnvöld hafi
leyft hvalveið-
ar í atvinnu-
skyni á ný og
hóta að grípa
tið aðgerða.
Samtökin
hyggjast endur-
vekja aðgerð
sem kennd var
við ragnarök og
stofnað var til
árið 2007. Þá stóð til að skip sam-
takanna, Farley Mowat, kæmi til
landsins til að berjast gegn hval-
veiðum. Ekkert varð af þeirri
heimsókn. Samtökin sökktu hval-
veiðibátum í Reykjavíkurhöfn
árið 1986.
Í frétt á vef samtakanna segir
að hvalveiðar Íslendinga séu
brot á alþjóðlegu banni við hval-
veiðum í atvinnuskyni. - bj
Sea Shepherd mótmæla:
Hóta aftur
ragnarökum
Maðurinn sem lést eftir
árekstur tveggja bíla á
Grinda-
víkurvegi
snemma á
fimmtudags-
morgun hét
Sigurfinnur
Jónsson.
Sigurfinn-
ur var 48
ára, fæddur
22. febrúar
1961, og var
til heimilis að Arnarhrauni 18
í Grindavík. Hann lætur eftir
sig eiginkonu og þrjú börn.
Lést í bílslysi
SIGURFINNUR
JÓNSSON
LÖGREGLUMÁL Lögregla hafði síð-
degis í gær hendur í hári þriðja
mannsins sem kom að ráni á
Barðaströnd á Seltjarnarnesi.
Hann er nú í haldi lögreglu og
verður yfirheyrður í dag.
Maðurinn er talinn hafa beðið
í bíl fyrir utan ránsstaðinn á
meðan félagar hans athöfnuðu sig
inni, slógu eldri úrsmið og reyrðu
hann fastan með límbandi. Mað-
urinn er fæddur 1987. Ekki hefur
verið ákveðið hvort farið verður
fram á gæsluvarðhald yfir
honum líkt og hinum tveimur.
Þeir verða í haldi til 3. júní.
Þýfið úr ráninu, um sextíu
armbandsúr og tugir skartgripa,
kom einnig í leitirnar í gær. Það
verður flokkað og skoðað og
síðan skilað til úrsmiðsins. - sh
Ránið á Seltjarnarnesi:
Sá þriðji í haldi
og þýfið fundið
HONDÚRAS, AP Minnst fjórir létust
í Hondúras í gær þegar sterkur
jarðskjálfti, 7,1 á Richterkvarða,
reið yfir undan ströndum Mið-
Ameríkulandsins. Hús hrundu
bæði í Hondúras og nágranna-
landinu Belís og fólk allt til höf-
uðborgarinnar í Gvatemala flúði
híbýli sín á náttfötunum.
Jarðskjálftinn stóð í hálfa
mínútu og í fyrstu var óttast að
flóðbylgja kynni að vera á leið
að ströndum Hondúras, Belís og
Gvatemala. Sú hætta leið fljót-
lega hjá. Rafmagn fór af á stórum
svæðum allt að landamærunum
við Mexíkó. - sh
Sterkur jarðskjálfti í Hondúras:
Fjögur börn
sögð hafa farist
TJÓN Miðhluti þessarar þjóðvegarbrúar
hrundi í skjálftanum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
PAUL WATSON
ALÞINGI Breiður vilji er á Alþingi
fyrir aðildarumsókn Íslands að
Evrópusambandinu.
Við upphaf þingumræðu um til-
lögu ríkisstjórnarinnar þess efnis
í gærmorgun var tillögu stjórnar-
andstöðuflokkanna, Framsóknar-
flokks og Sjálfstæðisflokks, sama
efnis útbýtt.
Össur Skarphéðinsson utanrík-
isráðherra sagði gærdaginn sögu-
legan enda sýndi tillaga stjórn-
arandstæðinga að hægt væri að
ná samstöðu um málið í þinginu.
Hann reifaði helstu rök með og
á móti Evrópusambandsaðild og
sagði mótrökin bæði lög- og rétt-
mæt. En hann væri ósammála
þeim. Trú hans væri sú að hægt
sé að semja um sérlausnir í mikil-
vægum málaflokkum.
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður VG, er á hinn bóginn van-
trúaður á að undanþágur og sér-
reglur fáist. Byggir hann þá trú
sína á reynslu Norðmanna.
Þar af leiðandi sagðist Stein-
grímur þeirrar skoðunar að þjóðin
myndi, þegar þar að kæmi, hafna
aðild að Evrópusambandinu í þjóð-
aratkvæðagreiðslu. En málið væri
þá úr sögunni og við hefðum það
ekki lengur hangandi yfir okkur.
Steingrímur sagði svo eðlilegt
að tillögurnar tvær yrðu „brædd-
ar saman“.
Málflutningur þingmanna
Framsóknarflokks og Sjálfstæð-
isflokks var á einn veg: stjórnar-
tillagan er hrákasmíð. „Handónýtt
plagg,“ sagði til dæmis Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir, varafor-
maður Sjálfstæðisflokksins, og
bætti við að hlegið yrði að Íslend-
ingum í Brussel þegar tillagan
hefur verið þýdd á erlend mál. Um
leið ítrekaði hún þá skoðun sína að
sækja bæri um aðild að Evrópu-
sambandinu.
Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son, formaður Framsóknarflokks-
ins, sagði Ísland ganga án sjálfs-
virðingar og reisnar til viðræðna
við Evrópusambandið eins og
sakir stæðu og taldi harla ólíklegt
að leið ríkisstjórnarinnar yrði til
þess að góðir samningar næðust.
Þráinn Bertelsson, þingmaður
Borgarahreyfingarinnar, kvað
þingflokk sinn fagna málinu enda
þinginu falið að ná niðurstöðu og
þjóðinni svo að samþykkja samn-
ingsniðurstöður á endanum.
bjorn@frettabladid.is
Ríkur þingvilji til að
sækja um ESB-aðild
Aðferðafræði greinir að tillögur ríkisstjórnarinnar annars vegar og Framsóknar-
og Sjálfstæðisflokks hins vegar um Evrópusambandsmál. Stjórnin vill leggja inn
aðildarumsókn en stjórnarandstöðuflokkarnir vilja undirbúa mögulega umsókn.
Munurinn á tillögunum tveimur
er sá helstur að ríkisstjórnin vill
að þingið feli henni að leggja inn
umsókn en framsóknar- og sjálf-
stæðismenn vilja að utanríkismála-
nefnd undirbúi mögulega umsókn.
Í stjórnartillögunni er gert ráð
fyrir að áður en aðildarviðræður
hefjist verði víðtækt samráð haft við
hagsmunaaðila um samningsmark-
mið. Þá segir að fagleg viðræðu-
nefnd verði skipuð af ríkisstjórn
og að Alþingi setji á fót sérstaka
nefnd er fari með samskipti þess við
viðræðunefndina.
Hin tillagan ráðgerir að utanrík-
ismálanefnd útbúi greinargerð um
mikilvægustu hagsmuni Íslands og
vinni vegvísi að mögulegri umsókn.
Í greinargerð segir að þannig sé
fullnægjandi fagleg umfjöllun um
hagsmuni Íslands tryggð.
ÓLÍK AÐFERÐAFRÆÐI VIÐ UNDIRBÚNING
MÆLT FYRIR MÁLINU Össur
Skarphéðinsson utanríkis-
ráðherra flutti þingsályktun-
artillögu ríkisstjórnarinnar
um aðildarumsókn að
Evrópusambandinu í gær.
Breiður þingvilji er til aðild-
arviðræðna en stjórn og
stjórnarandstaða vilja fara
ólíkar leiðir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur staðfest átta ára fang-
elsisdóm yfir karlmanni um fertugt sem um árabil
hafði reglulegt samræði við ólögráða stjúpdóttur
sína. Dómurinn er sá þyngsti sem fallið hefur hér-
lendis fyrir kynferðisbrot.
Stúlkan bar að stjúpfaðir hennar hefði haft við
sig mök tvisvar til þrisvar í viku þegar hún var ell-
efu til fjórtán ára. Það þótti ekki sannað, en þótti þó
heldur ekki skipta máli, enda væri sannað að brotin
hefðu verið mjög regluleg. Maðurinn neitaði sök og
sakaði stjúpdótturina um lygar.
Systir mannsins kom fyrir dóminn og bar um
kynferðislegar hneigðir hans til barna.
Dómurinn lækkar bætur til stúlkunnar úr þremur
milljónum króna í tvær milljónir.
Fimm dómarar dæmdu í málinu. Tveir þeirra,
Ingibjörg Benediktsdóttir og Ólafur Börkur
Þorvaldsson, skiluðu sératkvæði þar sem þeir lýstu
þeirri skoðun sinni að í ljósi alvarleika brotsins ætti
ekki að lækka miskabætur til stjúpdótturinnar. - sh
Maður sem misnotaði stjúpdóttur sína um árabil hlýtur þyngsta dóm sögunnar:
Átta ára fangelsisdómur staðfestur
MIKIL SÁLRÆN ÁHRIF
Stjúpdóttir mannsins mun þurfa að lifa með afleiðing-
um misnotkunarinnar alla tíð, að því er fram kemur
í vitnisburði forstöðumanns Barnahúss. Um tíma
hafi verið óttast um líf hennar og henni gefin lyf til
að hjálpa henni yfir erfiðasta tímabilið. Nú lifi hún
sæmilegu lífi, en geti þó ekki farið á staði sem tengist
brotunum. Hún muni lítið frá æskuárunum og geti ekki
rætt um þau nema leikskólatímabilið. Þá muni hún
ekki geta lifað eðlilegu lífi á unglingsárum og muni eiga
í miklum erfiðleikum í framtíðinni. Þannig geti barn-
eignir til dæmis valdið henni gríðarlegum erfiðleikum.
MENNING Málstofa um fjölmiðla
og innflytjendur verður haldin í
Háskóla Íslands í dag. Þar verð-
ur fjallað um hvað fjölmiðlar
geti lagt af mörkum til að bæta
félagslega aðlögun innflytjenda
og auka fjölmenningarlegar
umræður.
Ed Klute, forstöðumaður Mira
Media í Hollandi, hefur framsögu
og ræðir þróun þessara mála.
Mira Media starfar að því að
gera minnihlutahópa af erlend-
um uppruna sýnilegri í fjölmiðl-
um, en um óháð félagasamtök er
að ræða. Málstofan fer fram í dag
í Gimli, í stofu 102, klukkan 17 til
19. - kóp
Málstofa í Háskóla Íslands:
Fjölmiðlar og
innflytjendur
INTERNET Netvari Símans er for-
rit sem á að verja notendur fyrir
óæskilegu efni og lokar fyrir
aðgang að því, svo sem ofbeldi
og klámi.
Svo virðist þó sem Netvarinn
loki einnig fyrir aðgang að ýmsu
pólitísku efni. Þannig hafa notend-
ur hans sagt frá því að þeir geti
ekki lesið efni á róttækum pólit-
ískum umræðusíðum, svo sem um
anarkisma, eða til dæmis netsíðu
tímarits Byltingarsinnaða banda-
ríska kommúnistaflokksins.
„Ég hugsa að við getum ósköp
lítið sagt við þessu eða gert, þar
sem við göngumst undir þessa síu
hjá Websense, sem þykir sú besta
í heimi,“ segir Margrét Stefáns-
dóttir, upplýsingafulltrúi Símans.
Netvarinn komi frá Websense „og
þeir eru með flokka og skanna hjá
sér. Netvarinn stöðvar það sem
sleppur ekki
framhjá síunni
hjá þeim.“
Spurð hvort
þ e s s i h l ið -
aráhrif þyki
áhyggjuefni hjá
Símanum segir
Margrét svo
ekki vera.
„Við treyst-
um þeirra dóm-
greind til að loka. Svo getur fólk
líka alltaf losað um síuna hjá sér,
leitað og sett hana svo aftur á.
Fólk er mjög ánægt með þetta og
skólar eru að taka þetta í mjög
miklum mæli,“ segir hún. Í skól-
unum þurfi ekki að hafa áhyggj-
ur af því að verið sé að loka fyrir
frjáls skoðanaskipti, þótt lokað sé
fyrir nokkrar síður. Margar aðrar
komist í gegn. - kóþ
Netvari Símans síar fleira en ofbeldi og klám:
Stöðvar líka pólitík
MARGRÉT
STEFÁNSDÓTTIR
MENNTAMÁL Norðlingaskóli hlaut
í gær Íslensku menntaverðlaun-
in, sem forseti Íslands veitti við
hátíðlega athöfn í Hofsstaðaskóla
í Garðabæ. Skólinn hlaut verð-
launin í flokki skóla sem sinnt
hafa vel nýsköpun eða farsælu
samhengi í fræðslustarfi.
Þorvaldur Jónasson, mynd-
mennta- og skriftarkennari við
Réttarholtsskóla í Reykjavík,
hlaut verðlaunin í flokki kennara
sem skilað hafa merku ævistarfi
eða skarað fram úr. Sylvía Pét-
ursdóttir, kennari við Áslands-
skóla í Hafnarfirði, hlaut verð-
laun í flokki ungra kennara og
Helgi Grímsson, skólastjóri Sjá-
landsskóla, hlaut verðlaun sem
nýjungagjarn námsefnishöfund-
ur. - sh
Forseti veitir menntaverðlaun:
Norðlingaskóli
hlaut verðlaun
SPURNING DAGSINS